Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ | 31
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK,Bíldshöfða 9,KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata,HAFNARFJÖRÐUR,Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR,Krossmói 4, SELFOSS,Hrísmýri 7,AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngási 13
Sími: 535 9000www.bilanaust.is
VERTUVEL
UPPLÝSTUR
RAFGEYMAR
ÍÚRVALI!
RÚÐUVÖKVI
Bílanaust
rúðuvökvi,
2,5 l , -12°.
Vnr. A99 8300225
Gott verð!
490kr.
TJÖRU-
HREINSIR
1 lítri.
690kr.
Vnr. A99 830001
STPDIESEL
&BENSÍN
Innspýtingar-
hreinsir fyrir
bensín, 200ml
Innspýtingar-
hreinsir fyrir
diesel, með
anti-gel, 200ml.
1.290kr.
Vnr. 015 ST55200SC
015 ST53200SC
GÍRAÐUBÍLINNFYRIRHAUSTIÐ
ÞURRKUBLÖÐ
Í allar gerðir bíla og vörubíla.
GLERFILMA
Rain-X glerfilma,
200 ml, hrindir
frá sér vatni.
Vnr. 067 80199200
1.790kr.
Þ
egar ekið er um á fallegum bíl
er agaleg synd að vera ekki
glæsilega til fara. Ef bíllinn
er mjög kröftugur og bensín-
fóturinn þungur getur líka verið gam-
an að velja fatnað sem getur hjálpað
til við að bæta aksturinn.
Hér eru nokkrar flíkur sem ættu
að vera til í fataskáp bílaáhuga-
mannsins.
Jakkinn úr Drive
Ryan Gosling sýnir sínar bestu hliðar
í kappaksturs-spennumyndinni Drive
frá árinu 2011. Þar leikur hann hæfi-
leikaríkan ökumann sem hefur auka-
tekjur af því að koma glæpamönnum
hratt og örugglega undan laganna
vörðum.
Áberandi í myndinni er glæsilegur
hvítur jakki sem aðalsöguhetjan
klæðist nánast allan tímann. Töff-
araleg flík í meira lagi með útsaumað-
an gylltan sporðdreka á bakinu.
Finna má eftirlíkingu af jakkanum
á Amazon.com og kostar þar um 110
dali.
Aksturshanskar frá Dents
Í árdaga einkabílsins voru vandaðir
leðurhanskar nauðsynlegir til að ná
góðu gripi á stýrinu. Í dag eru stýrin
svo létt að varla þarf að nota nema
litlafingur til að breyta um stefnu og
farþegarýmið er heitt og notalegt svo
engum þarf að vera kalt á fingrunum.
Samt þykir sumum ómissandi að
setja á sig aksturshanska áður en
haldið er af stað, þó ekki væri nema
til að komast í rétta hugarástandið.
Þetta eru hanskar sem falla þétt að
hendinni og hafa óneitanlega ákveð-
inn karlmannlegan sjarma. En ekki
gleyma að taka hanskana af um leið
og stigið er út úr bílnum. Þeir þykja
nefnilega stundum hjákátlegir ef not-
aðir annars staðar en sitjandi undir
stýri.
Hanskarnir hér til hliðar eru frá
Dents og kosta 70 evrur í netverslun
MrPorter.com.
Ökuskór frá Car Shoe
Fátt skiptir meira máli við nákvæmn-
isakstur en góð snerting á milli iljar,
bremsu og bensíngjafar. Góðir öku-
menn vita að ekki dugar að klæðast
hvaða skóm sem er þegar sýna þarf
hvers bíllinn er megnugur.
Árið 1963 fékk ítalinn Gianni Mos-
tile einkaleyfi á nýrri gerð af skóm
sem hann hafði hannað gagngert með
þarfir ökumannsins í huga.
Hafði hann smíðað mokkasíu með
gúmmíbólum á sólanum sem gáfu
rétta gripið og um leið rétta sveigj-
anleikann fyrir næma snertingu og
óhefta hreyfingu.
Prada eignaðist fyrirtækið árið
2001 og komst Car Shoe þar með
rækilega á kortið sem lúxus-
skóframleiðandi.
Er erfitt að velja fallegustu skóna
úr öllu framboðinu. Enginn ætti þó að
verða svikinn af þessum fallegu
grænu ökuskóm hér til hliðar. Kosta
þeir 295 evrur á CarShoe.com.
ai@mbl.is
Fyrir hinn vel klædda ökumann
Í árdaga einkabílsins voru
vandaðir leðurhanskar
nauðsynlegir til að ná góðu
gripi á stýrinu. Í dag eru
stýrin svo létt að varla þarf
að nota nema litlafingur til
að breyta um stefnu.
Hanskar til að grípa fast um
stýrið, skór til að stíga á
bensíngjöfina og jakki með
gylltum sporðdreka til að sá
í gegn. Þá vantar bara
sportbílinn.