Morgunblaðið - 24.11.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af hádeginu
Gríptu með þér
eitthvað gott
Frjálsíþróttasamband Íslands efndi í gær til
spretthlaupskeppni, Kringluspretts, þar sem
helstu spretthlauparar landsins í bland við
fræga einstaklinga öttu kappi. Um er að ræða
fjáröflun á vegum sambandsins og voru af því til-
efni lagðar tvær sextíu metra hlaupabrautir í
Kringlunni. Samhliða gátu gestir og gangandi
fengið að hlaupa gegn vægu gjaldi.
vidar@mbl.is
Frægir og fráir á fullri ferð í Kringlunni
Morgunblaðið/Golli
Frjálsíþróttasamband Íslands efndi til spretthlaupskeppni í verslunarmiðstöð
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við höfum setið töluvert eftir frá því að hrunið
varð og miðað við stöðuna eins og hún er í dag er-
um við ekki samkeppnisfær um laun,“ segir Finn-
björn A. Hermannsson, for-
maður Byggiðnar og
fyrrverandi formaður Samiðn-
ar, um stöðuna í byggingar-
greinum hér á landi. Hann bæt-
ir þó við að miðað við
verkefnastöðuna sé von á bjart-
ari tímum í byggingargreinum
hér á landi. Finnbjörn vekur
jafnframt athygli á því að þeir
byggingarmenn sem flutt hafa
til Noregs á síðustu árum hafi
enn sem komið er ekki skilað sér heim.
„Þá skiptir máli hvaða laun eru greidd og hvað
íslensk fyrirtæki gera. Það skiptir máli hvort þau
leiti til erlends vinnuafls sem hægt er að fá á ódýr-
ari launum, þrátt fyrir að vitað sé að það sé ekki í
öllum tilfellum með full réttindi, eða hvort menn
hækki launin almennilega og fái íslenska iðnaðar-
menn til baka,“ segir hann.
Finnbjörn kveðst þó ekki ætla að nefna neinar
tölur varðandi það hversu mikið launin þurfi að
hækka.
„Við erum markaðslaunafólk og hækkunin er
bara eitthvað sem markaðurinn þarf að finna út
úr. Það þarf þó að gefa í varðandi þessi launamál.
Þá er maður aðallega að hugsa um launataxtana.
Sem betur fer erum við töluvert fyrir ofan launa-
taxta en launataxtar þurfa að fylgja raunlaunum
og launataxtarnir bjóða upp á að það sé verið að
bjóða lakari laun en við kærum okkur um. Þá er ég
að tala um erlenda vinnuaflið,“ segir hann jafn-
framt.
Kjarasamningar eftir áramót
„Þetta eru bara hugleiðingar varðandi komandi
kjarasamninga. Það verður væntanlega ekki farið
í þá fyrr en eftir áramót, samningar renna nátt-
úrlega ekki út fyrr en í febrúar. Ég hugsa að menn
fari ekki að tala um launatölur fyrr en þá,“ segir
Finnbjörn að lokum.
Ekki samkeppnisfær um laun
Byggingarmenn sem flutt hafa til Noregs á síðustu árum hafa ekki skilað sér
heim Formaður Byggiðnar segir launataxtana bjóða upp á of lág laun
Morgunblaðið/Kristinn
Framkvæmdir Formaður Byggiðnar á von
á bjartari tímum í byggingargreinum.
Finnbjörn A.
Hermannsson
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta segir okkur að kvikukerfið
undir Bárðarbungu er sennilega
flóknara en menn héldu fyrst,“ segir
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur, en bráðabirgðanið-
urstöður nýrra jarðskjálftamælinga
í Bárðarbungu benda til þess að
kvika sé nær yfirborðinu en talið hef-
ur verið til þessa. Virðast skjálftarn-
ir vera á um eins til þriggja kíló-
metra dýpi í stað fimm til átta.
Magnús Tumi segir niðurstöður
bergfræðiathugana á þeirri kviku
sem upp kemur í Holuhrauni benda
til þess að kvikan sé komin af veru-
legu dýpi, eða minnst níu kílómetr-
um. Þá benda rannsóknir einnig til
þess að botninn á öskju Bárðar-
bungu, sem sigið hefur að undan-
förnu, sé fremur þunnur.
„Það eru vísbendingar um það að
kvikukerfið sé býsna þykkt og sam-
tengt. Og sú kvika sem nú flæðir
fram í Holuhrauni sé ekki kvikan
sem liggur efst í hólfinu undir Bárð-
arbungu heldur úr neðri hluta þess,“
segir Magnús Tumi.
Stærsta eldgos í 200 ár
Þegar upp er staðið segir Magnús
Tumi atburðarás þessa koma til með
að varpa skýrara ljósi á ýmis álita-
mál. „Við erum að sjá öskjusig í
fyrsta skipti síðan mælitæki komu til
sögunnar, hvernig stór megineldstöð
tengist meiriháttar gliðnunarhrinu í
gosbelti á Íslandi og hvernig stór
flæðigos verða til, en þetta [Holu-
hraun] er stærsta gos sem komið
hefur á Íslandi í 200 ár.“
Kvikukerfi Bárðarbungu
er flóknara en talið var
Morgunblaðið/RAX
Eldsumbrot Enn heldur áfram að
gjósa við eldstöðina í Holuhrauni.
Kvika liggur
nær yfirborðinu
Verkfallsaðgerðir
lækna halda
áfram í dag þegar
störf verða lögð
niður á aðgerða-
sviði og flæðisviði
Landspítalans. Á
aðgerðasviði eru
t.a.m. svæf-
ingalæknar og
það mun hafa
áhrif á skurð-
lækningar, sem ekki verður hægt að
framkvæma. Á flæðisviði er bráða-
móttakan í Fossvogi og munu að-
gerðirnar setja svip á starfsemina
þótt eftir sem áður verði haldið uppi
neyðarþjónustu á bráðadeildinni.
„Þessar aðgerðir munu að sjálf-
sögðu lengja biðlista. Fólk mun
væntanlega fá hægari afgreiðslu á
bráðamóttöku og svo verður skert
þjónusta á göngudeildum á borð við
öldrunardeild og endurhæfingar-
deild,“ segir Þorbjörn Jónsson, for-
maður Læknafélags Íslands.
Hann segir að ekkert hafi þokast í
samningaviðræðum. Síðasti fundur
var á föstudag en stefnt er á næsta
samningafund á morgun. „Þetta er
fast í sama hjólfarinu. Það hafa verið
rædd tæknileg atriði en ekkert til-
boð komið fram,“ segir Þorbjörn.
Hann segir engan bilbug á læknum
og samstaða hafi ekkert látið á sjá
þennan mánuð sem liðinn er frá því
verkfallsaðgerðir hófust. „Við þekkj-
um það að utan sem og frá öðrum
vinnudeilum hér á landi að ef kemur
til verkalls þá á það til að vera lang-
varandi. Við vitum það og höfum all-
an tímann verið búin undir að svo
gæti farið,“ segir Þorbjörn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra tilkynnti í vikunni
að til stæði að auka framlög til heil-
brigðismála. Þorbjörn fagnar því.
„Það er bæði gott og nauðsynlegt og
við fögnum framtaki ríkisstjórn-
arinnar. En við þurfum að sjá ná-
kvæmara innihald á því í hvað þessi
auknu framlög fara,“ segir hann.
Enginn
bilbugur
á læknum
Þorbjörn
Jónsson
Aukin framlög
fagnaðarefni
Morgunblaðið/Árni Sæberg