Morgunblaðið - 24.11.2014, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við hafið Selma og Magnús utan við Retro á Granda þar sem gott er að horfa til hafs og fylgjast með bátum.
sjálf beint af manni sem heitir Rafael
Raoul. Okkur langaði líka að bjóða
upp á gæðakaffi og spurðum hvort
hann gæti reddað því. Hann hélt það
nú, sagði að vinur sinn væri með
besta kaffi í heimi, ítalskt kaffi sem
heitir Bonomi. Þessi ágæti Móna-
kóbúi fékk þennan vin sinn til að
hringja í okkur og hann kom hingað
til lands og heimsótti okkur og þetta
steinlá. Þessi viðskipti voru sam-
þykkt með handabandi og við höfum
verið með umboð fyrir Bonomi kaffið
allar götur síðan. Við heimsóttum
fyrirtækið til Ítalíu á sínum tíma og
fengum að sjá kaffibrennsluna og allt
ferlið. Við seljum tíu tegundir bauna
hér á Retro og salan í þeim hefur
aukist mikið, margir gera sér sér-
staka ferð utan af landi til okkar til að
fá þessar baunir.“
Magnús er gallharður Rolling Stones-aðdáandi og fullyrðir hiklaust: „Þeir
eru bestir, þannig er það bara. Ég rétt missti af því að sjá þá árið 1973 en
ég sá þá í fyrsta skipti árið 1976 í London, þá kostaði miðinn ekki nema
tvö pund. Þetta var sautján þúsund manna staður og þótti rosalega stórt
þá. Ég hef séð þá fimm sinnum, síðast í Hollandi. Þeir eru ódauðlegir og
geta ekki hætt. Þetta eru rosalegir listamenn, endurnýja sig alltaf og
toppa sig í hvert sinn sem ég sé þá á tónleikum. Það verða einhverjir
galdrar þegar þeir koma saman,“ segir Magnús og bætir við að hann
langi til að stækka kaffihúsið til að geta boðið upp á lifandi tónlist, enda
séu margir fastakúnnanna tónlistarmenn.
Rolling Stones-aðdáandi
GALDRAR Á SVIÐI
Ódrepandi Á tónleikum í fyrra í Los Angeles,
Það er alltaf gaman að fylgjast með
ungu og upprennandi fólki og sjá
hvað það er að gera. Æska þessa
lands er stútfull af frumlegum hug-
myndum og sköpunarkraftur henn-
ar er mikill. Endilega kíkið á skúlp-
túrsýningu í Gallerí Tukt í
Pósthússtræti 3-5, þar sem nem-
endur í skúlptúráfanga á listnáms-
braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
sýna afrakstur námsins. Þetta eru
fimmtán krakkar sem hafa búið til
gríðarlega fjölbreytt verk og efn-
iðviðurinn er sannarlega marg-
breytilegur.
Sýningin stendur til 6. janúar og
er opin á virkum dögum frá kl. 9-17
og á laugardögum frá kl. 1-17.
Gallerí Tukt iðar af lífi
Morgunblaðið/Ernir
Gallerí Tukt Þar er alltaf líf og fjör, ungt fólk við opnun listasýningar 2010.
Skúlptúrsýning nemenda
Hugleiðsla er nokkuð
sem stressaðir vestrænir
nútímamenn ættu hik-
laust að kynna sér og
reyna að tileinka sér. Og
nú er lag, því Bras-
ilíumaðurinn Ashirvad
Zaiantchick heldur
ókeypis hugleiðslu-
námskeið í kvöld í Sri
Chinmoy-miðstöðinni, Ár-
múla 22, kl. 19.30.
Ashirvad, sem lærði
hugleiðslu hjá andlega
meistaranum Sri
Chinmoy fyrir um 20 ár-
um, hefur ferðast víða
um heiminn til að kynna
hugleiðslu og ávinning-
inn af því að stunda
hana. Sjálfur hefur As-
hirvad reynslu af því
hvernig hugleiðsluiðkun
hans sjálfs gjörbreytti
stemningunni á vinnu-
stað hans til hins betra.
Ashirvad mun kynna
margar mismunandi aðferðir til að
hugleiða; bæði í þögn og með tón-
list og möntrum og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi. Ekki er
nauðsynlegt að hafa kynnt sér hug-
leiðslu fyrir námskeiðið. Eftir kynn-
inguna í kvöld verður boðið upp á
ókeypis framhaldsnámskeið með
Ashirvad.
Sri Chinmoy (1931-2007) heim-
sótti Ísland sex sinnum og hélt m.a.
tvenna friðartónleika í Háskólabíói.
Hann tók aldrei gjald fyrir kennslu
sína, tónleika eða fyrirlestra og er
það hefð sem nemendur hans hafa
viðhaldið.
Skráning á námskeiðið er í hljóð-
færaversluninni Sangitamiya, Grett-
isgötu 7, s. 551-8080. Einnig er
hægt að hafa samband við Torfa
Leósson í s. 697-3974. Nánari upp-
lýsingar um hugleiðslunámskeið Sri
Chinmoy-miðstöðvarinnar er að
finna á heimasíðunni hugleidsla.org.
Sri Chinmoy-miðstöðin á Íslandi
var stofnuð árið 1974 og hefur allar
götur síðan boðið upp á ókeypis
hugleiðslunámskeið, sem þúsundir
Íslendinga hafa sótt.
Vefsíðan www.hugleidsla.org
Framandi Ashirvad við harmóníum, indverskt
hljóðfæri sem hann ætlar að nota á námskeiðinu.
Ókeypis hugleiðslunámskeið
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sveigjanleg starfslok
og atvinnumál 60 ára og eldri
RÁÐSTEFNA › Hótel Natura › þriðjudagur 25. nóv 2014 › kl 13:30-15:40
DAGSKRÁ
13:30 Setning: Þórey S. Þórðardóttir
framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
13:40 Ávarp: Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra
13:55 Má ég – Get ég – Vil ég?
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
formaður Landssambands eldri borgara
14:10 Kiknar vinnandi fólk undan ellibyrðinni?
Miðað við áætlaða hlutfallslega breytingu
úr 6:1 í 2:1 á 40 árum. Hannes G. Sigurðsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
14:25 Er hægt að gera nýja kynslóðasátt?
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands
14:40 ,,Ég vona bara að ég verði ekki settur einhvers
staðar í að skrúfa númeraplötur á bíla“.
Rannsókn á því hvað hvetur miðaldra og eldra fólk
í starfi og stuðlar að starfsánægju þess. Jóna Valborg
Árnadóttir,MS í mannauðsstjórnun.
14:55 Hvernig gerum við eldra fólk samkeppnishæfara
á vinnumarkaði? Jón H. Magnússon, lögfræðingur
15:10 Pallborðsumræður frummælenda
15:40 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri: Pétur Magnússon,
formaður Öldrunarráðs Íslands
ALLIR VELKOMNIR - AÐGANGURÓKEYPIS