Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ | 35
hólmi og fær vélar frá Jagúar. Hægt
verður að fá hann með fjöðrun sem
breytir eiginleikum demparavökv-
ans með rafstraumi. Bíllinn verður
kynntur blaðamönnum frá öllum
heimshornum á Íslandi og hefst sú
kynning strax í næsta mánuði.
Vitara orðinn jepplingur
Nýr Suzuki Vitara var frum-
sýndur í París og byggist hann
greinilega mikið á iV-4 tilraunabíln-
um sem sýndur var í Frankfurt í
fyrra. Vitaran er nú ekki lengur
jeppi í eiginlegum skilningi orðsins
heldur mun hann verða fáanlegur
bæði sem framhjóladrifsbíll og fjór-
hjóladrifsbíll, með sama fjór-
hjóladrifi og í boði er í nýjum S-
Cross. Vélarnar verða einnig þær
sömu og í S-Cross, 1,6 lítra bensín-
og dísilvélar. Bíllinn fer í framleiðslu
snemma á næsta ári svo að vænta
má að hann komi á markað síðsum-
ars hér á landi.
Sparneytinn Volvo XC90
Volvo XC90 vakti mikla athygli á
básnum sínum í París og ekki síst
þegar fyrstu mennirnir uppá svið til
að skoða hann var hópur tækni-
manna frá Volkswagen með mál-
bönd og myndavélar. Hann er vel
búinn öryggisbúnaði og verður sjö
sæta. Vélarnar verða D4 dísilvél-
arnar auk nýju T8 tvíburavélarinnar
sem parar saman bensínvél og raf-
mótor sem saman skila 394 hest-
öflum en eyða aðeins 2,6 lítrum á
hundraðið.
Fjölhæfur Fiat
Fiat frumsýndi nýjustu Melfi af-
urð sína sem er 500X jepplingurinn.
Hann mun keppa við bíla eins og
Nissan Juke og Renault Captur og
verður í boði með nokkrum gerðum
dísilvéla, frá 1,3 – 2,0 lítra. Eins
verða tvær bensínvélar í boði, 1,6
lítra 140 hestafla vél og 1,4 lítra vél
með forþjöppu sem skilar 170 hest-
öflum. Fjöldi skiptinga verður einn-
ig í boði, sex gíra beinskipting, hálf-
sjálfskipting með tvöfaldri kúplingu
og níu þrepa sjálfskipting. Hægt
verður að fá hann með framdrifi eða
fjórhjóladrifi.
Rúmbetri Sorento
Evrópugerð Kia Sorento var
frumsýnd með pomp og prakt í Par-
ís. Bíllinn er rúmbetri en áður og
sem dæmi má nefna 17% meira pláss
í farangursrýminu en áður. Þrjár
vélar verða í boði sem áður, 2,4 lítra
bensínvélin, auk tveggja dísilvéla,
tveggja lítra 182 hestafla vélar og
hinnar vinsælu 2,2 lítra 197 hestafla
vélar. Bæði fimm og sjö sæta út-
gáfur verða fáanlegar þegar hann
kemur á markað á næsta ári.
njall@mbl.is
Porsche Cayenne í tengiltvinnútgáfu var frumsýndur í París en hann er samtals
416 hestöfl þegar bæði V6 bensínvélin og 93 hestafla rafmótorinn vinna saman.
Glæsivagn Nýr Land Rover Discovery Sport verður uppfullur af tækninýjungum.
Vísbendingar Andlitslyfting Mitsubishi Outlander PHEV gefur innsýn í hvernig
nýtt útlit nýs Outlander verður þegar hann kemur fram á sjónarsviðið á næsta ári.
Framúrstefna Toyota C-HR tilraunabíllinn er bíla eins og Honda HR-V og Nissan
Juke en í París var hann aftur á móti sýndur með innmat út Prius tvinnbílnum.
Alvöru Þótt Ssangyong XIV sé tilraunabíll er þess skammt að bíða að hann nái
framleiðslustigi. Hann kemur á markað í Kóreu snemma á næsta ári.