Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ T vö ár eru síðan Hyundai- umboðið opnaði veglega bílaverslun í Kauptúni. Heiðar Sveinsson fram- kvæmdastjóri segir versl- unina vera smám saman að skjóta rótum og neytendur að uppgötva þetta nýja bílasölusvæði höfuðborg- arsvæðisins. Nýtur Hyundai-merkið töluverðar hylli um þessar mundir en fyrstu níu mánuði ársins er merk- ið með 7% markaðshlutdeild borið saman við 4,5% hlut í fyrra. Segir Heiðar að þessi góði árang- ur skrifist m.a. á vandaða smíði og annáluð gæði Hyundai-bíla sem hvað eftir annað verði hlutskarpastir í mælingum J.D. Power, sem og á hagstætt verð, fallega hönnun og mjög rausnarlega fimm ára ábyrgð sem fylgir öllum nýjum bílum. Fimm ára ábyrgð Hyundai er, að sögn Heiðars, ein sú yfirgripsmesta sem þekkist á íslenska markaðinum og enginn annar framleiðandi býður viðskiptavinum sínum takmarka- lausan akstur yfir ábyrgðartímann, að undanskildum þeim sem nota bíl- inn til atvinnureksturs. Útlitið hannað fyrir Evrópu Ef einhverjum kann að hafa þótt Hyundai-bílarnir í lummulegri kant- inum þá ætti nýjasta línan að fá þá hina sömu til að skipta um skoðun en þar eru á ferð rennilegir og snotrir bílar með sportleg útlitseinkenni. „Hyundai hefur undanfarið end- urhannað flestar gerðir bíla sinna til að mæta betur smekk Evrópubúa. Fyrstu Hyundai-bílarnir sem seldir voru hér á landi voru framleiddir fyrir bandaríska og asíska neyt- endur og endurspeglaði stíllinn það. Í dag rekur Hyundai stórar bíla- verksmiðjur í Tékklandi og Tyrk- landi og framleiðir þar bíla á borð við i10, i20, i30 og ix35 fyrst og fremst með Evrópumarkað í huga. Er um að ræða sköpunarverk evr- ópskra bílahönnuða en hönnunar- og þróunardeild Hyundai í Evrópu er í Frankfurt.“ Heiðar segir söluna dreifast nokk- uð vel yfir stærðarflokkana en áber- andi er þó að salan er dræm í svo- kölluðum D-flokki sem er flokkur stærri fólksbíla. „Þegar Íslendingar eru komnir í þennan stærðarflokk virðast þeir velja að taka stökkið upp í jepplingana sem eru næsti flokkur fyrir ofan. Munar ekki miklu í verði en fjölskyldan er þá komin á bíl sem ræður betur við akstur í snjó og hálku og hentar betur til útivistar og ferðalaga, hvort sem stefnan er sett á hálendið eða ætlunin að draga hjólhýsi eða tjaldvagn umhverfis landið.“ Sparneytni sjálfsagður hlutur Strax eftir hrunið margumtalaða var áberandi að landsmenn settu bensín- eyðsluna á oddinn. Höfðu bílasalar margir á orði að eldsneytisnotkunin væri það fyrsta sem spurt væri um. Heiðar segir eldsneytisnotkun vissu- lega vera íslenskum neytendum of- arlega í huga en í vaxandi mæli Taka stökkið upp í jepplingana Frekar en að kaupa bíla í D-flokki, flokki stærri fólksbíla, velja íslenskir neytendur að kaupa sér ögn dýrari jeppling með meira notagildi. Eyðslu- tölurnar hafa lækkað mikið á síðustu árum og hugað er að ýmsum smáatriðum sem draga úr bensínnotkuninni. Hyundai hefur m.a. hannað betri dempun fyrir bílana og lagt áherslu á bætta hljóðeinangrun til að gera aksturinn enn þægilegri fyrir alla um borð. Bón Íbúar höfuðborg- arsvæðisins hafa verið að uppgötva nýju bíla- búðina. Úr sýning- arsalnum. Íslendingar virðast vera farnir að vera ögn hugrakkari í litavalinu á bílinn. Segir Heiðar að kaupendur láti margir eftir sér djarfari liti, sér í lagi þegar smábilarnir eiga hlut. „Konurnar virðast vera áræðnari en karlarnir að þessu leyti og láta eftir sér að velja lit sem sker sig úr fjöldanum.“ Gráir tónar halda samt áfram að vera vinsælastir. Hvíti liturinn virðist ekki hafa slegið eins vel í gegn á Íslandi og í öðrum löndum, mögulega vegna slabbs og slyddu. „Grái liturinn hentar okk- ur vel enda sjást óhreinindin ekki svo glatt. Hvíti liturinn og ljósir litir verða mikið fyrir valinu hjá bílaleigunum enda litir sem fela betur dældir og bungur sem geta verið fylgifiskur mikils aksturs á malarvegum.“ Konur djarf- ari í litavalinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.