Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 280. tölublað 102. árgangur
FEGURÐ Á
KOSTNAÐ
REGNSKÓGA?
HEF EKKERT
TIL AÐ VERA
BITUR YFIR
SINDRI ELDON 62PÁLMAOLÍA 10
Vífilsstaðir og Smárinn
» Fjárfestar sýna því nú áhuga
að byggja upp heilsutengda
starfsemi við Skógarlind í
Kópavogi og við Vífilsstaði.
» Umrædd verkefni myndu
kosta milljarða í framkvæmd.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjöldi fjárfesta og verktaka hefur
sýnt áhuga á að taka þátt í mikilli
uppbyggingu í Garðabæ næstu ár.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, segir í undirbúningi að
tvöfalda íbúafjöldann, úr ríflega 14
þúsundum í um 30 þúsund árið 2030.
Það kalli á byggingu 5 þúsund
íbúða fyrir 175 milljarða. Því til við-
bótar komi skólar og aðrir innviðir
sem slík íbúafjölgun kallar á.
Gunnar segir mikla uppbyggingu í
undirbúningi og veltir hann því fyrir
sér hvort eftirspurn verði eftir öllum
þeim íbúðum sem ráðgerðar eru.
„Nú er rosalega mikið í pípunum
og spurning hvort eftirspurn sé eftir
þessu öllu. Verktakar eru ekki að
tala saman. Þeir eru hver á sínum
báti. Það er eins með sveitarfélögin,“
segir Gunnar sem kallar eftir sam-
vinnu sveitarfélaga um hönnun um-
ferðarmannvirkja.
Þá staðfestir Gunnar að fleiri en
einn hópur fjárfesta hafi sýnt áhuga
á að reisa skurðstofur og hótel fyrir
heilsutengda starfsemi við Vífils-
staði.
MStefnt að tvöföldun »12
175 milljarða uppbygging
Bæjarstjórn Garðabæjar undirbýr tvöföldun íbúafjöldans í 30 þúsund íbúa
Byggja þarf 5 þúsund íbúðir Fjárfestar vilja reisa skurðstofur á Vífilsstöðum
Stækkun flugstjórnarmiðstöðvar Isavia er hafin en
gert er ráð fyrir að opna 2.800 fermetra viðbyggingu
seint á næsta ári. Umsvifin fara vaxandi ár frá ári en
gert er ráð fyrir að 15% fleiri flugvélar fljúgi um ís-
lenska flugstjórnunarsvæðið í ár. Þeir voru reffilegir,
verktakarnir sem settu byggingarkrana saman og tóku
þar með fyrsta skrefið í ört stækkandi starfsumhverfi
Isavia. benedikt@mbl.is
Krani settur upp vegna stækkunar
Morgunblaðið/Golli
Ríkisútvarpið er nálægt því að
ganga frá leigusamningi til langs
tíma, þar sem tvær efstu hæðir Út-
varpshússins verða leigðar út. Þetta
hefur Morgunblaðið fengið staðfest.
Búist er við að hægt verði að kynna
samninginn og hver leigutakinn er í
næstu viku.
Í ársreikningi Ríkisútvarpsins sem
birtur var í gær kemur fram að tap á
rekstrinum var 271 milljón kr. eftir
skatta á síðasta rekstrarári. Í nið-
urlagi hans kemur fram ósk frá
stjórn RÚV um að útvarpsgjald verði
ekki lækkað eins og til stendur og að
það renni allt til stofnunarinnar. »4
Leigja út tvær hæðir
Fyrir stuttu birtist frétt á mbl.is
þess eðlis að lögreglan á Suður-
nesjum hefði stöðvað unga drengi
við að leika sér að því að hanga
framan á húddi bíls á ferð, sem
hefði getað endað illa.
Guðjón Jónasson lék sama leik
fyrir áratug, þá aðeins 17 ára gam-
all, en munurinn á ungu drengj-
unum í Keflavík og honum er sá að
Guðjón lenti undir bílnum, á 90 km
hraða. Guðjón segir sögu sína í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
„Maður var ekkert að pæla í því að
maður gæti dottið af. Þetta var
skemmtilegur leikur og maður fékk
mikið adrenalín út úr þessu. Við
vorum ungir og vitlausir og ekki
datt mér í hug að eitthvað svona
gæti komið fyrir mig,“ segir Guð-
jón í viðtali.
Læknar töldu það kraftaverk að
Guðjón skyldi lifa slysið af. Næst-
efsti hryggjarliðurinn brotnaði, sjö
rifbein brotnuðu, lungun féllu sam-
an og annað herðablaðið brákaðist.
Auk þess fékk hann gat á höfuðið.
„Ég var í góðu formi, í góðum
skóla, æfði handbolta af kappi og
það gekk allt ótrúlega vel hjá mér.
Svo var það bara allt farið á svip-
stundu.“
Hékk á
húddi og
missti takið
Slysið dró dilk
á eftir sér út í lífið
Morgunblaðið/Golli
Uppgjör Guðjón Jónasson segir frá
hræðilegri lífsreynslu.
„Við erum sátt,
náðum að koma
hestinum vel á
framfæri og
fengum jákvæð
viðbrögð,“ segir
Ólafur Ólafsson,
en fyrirtæki hans
og Ingibjargar
Kristjánsdóttur
hefur staðið fyrir kynningu á ís-
lenska hestinum í Frakklandi und-
anfarna 18 mánuði. Þess vegna
hafa m.a fleiri Frakkar komið til Ís-
lands og sumir í hestaferðir. »29
Heiðurshestur á
Parísarsýningu
Landhelgisgæslan hefur gengið frá
kaupum á nýrri gerð harðbotna
slöngubáts sem smíðaður verður
hjá Rafnari í Kópavogi. Báturinn
verður afhentur um mitt næsta
sumar.
„Það er búið að sanna fyrir okkur
að þessi tegund hentar afar vel við
okkar störf í sjónum hér við land,“
sagði Georg Lárusson, forstjóri
LHG, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann segir að báturinn muni
nýtast við leit og björgun, löggæslu
og fiskveiðieftirlit á grunnslóð.
Landhelgisgæslan hefur haft til-
raunaútgáfu af bátnum til prófunar
um nokkurt skeið og siglt honum
þrjú þúsund sjómílur í öllum veðr-
um.
„Þetta er mjög ánægjulegur
áfangi,“ sagði Björn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Rafnars. Fyrirtækið
hyggst hefja sölu- og markaðssókn
erlendis á næsta ári. Það hefur í
nokkur ár unnið að framleiðslu
óhefðbundins bátsskrokks sem hef-
ur mikinn stöðugleika og mýkri
hreyfingar en hefðbundnir skrokk-
ar. Á hann að gera bátunum kleift
að ráða betur við válynd veður.
Rafnar hefur nýlega fært út kví-
arnar með kaupum á skipa-
smíðastöð í Noregi. »22
Nýtist við leit og björgun
Landhelgisgæslan kaupir nýja gerð slöngubáts
Í smíðum Teikning af hinum nýju slöngubáti Landhelgisgæslunnar.
FORTE
blanda meltingargerla
MÚLTIDOPHILUS
þarmaflóran
hitaþolin
www.gulimidinn.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gjöf sem lifnar við