Morgunblaðið - 24.11.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Önnur
þjónusta
Dekk Púst Smurning Bremsur Fjöðrun Rafgeymar
Jólin koma snemma í BJB
Pústþjónustunni
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is | Opið: mánud. til fimmtudaga kl. 8:00 - 18.00, föstudaga kl. 8:00 - 16:30
Fellum niður vörugjöld af
dekkjum og gott betur á
meðan birgðir endast.
Við bjóðum allt að
40%
afsláttaf völdum stærðumsjá bjb.is
BJB bíður úrval góðara dekkja á góðu verði fyrir veturinn frá
Vredesein, Apollo og Federal öll þjónusta á staðnum
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Harðir bardagar geisa nú á milli
vígamanna samtaka ISIS, Ríkis ísl-
ams og íraska hersins í miðborg Ra-
madi, höfuðborg Anbar-héraðs í
Írak. Hersveitir njóta liðsinnis vopn-
aðra manna úr röðum ættbálka hér-
aðsins. Greint er frá því á fréttavef
CNN að einkum sé nú barist í
grennd við stjórnsýslubyggingar
borgarinnar.
Átökin hófust síðastliðinn föstu-
dag þegar hópar vígamanna hófu
samtímis nokkrar árásir víðsvegar í
borginni. Að sögn Faleh al-Issawi,
háttsetts embættismanns þar í borg,
er nú barist um 300 metra frá þeirri
stjórnsýslubyggingu sem m.a. hýsir
höfuðstöðvar öryggissveita. „Ef við
missum yfirráð yfir byggingunni
missum við um leið stjórn á hér-
aðinu,“ segir al-Issawi í samtali við
fréttamenn CNN.
Tölur yfir mannfall eru nokkuð á
reiki en að sögn al-Issawis er búið að
finna jarðneskar leifar 35 manna,
þar af 12 vígamanna. Lögreglustjór-
inn í al-Habaniya, sem er skammt
frá borginni Ramadi, og þrír lífverðir
hans eru á meðal þeirra sem létust
við upphaf átakanna.
Franskar herþotur gegn ISIS
Að undanförnu hafa Bandaríkin
og bandamenn þeirra gert fjölmarg-
ar loftárásir á skotmörk sem tengj-
ast liðsmönnum Ríkis íslams í Írak
og gerðu orrustuflugvélar Banda-
ríkjahers m.a. tvær loftárásir nærri
Ramadi síðastliðinn föstudag.
Manuel Valls, forsætisráðherra
Frakklands, tilkynnti í gær að sex
orrustuþotur, af gerðinni Mirage
2000D, yrðu sendar til Jórdaníu á
næstu dögum. Munu þoturnar taka
þátt í loftárásum á liðsmenn Ríkis
íslams, en Frakkar eru nú þegar
með níu orrustuþotur staðsettar í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um. „Alla daga, alls staðar í heim-
inum, sýnir her okkar getu sína í
þágu Frakklands,“ sagði Valls í
ávarpi sem hann flutti í Niamey, höf-
uðborg Níger, en hann sótti borgina
heim til að sýna stuðning sinn við
baráttuna gegn hryðjuverkum.
Berjast við
ISIS af hörku
Frakkar senda sex Mirage-þotur
Barist gegn ISIS
» Í september sl. hóf franski
herinn loftárásir á liðsmenn
Ríkis íslams í Írak.
» Frakkar voru fyrstir þjóða til
að taka þátt í baráttu Banda-
ríkjamanna gegn samtökunum
með loftárásum.
» Sex Mirage-orrustuþotur
munu á næstunni aðstoða níu
Rafael-þotur við loftárásir á
vígamenn Ríkis íslams.
Brak malasísku farþegaþotunnar MH17 hefur verið fjarlægt þaðan sem
vélin brotlenti í júlí síðastliðnum eftir að hafa verið skotin niður yfir Úkra-
ínu. Fréttaveita AFP greinir frá því að nú sé verið að flytja brakið til borg-
arinnar Kharkiv, en því næst verður það flutt til Hollands til rannsóknar.
Alls voru 298 manns um borð í farþegaþotunni þegar henni var grandað.
AFP
Brak vélarinnar fjarlægt
Hans-George
Maassen, yfir-
maður þýsku
leyniþjónust-
unnar, segir að
um 60 þýskir rík-
isborgarar, sem
barist hafa með
liðsmönnum Rík-
is íslams í Írak og
Sýrlandi að und-
anförnu, hafi
fallið í átökum. Af þessum 60
frömdu níu sjálfsmorðsárásir.
Fréttaveita AFP hefur það eftir
Maassen að þátttaka þessara
manna sé dapurlegur vitnisburður
um þann árangur sem Ríki íslams
hefur náð í áróðursstríði sínu. Talið
er að um 550 Þjóðverjar hafi geng-
ið til liðs við samtökin.
ÞÝSKALAND
60 Þjóðverjar fallið
fyrir Ríki íslams
Vesturlandabúar
berjast með ISIS.
Minnst fjörutíu
létust þegar
sjálfsvígs-
sprengjumaður
sprengdi sjálfan
sig í loft upp á
fjölmennu blak-
móti í austur-
hluta Afganist-
ans í gær.
Fréttaveita AFP
greinir frá því að
árásarmaðurinn hafi látið til skarar
skríða þar sem hann var staddur á
meðal fólks sem hugðist fylgjast
með mótinu. Talið er að um 50 til
viðbótar hafi særst í ódæðinu.
AFGANISTAN
Blakmót skotmark
sprengjumanns
Lögreglumaður
á verði í Kabúl.