Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 28

Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ Ekki ætti að hafa farið framhjá neinum að útivistarbakterían hef- ur breiðst hratt út á meðal lands- manna á undanförnum árum. Auknum útivistaráhuga fylgir góð sala á grindum til að ferja reið- hjól, skíði og snjóbretti. Magnús segir aukninguna ekki fara milli mála en salan dreifist nokkuð jafnt á milli toppgrinda og grinda sem festar eru á aftan við skottið. „Báðar útfærslurnar á grindum hafa sína kosti og galla. Getur stundum verið erfiðara að koma útivistartækjunum fyrir ofan á toppgrindunum en hins vegar eiga óhreinindi af vegunum auð- veldara með að komast í bún- aðinn ef hann er geymdur aftan á bílnum.“ Má ekki vanta grind fyrir skíði og reiðhjól Á rið 2007 rann Bílanaust ásamt Essó inn í N1. Við það hvarf vörumerki Bíla- nausts af sjónarsviðinu um nokkurra ára skeið og ekki fyrr en árið 2013 að rykið var dustað af þessu kunnuglega gamla merki og Bílanaust endurvakið í sinni upprunalegu mynd. „Stefnan er sú sama og áður: að vera með landsins mesta úrval af varahlutum og íhutum, olíum og hvers kyns bílavöru,“ segir Magnús Lárusson sölustjóri. Að sögn Magnúsar reyndist ekki nógu vel að hafa starfsemina undir hatti N1. „Varð samruninn til þess að fókusinn minnkaði og endaði loks með því að N1 seldi reksturinn vorið 2013.“ Í dag má finna sjö Bíla- nausts-verslanir sem dreifðar eru um alla landshluta. Er vöru- framboðið með mesta móti en Magn- úsi telst til að virk vörumerki á skrá séu um 60.000 talsins og lítil tak- mörk fyrir því hvað má sérpanta. „Við erum með varahluti fyrir allar tegundir bíla, hvort heldur frá Evr- ópu eða Ameríku,“ segir hann. Neytendur vanda valið Hefur salan aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Á meðan sala nýrra bíla er dræm og bílaflotinn eldist má reikna með að þessi þróun haldi áfram. Magnús segir Bílanaust einnig njóta góðs af því að neyt- endur eru orðnir meira vakandi fyrir því hvar finna má besta verðið. „Verðvitundin er orðin mjög sterk og í mánuði hverjum fáum við um 12.000 fyrirspurnir í síma. Fólk er greinilega að kynna sér málin vand- lega og vill nota viðurkenndar vörur í bílana sína.“ Landinn virðist líka hafa tamið sér að hugsa betur um bílinn og nefnir Magnús sem dæmi að sala á bætiefnum fyrir eldsneyti sé að styrkjast. „Vaxandi vinsældir dís- ilbíla eiga hlut í þessari þróun en í slíkum bílum er oft að finna sótsíur sem eiga það til að stíflast við venju- lega notkun. Þar til gerð bætiefni sem sett eru út í eldsneytið verka til þess að hreinsa þessar síur svo að vélin getur gengið eðlilega á ný.“ Að sögn Magnúsar mæla fram- leiðendur að jafnaði með því að slík- um hreinsandi bætiefnum sé bætt út í tank dísilbíla á 5.000 km fresti. „Er miðað við að ein flaska fari út í 50-60 lítra af eldsneyti, eða hér um bil full- an tank. Ef minna er í tankinum er enginn skaði skeður en blandan verður sterkari.“ Er einnig óvitlaust að setja bæti- efni út í tankinn til að vega á móti mögulegum skaðlegum áhrifum þess lífræna eldsneytis sem í dag er bætt út í bensínið. „Það getur gerst að gróður taki að myndast í þessum líf- ræna vökva og kann að geta stíflað eða þrengt leiðslur. Réttu bætiefnin drepa þennan gróður og hjálpa að halda tanki og vél hreinum,“ segir hann. „Sömuleiðis ætti að bæta réttu efnunum á tankinn á mótorhjólinu, sláttuvélinni, vélsleðanum og öðrum tækjum sem geta stundum staðið óhreyfð í langan tíma. Getur annars átt sér stað úrfelling úr eldsneytinu svo erfitt verður að gangsetja tækin á ný.“ Betri perur fyrir myrkrið Veturinn er alveg að bresta á og ekki seinna vænna að ganga úr skugga um að ökutæki heimilisins sé tilbúið að takast á við rökkrið og frostið. Magnús nefnir sérstaklega nýja gerð ljósapera frá Osram sem vert er að skoða: „Verkfræðingar ljósaperufram- leiðandans hafa smíðað bílaperu sem býr yfir óvenjulegum ljóseigin- leikum. Ljósið brotnar með öðrum hætti en ljós úr hefðbundnum perum og það þýðir að framljósin lýsa betur upp dökkt, blautt og endurkastandi malbik. Munar samt ekki miklu á verði þessara pera og annarra bíla- pera.“ Minnir Magnús líka á mikilvægi þess að smyrja læsingar og bera á gúmmífleti. „Gamla góða Rain-X gluggahreinsiefnið hjálpar líka alltaf til við að halda vætu af rúðunum og minnkar viðloðun íss svo auðveldara er að skafa. Einnig eigum við til nýja gerð sápu sem bætt er út í rúðu- vökvann, sem hreinsar betur, lengir líftíma þurrkublaðanna og skilur síð- ur eftir rákir.“ Þeir sem ekki kunna að gera mik- ið meira en að fylla á bensíntankinn þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur. Magnús segir starfsmenn Bíla- nausts meira en tilbúna að hjálpa til við einfalda ísetningu. „Það er ekki nema von að margir séu hikandi við að skipta um peru eða rúðuþurrkur enda verða bílarnir meira tæknilega fullkomnir og flóknir með hverju árinu. Svona smáviðvik leysum við hratt og vel og tökum ekkert auka- lega fyrir þjónustuna.“ ai@mbl.is Hugsa betur um bílinn sinn en áður Aukin sala á bætiefnum fyrir eldsneyti sem halda vélum og tanki hreinum. Neytendur vanda sig við saman- burðinn og fær Bíla- naust um 12.000 fyrir- spurnir í síma í hverjum mánuði. Ljósið brotnar með öðrum hætti en ljós úr hefð- bundnum perum og það þýðir að framljósin lýsa betur upp dökkt, blautt og endurkastandi malbik. Morgunblaðið/Golli Aðstoð „Það er ekki nema von að margir séu hikandi við að skipta um peru eða rúðuþurrkur enda verða bílarnir meira tæknilega fullkomnir og flóknir með hverju árinu,“ segir Magnús Lárusson. Starfsmenn Bílanausts aðstoða viðskiptavini við minniháttar ísetningar og skipti, t.d. á nýjum perum í fram- og afturjósin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.