Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Vönduð og endingargóð
vetrardekk sem koma þér
örugglega hvert á land sem er
Þ
að er búið að vera mjög
mikið fjör hjá okkur síðan
um miðjan ágúst,“ segir
Kristinn aðspurður að söl-
unni hjá Toyota um þessar
mundir. „Við höfum verið að setja
nokkra nýja bíla á markað frá því í
lok sumars og þeir hafa fengið
hreint glimrandi viðtökur. Við sett-
um nýjan Yaris í sölu í byrjun sept-
ember og mikil spenna og eftirspurn
hefur verið í kringum hann. Þá kom
ný kynslóð af Aygo á markaðinn í
september sömuleiðis og viðtök-
urnar á honum hafa verið frábærar.
Þessir tveir nýjustu meðlimir
Toyota-fjölskyldunnar hafa því
startað haustina hjá okkur með stæl
og við erum spennt yfir framhald-
inu.“
Veglegir aukahlutapakkar
Það má því segja að haustið hafi haf-
ist með hvelli hjá Toyota og fleira
hefur komið þar til. „Við settum í
loftið tilboð á Auris og buðum upp á
þrjá mismunandi aukahlutapakka,
sem hafa gengið mjög vel. Við-
skiptavinir hafa tekið þessum vel
búnu bílum vel og salan prýðileg.
Einnig vorum við í síðustu viku að
setja í loftið það sem við kölluðum
„suddalega flottan“ RAV4, en með
honum fylgir glæsilegur haust-
aukahlutapakka að verðmæti
430.000 krónur. Flottur bíll með frá-
bærum kaupauka sem hefur bók-
staflega runnið út,“ bætir Kristinn
við.
Ekki er nóg með að haustið fari
vel af stað hjá Toyota heldur hefur
árið í heild sinni verið gott. „Líkt og
markaðurinn þá er árið búið að vera
jákvætt í sölunni og aukning nánast í
hverjum einasta mánuði frá sama
mánuði á síðasta ári. Þetta erum við
að sjá á öllum vígstöðvum, hjá ein-
staklingum, á fyrirtækjamarkaði og
að ég tali ekki um bílaleigurnar.
Bílaleigumarkaðurinn er kominn í
nýjar hæðir frá því sem verið hefur.
Öll vötn renna semsagt í sömu átt og
hún er góð. Bjartsýnin ríkir hér hjá
Toyota.“
Nýr og glæsilegur Lexus
Í Kauptúninu er einnig til húsa lúx-
usbílaframleiðandinn Lexus og þar
stendur mikið til. Síðar í þessum
mánuði verður hulunni svipt af NX
300 hybrid, nýjum bíl sem er um
margt ólíkur þeim sem Lexus hefur
áður kynnt. „Hann verður frum-
sýndur um miðjan október og það er
bíll sem margir bíða spenntir eftir. Í
þessum bíl er að finna talsvert mikil
tíðindi því hönnunin er frábrugðin
því sem áður hefur verið. Þessar
skörpu línur sem bíllinn hefur til að
bera er eitthvað sem maður hefur
ekki séð áður hjá Lexus. Þeir eru
greinilega að leita í nýjar og spenn-
andi áttir. Enda var það svo að bíla-
blaðamenn um heim allan hafa grip-
ið andann á lofti þegar bíllinn hefur
verið kynntur og hreinlega ekki vit-
að hvaðan á sig stendur veðrið. Við
erum gríðarlega spennt fyrir þess-
um bíl.“
Þjónustuherferðir fyrir Toyota
Eins og Toyota-eigendur þekkja er
jafnan mikil og góð þjónusta við bíla
þeirra og Toyota á Íslandi slær þar
ekki af á haustmánuðum, eins og
Kristinn útskýrir. „Við erum með
tvær þjónustuherferðir til áramóta
og þar af er smurherferðin Smurt
er...í október þegar farin í loftið. Þar
duttum við í smá nostalgíu-
stemningu og fléttuðum að gamni
okkar gömlu bílnúmerunum saman
við, og spyrjum þar viðskiptavini
hvort þeir muni eftir gömlu bílnúm-
erunum og hvaða bæjarfélögum þau
tilheyrðu,“ útskýrir Kristinn.
„Seinni partinn í nóvember förum
við svo í aðra þjónustuherferð, og
hún verður með vetrarívafi þar sem
lögð er áhersla á að okkar fólk,To-
yota eigendur,verði með bílana sína
klára fyrir veturinn.“
jonagnar@mbl.is
Vinsælir bílar og góð þjónusta
Stemningin er ljómandi
góð hjá Toyota, að sögn
Kristins G. Bjarnasonar,
framkvæmdastjóra sölu
og markaðssviðs Toyota
á Íslandi.
Ríkulegur Toyota Auris hefur verið í boði með þremur mismunandi aukahlutapökkum.
Morgunblaðið/Eggert
Umsvif „Við höfum verið að setja nokkra nýja bíla á markað frá því í lok sumars og þeir hafa fengið hreint glimrandi við-
tökur,“ segir Kristinn G. Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Toyota á Íslandi. Nýi Aygoinn er einn þeirra.
Sívinsæll Frá fyrstu tíð hefur Yaris verið geysivinsæll og engin breyting varð þar á
þegar sá nýjasti var kynntur í september á þessu ári, enda fallegur og vel búinn.
Veglegur RAV-4 bauðst á haustdögum með rausnarlegum aukahlutapakka að verðgildi 430.000 kr.