Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 36
36 | MORGUNBLAÐIÐ
Dalshrauni 16 • Hafnarfirði
www.dekkjasalan.is | 587 3757
WWW.DEKKJASALAN.IS
Við leysum málið! Ný dekk
Dekkjaverkstæði
Felgur
Dekkjahótel
Notuð dekk
Pólýhúðun
M
ótorhjólasýningin í Köln
kallast Intermot og er
orðin árlegur við-
burður sem markar
flest það nýjasta sem á
boðstólum er í mótorhjólageiranum
ásamt EICMA sýningunnni í Mílanó
sem haldin er mánuði seinna. Tals-
vert var um frumsýningar að þessu
sinni og þá sérstaklega hjá japönsku
framleiðendunum, þótt að þeir evr-
ópsku hafi einnig verið duglegir við
hituna.
300 hestafla keppnishjól
Eitt af þeim hjólum sem vöktu
mesta athygli bæði fyrir sýninguna
og á henni sjálfri var Kawasaki
Ninja H2 sem sýnt var í keppn-
isútgáfu sinni. Með forþjöppunni
sem í því er, er það gefið upp 296
hestöfl og þótt hámarkshraði sé ekki
gefinn upp er hann áætlaður nálægt
350 km hraða. Allt við hjólið kallar á
hraða og aksturseiginleika og ef-
laust geta margir ekki beðið eftir að
prófa gripinn. Grindin er af svokall-
aðri Trellis gerð og megnið af kápu
hjólsins er úr koltrefjum. Eins og
sjá má eru engin ljós á hjólinu enda
götuútgáfunnar ekki að vænta fyrr
en í næsta mánuði þegar hún verður
frumsýnd á EICMA sýningunni í
Mílanó. Þrátt fyrir allt aflið er aftur-
gaffallinn aðeins einfaldur svo að
sterkur hlýtur hann að vera. Hjólið
er hannað í samvinnu við flug-
véladeild Kawasaki enda má sjá litla
vængi þar sem venjulega eru spegl-
ar, en þeir eiga að bæta aksturseig-
inleika hjólsins. Kawasaki lét ekki
þar við sitja og frumsýndi nýja gerð
Versys 650 hjólsins auk þess að sýna
nýtt útlit Versys 1000. 650 hjólið fær
meira afl og stærri bensíntank og
framrúðu.
Honda lítt áberandi
Lítið var að gerast hjá Honda en
frá Honda kemur þó nýr VFR800X
Crossrunner sem fær meira afl,
nýrra útlit og meiri búnað eins og
spólvörn, díóðuljós og upphituð
handföng. Honda frumsýndi einnig
nýjan skúter sem heitir Forza 125
og er sá öflugasti í þessum flokki.
Þótt öll 125 hjól séu miðuð við 15
hestöfl á þetta hjól að skila mestu
upptaki og hámarkshraða í flokkn-
um.
Yamaha með tilraunahjól
Meðal þess sem vakti mesta at-
hygli á bás Yamaha var GEN01 til-
raunahjólið. Þar er um að ræða al-
vöru mótorhjól með tvöföldu
framdekki. Dekkin eru stór og fjöðr-
unin löng og á hjólið að ráða jafnt
við torfærur sem malbik. Einnig
sýndi Yamaha tvö ný XJR1300, með
og án vindkúpu en þau voru end-
urhönnuð með þátttöku aðila sem
venjulega sérhæfa sig í breytingum
mótorhjóla, Keino og Deus Ex
Machina. Að auki var sýnd ný út-
gáfa MT-07 í svokallaðri stönt-
útgáfu. Hægt er að fá hjólið með
sérstökum verndarbúnaði líkt og
stönthjól nota og er útlitið fært í
þann stíl.
Rafknúið KTM hjól
Ólíkt því sem venjulega er á döf-
inni hjá KTM frumsýndi austurríski
framleiðandinn að þessu sinni
rafknúið mótorhjól. Um er að ræða
Freeride E-SM sem stendur fyrir
SuperMoto og er götuútgáfa af tor-
færuhjóli. Rafgeymirinn er 300 volta
og rafmótorinn skilar 21,4 hest-
öflum. Það þýðir að það er löglegt
fyrir flokk A1 í ökuskírteini, en raf-
hjól mega skila meira afli en bens-
ínhjól í þeirri flokkun. Hjólið er að-
eins 106 kíló og ætti því að skila sér
vel áfram í upptakinu. KTM sýndi
einnig í fyrsta skipti KTM 1290 Su-
per Adventure sem aðeins hafði ver-
ið sýnt á myndum hingað til. Vélin
er nú 1.301 rsm og skilar 160 hest-
öflum. Vindkápan er endurhönnuð
og upphituð handföng og sæti eru
staðalbúnaður. Einnig verður hægt
að fá hjólið með svokölluðu brekku-
viðnámi sem aukabúnað.
Suzuki með tvö ný hjól
Suzuki frumsýndi tvö alveg ný
hjól, nýtt V-Strom 650 og GSX-
S1000. V-Strom 650 fær nú sama út-
lit og gogg og 1000 hjólið, tein-
afelgur fyrir meiri torfærueiginleika
og meiri búnað eins og harðar ál-
töskur. S1000 hjólið var frumsýnt í
tveimur útgáfum, S1000 sem er nak-
in útgáfa og S1000F sem er með lít-
illi vindkápu. Bæði hjólin eru 155
hestöfl og fást með spólvörn með
þremur akstursstillingum. Frá Su-
zuki kom svo aðeins uppfærsla af
gamla GSX-R1000 hjólinu og þurf-
um við að bíða fram á næsta ár eftir
nýju hjóli úr þeirri deild. Hjólið er
Intermot mótorhjólasýningin 2014
Stöðugleiki Nýtt BMW S1000RR er nú öflugra en samt fimm kílóum léttara en
áður og fær fullkomnasta skrikvarnarbúnað sem fáanlegur er í mótorhjól í dag.
Klassík Ducati Scrambler hjólið fæst í þremur útgáfum en útlit þess byggist á samskonar hjólum frá sjöunda áratugnum.
Framtíðin Kawasaki frumsýndi rafdrifið framtíðarhjól sem kallast tilraunahjól-J
en það hafði áður verið sýnt sem tölvuteiknimynd á sýningunni í Tokyo í fyrra.
Sýnileiki Framleiðandi Acrapovic pústkerfanna vakti óskipta athygli fyrir nýstár-
legan sýningarbás sinn á Intermot mótorhjólasýningunni í Köln.
Margar frum-
sýningar nýrra
mótorhjóla
Hátíð Alþjóðlega mótorhjólasýningin í
Köln kallast Intermot
Talsvert var um frumsýn-
ingar að þessu sinni og þá
sérstaklega hjá japönsku
framleiðendunum.
Rétt eins og bílasýningar trekkja að áhugamenn
um víða veröld lætur áhugafólk um mótorhjól sig
ekki vanta á mótorhjólasýningarnar.