Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Flugbílar hafa reglulega sést í vís-
indaskáldsögum og ævintýrum. Unn-
endur teiknimyndasagnanna um
Sval og Val muna t.d. eftir flug-
tækjum vísindamannsins Zorglúbbs.
Þau farartæki voru fyrst og fremst
gerð til flugs en gátu líka notað
vegakerfið ef svo bar undir.
Annar eftirminnilegur fljúgandi
bíll er DeLorean tímavélin úr Back
to the Futre kvikmyndunum. Doc
Brown bætti þar og breytti renni-
legum DeLorean sportbíl svo hann
gat ekki bara ferðast fram og til
baka í tíma heldur líka svifið í lausu
lofti.
Ekki síður eftirminnilegir eru flug-
bílarnir úr kvikmyndinni The Fifth
Element í leikstjórn Luc Besson.
Bruce Willis leikur þar leigubílstjóra
sem lendir í miklu ævintýri þegar
óvæntur farþegi birtist í aftursæt-
inu.
Gamall
draumur
D
raumurinn um fljúgandi
bíla virðist bráðum geta
orðið að veruleika. Hafa
alls kyns hugvitsam-
legar útfærslur á flug-
bílum litið dagsins ljós á und-
anförnum árum og sýnt að það
þarf alls ekki að vera ómögulegt
að búa til farartæki sem sameinar
kosti bíls og flugvélar.
Gallinn við tilrauna-flugbílana
sem sést hafa til þessa er hins
vegar að þeir eru einmitt svo mikl-
ar flugvélar og kalla því á að öku-
maðurinn búi yfir sömu færni og
þekkingu og flugmaður ef far-
artækið á að komast af öryggi á
áfangastað.
CNN greinir frá því að nú hefur
Evrópusambandið blandað sér í
málin og vill leggja sitt af mörkum
til að greiða fyrir þróun flugbíls
sem allir eiga að geta ekið.
Fíflaheldur flugbíll er það sem
þarf ef þetta farartæki framtíð-
arinnar á að geta umbylt sam-
gönguvenjum mannkyns.
Hefur verið efnt til fjögurra ára
verkefnis þar sem sex stofnanir
koma saman, ekki til þess að
hanna flugbíl heldur til að greina
þau vandamál og áskoranir sem
þarf að yfirstíga til að gera flug-
bíla að valkosti fyrir hinn almenna
ökumann.
Myndi þannig þurfa að hugsa til
enda hvernig mætti útfæra „hrað-
brautir“ í háloftunum, hvernig
mætti lenda flugbílunum örugglega
og án aðstoðar flugumferðarstjóra,
og ekki síður hvernig mætti láta
flugbílana tala saman sem eina
hjörð og forða þannig árekstrum.
Verður líka augljóslega að ein-
falda stjórntækin verulega. Venju-
legur ökumaður þarf eitthvað við-
ráðanlegra en þann aragrúa mæla
og hnappa sem finna má í stjórn-
klefum flugvéla og þyrlna.
ai@mbl.is
Hraðbrautir í háloftunum
Evrópusambandið
býr í haginn fyrir
fíflahelda flugbíla.
Fyrirsát Lögregubílarnir úr The Fifth Element minna helst á vígalegar blöðrur.
Klassík Flugbíllinn úr Back to the Future gat bæði svifið um loftið og ferðast fram og aftur í tíma.
Bbulgroz Vondi vísindamaðurinn Zorglúbb reynir alltaf að ferðast með stæl.