Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
GTA V
Grand Theft Auto-leikjaserían snýst
jöfnum höndum um hraðskreiða bíla
og byssubardaga. Í þessum gríðar-
stóru leikjaheimum eru söguhetj-
urnar á stöðugum þeytingi á ógnar-
hraða í gegnum borgarlandslagið í
æsilegum eltingaleikjum við bæði
lögreglu og glæpona.
Með hverri viðbótinni við seríuna
hefur bílaflotinn orðið flottari og
hraðaksturinn skemmtilegri. Nýj-
asti leikurinn, GTA V, þykir engum
líkur og er leitun á betri afþreyingu
fyrir þá sem eru með bíladellu á háu
stigi.
Reyndar eru bílarnir í leiknum
ekki „alvöru“ heldur stílfærðar (og
stundum skopskældar) útgáfur af
þekktum merkjum. Sést vel á bíl-
unum hver fyrirmyndin er og eflaust
fóru höfundar leiksins þessa leið til
að þurfa ekki að eiga í löngum og
leiðinlegum samningaviðræðum við
bílaframleiðendur til að fá öll til-
skilin leyfi.
Þannig er Grotti Carbonizzare
greinilega stílfærð útgáfa af Ferrari
F12 Berlinetta og Truffade Adder,
merkilega líkur Bugatti Veyron.
Bílunum má breyta á alla mögu-
lega vegu, jafnvel mála í krómlitum
og breyta hljóðinu í bílflautunni.
Geta leikmenn komið sér upp heilum
flota af bílum og lagað þá svona til
eftir eigin höfði.
Og þar sem GTA V er einn stór
sandkassi eru uppátækjunum nán-
ast engin takmörk sett. Hafa þannig
margir spilarar leikið sér að því að
gera brellur og stökk sem virðast
nánast ómöguleg og setja skemmti-
legar upptökur af uppátækjunum á
YouTube.
Mario Kart 8
Fyrsti leikurinn í Mario Kart-
leikjasyrpunni kom á markað árið
1992. Eru Mario Kart-leikirnir í dag
orðnir samtals átta talsins, gerðir
fyrir bæði litlu og stóru leikjatölvur
Nintendo.
Eins og nafnið gefur til kynna er
pípulagningamaðrinn Mario og fé-
lagar hans í aðalhlutverki. Vondir
karlar og góðir, prinsessur og
skrímsli, koma saman á kappakst-
ursbrautinni og spana um á alls kyns
go-kart-farartækjum.
Leikurinn er hannaður með
yngstu spilarana í huga en hefur
reynst höfða vel til eldri spilara líka
enda framvinda leiksins í senn
fjörug og einföld.
Til að gera leikinn enn skemmti-
legri geta spilarar beitt allskonar
brellum í kappakstrinum. Með því
að fanga þar til gerð tæki sem liggja
á víð og dreif um kappakstursbraut-
ina má leggja gildrur fyrir aðra leik-
menn eða skjóta þá út af brautinni.
Nýjasta útgáfan, Mario Kart 8,
kom út fyrr á árinu og þar geta allt
að tólf manns keppt í einu yfir netið í
kappakstri þar sem má eiga von á
því að spana neðansjávar, fljúga á
svifdreka og bjóða þyngdaraflinu
birginn með þyngdarleysishjólum
undir körtunni.
Battlefield 4
Battlefield-leikirnir eru fyrst og
fremst skotleikir þar sem spilarar
eru settir í spor hermanna sem
Spanað um á tölvubílum
Kappakstursleikir hafa tekið miklum breytingum síðan fyrstu leikirnir af þessari
gerð komu fram á sjónarsviðið á 8. áratugnum.
Með hverju árinu verða leikirnir fullkomnari og um leið meira krefjandi. Í vönd-
uðustu leikjunum er hermt af mikilli nákvæmni eftir aksturseiginleikum alvöru
sportbíla og til að fara hringinn á góðum tíma dugar ekkert minna en aksturs-
hæfileikar sem Sebastian Vettel myndi vera stoltur af.
Ekki aðeins má í dag finna fjölda leikja þar sem raunveruleikastigið er hátt og
upplifunin nánast eins og að vera í miðjum Formúlu 1-kappakstri, heldur eru líka
ófáir leikir sem gera fagurfræði bifreiða góð skil og leyfa alls kyns tilraunir með
útlit bílsins sem og fínstillingar á vél, dekkjum og aukabúnaði.
Hér á eftir er listi yfir nokkra af þeim tölvuleikjum sem gert hafa bílum best skil.
Tryllt Í Need for Speed leikjunum er hægt að aka „alvöru“ bílum frá heimsins fínustu og dýrustu framleiðendum. Dodge Viper og McLaren MP4-12C etja kappi.
Flækjur TrackMania 2 leyfir spilurum að gera sínar eigin keppnisbrautir.
Ice scraping is a thing of
the past! With a Webasto
parking heater.
Enjoy the comfort and safety provided with a
parking heater and choose from different control
options with great useability.
www.parkingheater.com
T91 Thermo Call with AppHTM100
Aldrei að skafa!
MeðWebasto bílahitara.
Þú hitar bílinnmeðfjarstýringu og þannig
getur þú notið þæginda og öryggis.
BÍLASMIÐURINN HF
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
sími 567 2330
bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
www.bilasmidurinn.is
Thermo call með pp