Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 36
36 | MORGUNBLAÐIÐ Dalshrauni 16 • Hafnarfirði www.dekkjasalan.is | 587 3757 WWW.DEKKJASALAN.IS Við leysum málið! Ný dekk Dekkjaverkstæði Felgur Dekkjahótel Notuð dekk Pólýhúðun M ótorhjólasýningin í Köln kallast Intermot og er orðin árlegur við- burður sem markar flest það nýjasta sem á boðstólum er í mótorhjólageiranum ásamt EICMA sýningunnni í Mílanó sem haldin er mánuði seinna. Tals- vert var um frumsýningar að þessu sinni og þá sérstaklega hjá japönsku framleiðendunum, þótt að þeir evr- ópsku hafi einnig verið duglegir við hituna. 300 hestafla keppnishjól Eitt af þeim hjólum sem vöktu mesta athygli bæði fyrir sýninguna og á henni sjálfri var Kawasaki Ninja H2 sem sýnt var í keppn- isútgáfu sinni. Með forþjöppunni sem í því er, er það gefið upp 296 hestöfl og þótt hámarkshraði sé ekki gefinn upp er hann áætlaður nálægt 350 km hraða. Allt við hjólið kallar á hraða og aksturseiginleika og ef- laust geta margir ekki beðið eftir að prófa gripinn. Grindin er af svokall- aðri Trellis gerð og megnið af kápu hjólsins er úr koltrefjum. Eins og sjá má eru engin ljós á hjólinu enda götuútgáfunnar ekki að vænta fyrr en í næsta mánuði þegar hún verður frumsýnd á EICMA sýningunni í Mílanó. Þrátt fyrir allt aflið er aftur- gaffallinn aðeins einfaldur svo að sterkur hlýtur hann að vera. Hjólið er hannað í samvinnu við flug- véladeild Kawasaki enda má sjá litla vængi þar sem venjulega eru spegl- ar, en þeir eiga að bæta aksturseig- inleika hjólsins. Kawasaki lét ekki þar við sitja og frumsýndi nýja gerð Versys 650 hjólsins auk þess að sýna nýtt útlit Versys 1000. 650 hjólið fær meira afl og stærri bensíntank og framrúðu. Honda lítt áberandi Lítið var að gerast hjá Honda en frá Honda kemur þó nýr VFR800X Crossrunner sem fær meira afl, nýrra útlit og meiri búnað eins og spólvörn, díóðuljós og upphituð handföng. Honda frumsýndi einnig nýjan skúter sem heitir Forza 125 og er sá öflugasti í þessum flokki. Þótt öll 125 hjól séu miðuð við 15 hestöfl á þetta hjól að skila mestu upptaki og hámarkshraða í flokkn- um. Yamaha með tilraunahjól Meðal þess sem vakti mesta at- hygli á bás Yamaha var GEN01 til- raunahjólið. Þar er um að ræða al- vöru mótorhjól með tvöföldu framdekki. Dekkin eru stór og fjöðr- unin löng og á hjólið að ráða jafnt við torfærur sem malbik. Einnig sýndi Yamaha tvö ný XJR1300, með og án vindkúpu en þau voru end- urhönnuð með þátttöku aðila sem venjulega sérhæfa sig í breytingum mótorhjóla, Keino og Deus Ex Machina. Að auki var sýnd ný út- gáfa MT-07 í svokallaðri stönt- útgáfu. Hægt er að fá hjólið með sérstökum verndarbúnaði líkt og stönthjól nota og er útlitið fært í þann stíl. Rafknúið KTM hjól Ólíkt því sem venjulega er á döf- inni hjá KTM frumsýndi austurríski framleiðandinn að þessu sinni rafknúið mótorhjól. Um er að ræða Freeride E-SM sem stendur fyrir SuperMoto og er götuútgáfa af tor- færuhjóli. Rafgeymirinn er 300 volta og rafmótorinn skilar 21,4 hest- öflum. Það þýðir að það er löglegt fyrir flokk A1 í ökuskírteini, en raf- hjól mega skila meira afli en bens- ínhjól í þeirri flokkun. Hjólið er að- eins 106 kíló og ætti því að skila sér vel áfram í upptakinu. KTM sýndi einnig í fyrsta skipti KTM 1290 Su- per Adventure sem aðeins hafði ver- ið sýnt á myndum hingað til. Vélin er nú 1.301 rsm og skilar 160 hest- öflum. Vindkápan er endurhönnuð og upphituð handföng og sæti eru staðalbúnaður. Einnig verður hægt að fá hjólið með svokölluðu brekku- viðnámi sem aukabúnað. Suzuki með tvö ný hjól Suzuki frumsýndi tvö alveg ný hjól, nýtt V-Strom 650 og GSX- S1000. V-Strom 650 fær nú sama út- lit og gogg og 1000 hjólið, tein- afelgur fyrir meiri torfærueiginleika og meiri búnað eins og harðar ál- töskur. S1000 hjólið var frumsýnt í tveimur útgáfum, S1000 sem er nak- in útgáfa og S1000F sem er með lít- illi vindkápu. Bæði hjólin eru 155 hestöfl og fást með spólvörn með þremur akstursstillingum. Frá Su- zuki kom svo aðeins uppfærsla af gamla GSX-R1000 hjólinu og þurf- um við að bíða fram á næsta ár eftir nýju hjóli úr þeirri deild. Hjólið er Intermot mótorhjólasýningin 2014 Stöðugleiki Nýtt BMW S1000RR er nú öflugra en samt fimm kílóum léttara en áður og fær fullkomnasta skrikvarnarbúnað sem fáanlegur er í mótorhjól í dag. Klassík Ducati Scrambler hjólið fæst í þremur útgáfum en útlit þess byggist á samskonar hjólum frá sjöunda áratugnum. Framtíðin Kawasaki frumsýndi rafdrifið framtíðarhjól sem kallast tilraunahjól-J en það hafði áður verið sýnt sem tölvuteiknimynd á sýningunni í Tokyo í fyrra. Sýnileiki Framleiðandi Acrapovic pústkerfanna vakti óskipta athygli fyrir nýstár- legan sýningarbás sinn á Intermot mótorhjólasýningunni í Köln. Margar frum- sýningar nýrra mótorhjóla Hátíð Alþjóðlega mótorhjólasýningin í Köln kallast Intermot Talsvert var um frumsýn- ingar að þessu sinni og þá sérstaklega hjá japönsku framleiðendunum. Rétt eins og bílasýningar trekkja að áhugamenn um víða veröld lætur áhugafólk um mótorhjól sig ekki vanta á mótorhjólasýningarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.