Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 38
38 | MORGUNBLAÐIÐ
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
B
ílamarkaðurinn er að
styrkjast um þessar
mundir, hann er búinn að
vaxa yfir 30% á árinu og
50% í september. Hjá
Brimborg er aukningin 92% í sept-
ember svo við getum ekkert kvart-
að,“ segir Egill Jóhannsson, for-
stjóri Brimborgar sem hefur verið
að sækja í sig veðrið og útlitið hjá
umboðinu er gott því þangað eru að
berast fjölmargar og einstaklega
áhugaverðar bílnýjungar í vetur og
fram á næsta vor.
Egill segir að sér sýnist söluaukn-
ingin ætla halda áfram líka á næsta
ári hjá Brimborg. „Það verður líka
vöxtur hjá okkur því margar og
miklar nýjungar eru á leiðinni,“ seg-
ir Egill en Brimborg er með umboð
fyrir fjórar bíltegundir; Volvo, Ford,
Mazda og Citroën. Hann var beðinn
að skýra frá því helsta sem fram-
undan er hjá umboðinu.
„Ef við byrjum á Citroen þá eru
tvær nýjungar þaðan á leiðinni á
fyrsta fjórðungi næsta árs. Annars
vegar Citroën C1, lítill og léttur
borgarbíll, mjög sparneytinn, sem
verður á góðu verði. Hins vegar er
það stóra nýjungin, Citroën C4 Cac-
tus. Það er mjög áhugaverður bíll og
kannski aðeins öðruvísi en gengur
og gerist. Þetta er fjölskyldubíll,
meðalstór, rosa sparneytinn, með
eyðslu upp á aðeins kringum fjóra á
hundraðið. Þess má geta, að Citroën
boðar nýtt afbrigði af honum síðar
sem fer með aðeins tvo lítra á hund-
raðið. C4 Cactus verður á mjög góðu
verði. Þeir hjá Citroën hafa verið að
höfða til fjölskyldunnar með þessum
bíl með hagkvæmni að leiðarljósi og
taka úr honum óþarfa lúxus,“ segir
Egill.
C4 Cactus hefur hlotið lof fagrita
og bílablaðamanna í Evrópu und-
anfarnar vikur og mánuði. Óskir og
kröfur kaupenda til bíla eru stöð-
ugum breytingum undirorpnar og
það öllu hraðari í seinni tíð. Citroën
kveðst hafa reynt að fanga þessa
þróun með C4 Cactus sem sagður er
hannaður með þægindi og notagildi í
huga og ekki síst rekstrarhag-
kvæmni. Og óhætt er að segja, að
stílfagur bíllinn með flæðandi mjúk-
um línum skeri sig úr öðrum bílum í
hinni hörðu samkeppni sem ríkir í C-
stærðarflokknum. Þar er ekki leng-
ur allt keimlíkt.
„Svo er það Volvo, sem er það
merki sem vaxið hefur mest af fimm
helstu lúxusbílaframleiðendum
heims í ár. Þar er stærsta nýjungin
nýi jeppinn, Volvo XC90, sem er
mjög spennandi. Hann kemur til Ís-
lands í apríl. Þar er á ferðinni sjö
sæta bíll, alveg splunkunýr frá
grunni. Hann verður með nýjar
bensínvélar og nýjar dísilvélar og
kemur líka í svokallaðri plug-in út-
Hver nýjungin rekur aðra á fjörur
Útlitið hjá Brimborg er
gott því þangað eru að
berast fjölmargar og
einstaklega áhugaverð-
ar bílnýjungar í vetur og
fram á næsta vor.
Frábrugðinn Citroën C4 Cactus. Stílfagur bíllinn með flæðandi mjúkum línum sker sig úr frá öðrum bílum.
Töffari Mazda MX-5 er vin-
sælasti sportbíll heims en
hann kemur í nýrri útgáfu til
Íslands á næsta ári.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að
svokallaðir „kaffi-reiserar“ eru heitasta
heitt meðal unnenda fagurra mótorfáka.
Afturhvarfið ræður ríkjum og gamli tím-
inn er í hávegum hafður. Þó er ekki þar
með sagt að aflið þurfið að vanta. Alltént
ekki þegar séníin hjá Deus Ex Machina fá
að ráða. Þetta gullfallega og um leið
reffilega hjól nefnist The Hunter Gat-
herer og hlýtur að teljast meðal drauma-
hjóla þeirra sem aðhyllast kaffi-reiser
kúltúrinn. Það er málið í svörtum lit með
Að veiða eða vera veiddur