Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 26

Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ V ið gerum við og klæðum all- ar gerðir af sætum fyrir ökumenn. Bílsætum, mót- orhjólasætum og vél- sleðasætum svo eitthvað sé nefnt, og höfum mikla og langa reynslu af viðgerðum af þessu tagi,“ segir Hafsteinn Sigurbjarnason bólstrari með meiru hjá H.S. Bólstr- un að Hamraborg 5 í Kópavogi. „Góður bílstjórastóll þarf að veita þægilegan stuðning við mjóbakið og vera formaður vel út til hliðanna. Þá þarf helst að vera hægt að velta set- unni svo hægt sé að breyta afstöð- unni milli lærleggja og hryggjar til að létta bæði á fótum og hrygg. Lélegt og illa bælt bílsæti getur orsakað mikla vanlíðan í baki, herðum og mjöðmum. Og gæti hreinlega valdið varanlegu tjóni á líkamanum. Góður bílstjórastóll er jafn mikilvægur og góð rúmdýna er fyrir skrokkinn,“ segir Hafsteinn. Hann veit hvað hann syngur því hann hefur starfað við bólstrun með eigin rekstri frá því hann útskrifaðist sem bólstrari árið 1974. Og eplið fell- ur oftast stutt frá eikinni sem sést á því, að sonur hans, Hafþór, starfar með honum í fyrirtækinu, en hann út- skrifaðist sem bólstrari frá Skive Tekniske skole í Danmörku 2003, tveimur árum eftir að systir hans, Berglind, lauk þar námi líka en hún fæst við bólstrun í fyrirtæki sínu á Selfossi. Og Hafsteinn formælir lélegum bílsætum og leggur áherslu á nauð- syn góðra sæta fyrir ökumenn. „Al- gengt er að svampur sé settur beint á grindina sem þá vill skerast upp í svampinn, áklæðið fer að slakna og brot í það að myndast. Brotið vill svo rifna fljótt og því hraðar sem oftar er farið inn og út úr bílnum. Algengt er að við fáum aðeins tveggja til þriggja ára gömul sæti til viðgerðar. Þá úr mikið keyrðum bílum, í flestum til- fellum atvinnubílum. Með því að koma tímanlega í viðgerð, helst um leið og efnið fer að slakna, er til- tölulega lítið mál að laga og setjum við þá sterkan dúk milli svamps og grindar svo grindin skerist ekki upp í svampinn.“ Hafsteinn segir H.S. Bólstrun hafa mikla reynslu í viðgerðum á bílsæt- um, snjósleðasætum og mót- orhjólasætum. „Við höfum þjónað mörgum atvinnubílstjóranum og nokkrum bílaumboðum í um þrjá ára- tugi. Við veitum atvinnubilstjórum al- gjöran forgang, en panta þarf tíma hjá okkur ef ökutækið má ekki stoppa lengi. Þá förum við strax í við- gerðina þegar það hentar viðkomandi best að missa tækið úr vinnu.“ Til að útfæra þjónustu sína við bíl- eigendur hefur H.S. Bólstrun hafið samstarf við bandarískt fyrirtæki sem sérhæfir sig í áklæði og tilsaum á sæti fyrir fornbíla. „Þaðan getum við líka útvegað upprunaleg hurðaspjöld og toppa í alla bandaríska bíla sem framleiddir voru á árunum 1940 til 1990,“ segir Hafsteinn Sig- urbjarnason. agas@mbl.is Reynsla Hafsteinn segir H.S. Bólstrun hafa mikla reynslu í viðgerðum á bílsætum, snjósleðasætum og mótorhjólasætum. „Við höfum þjónað mörgum atvinnubílstjóranum og nokkrum bílaumboðum í um þrjá áratugi. Við veitum atvinnubilstjórum algjöran forgang, en panta þarf tíma hjá okkur ef ökutækið má ekki stoppa lengi. Þá förum við strax í viðgerðina þegar það hentar viðkomandi best að missa tækið úr vinnu.“ Líður vel í góðum bílstjórastól Góður bílstjórastóll er jafn mikilvægur og góð rúmdýna er fyrir skrokk- inn, segir Hafsteinn Sig- urbjarnason bólstrari. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sæti „Góður bílstjórastóll þarf að veita þægilegan stuðning við mjóbakið og vera formaður vel út til hliðanna. Þá þarf helst að vera hægt að velta setunni svo hægt sé að breyta afstöðunni milli lærleggja og hryggjar til að létta bæði á fótum og hrygg. Algengt er að svampur sé settur beint á grindina sem þá vill skerast upp í svampinn Við gerum við og klæðum allar gerðir af sætum fyrir ökumenn. Bílsætum, mót- orhjólasætum og vél- sleðasætum. Algengt Svampur sé settur beint á grindina sem þá vill skerast upp í.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.