Morgunblaðið - 29.11.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Vonast er til að gengið verði frá sam-
komulagi um útleigu á efstu
tveimur efstu hæðum húss Ríkisút-
varpsins við Efstaleiti á næstu dög-
um. Þetta hefur Morgunblaðið eftir
öruggum heimildum og er búist við
því að tilkynnt verði um leigusamn-
inginn og hver leigutakinn er fljótlega
eftir helgi.
Ráðist var í talsvert viðamiklar
breytingar á húsnæði Ríkisútvarps-
ins þegar ákvörðun var tekin um að
þjappa starfsemi Ríkisútvarpsins
saman á neðstu hæðunum. Þær
breytingar hafa kostað félagið um 43
milljónir króna, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Skilar betri vinnustað
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að vissulega hefðu þær breyt-
ingar sem ráðist var í kostað sitt en
þær hefðu verið nauðsynlegar til þess
að efstu tvær hæðirnar gætu farið í
útleigu. „Nú styttist væntanlega í að
það gerist,“ sagði Magnús Geir en
vildi að svo stöddu ekki ræða húsa-
leigumál Ríkisútvarpsins frekar.
Hann sagði að 43 milljónirnar sem
blaðamaður nefndi í kostnað væru
ugglaust nærri lagi en ýtrustu hag-
kvæmni hefði verið gætt við flutn-
ingana eins og í allri annarri starfsemi
RÚV. „Til að ná þeim ávinningi sem
breytingarnar fela í sér þurfti að færa
til starfsstöðvar flestra starfsmanna í
húsinu, brjóta niður veggi og þess
háttar. Þetta skilar okkur betri vinnu-
stað og hagræðingu í starfseminni
sjálfri, fyrir utan þann ávinning sem
verður af væntanlegum leigutekjum
og þar af leiðandi lækkuðum rekstr-
arkostnaði fyrir Ríkisútvarpið.
Áherslur nýrrar yfirstjórnar hafa all-
ar miðað að því að hagræða eins og
frekast er unnt í starfseminni, ekki
síst í umgjörð til að tryggja að sem
mest af fjármunum fari beint í dag-
skrá,“ sagði Magnús.
Hagræðing í rekstri
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að forráðamenn Ríkisútvarps-ins
séu afar bjartsýnir á það leigusam-
starf sem nú er í pípunum og að vænt-
anlegur leigutaki geti fallið vel að
starfseminni í húsinu. Með útleigu á
efstu tveimur hæðunum til langs
tíma, muni nást fram umtalsverð hag-
ræðing í rekstrinum, rekstrarkostn-
aður verði til muna minni og kostn-
aður við breytingar muni borga sig á
skömmum tíma.
Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður
stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., segir að
vissulega hafi breytingar á húsnæði
RÚV verið kostnaðarsamar, en sá
kostnaður hafi verið óhjákvæmilegur,
því breyta hafi þurft efstu hæðunum,
svo hægt væri að leigja þær út. „Þeg-
ar búið verður að landa leigjendum er
borðleggjandi að útlagður kostnaður
við breytingarnar kemur fljótt aftur
til baka og verður síðan hluti af mik-
ilvægri hagræðingaraðgerð,“ sagði
Ingvi Hrafn.
Efstu hæðir RÚV í útleigu
Framkvæmdir og breytingar á húsnæðinu til þess að þjappa starfsemi Ríkisútvarpsins saman á
neðstu hæðunum og breyta þeim efstu til að gera þær útleiguhæfar hafa kostað um 43 milljónir króna
Magnús Geir
Þórðarson
Ingvi Hrafn
Óskarsson
Morgunblaðið/Ómar
Útvarpshúsið Tvær efstu hæðir Útvarpshússins við Efstaleiti á leið í útleigu.
„Þessi nóvembermánuður verður
með hlýjustu nóvembermánuðum
sem við vitum um. Trúlega sá
næsthlýjasti í Reykjavík og á suð-
vesturhorninu en Norðurland er
eitthvað neðar á listanum. Úti við
ströndina á Norðurlandi, við Gríms-
ey og annars staðar, var líka mjög
hlýtt og trúlega er þetta einn hlýj-
asti nóvember frá upphafi mælinga
þar,“ segir Trausti Jónsson veð-
urfræðingur, en þó að enn sé einn
dagur eftir af nóvember getur
Trausti slegið þessu föstu.
Hann segir að það hafi nokkrir
kaldir dagar komið á Norðurlandi
sem slái hitann niður.
Meðalhiti ársins, sem Trausti tók
saman í síðustu viku, var 6,67 gráður
í Reykjavík og hefur aðeins einu
sinni verið hærri. Meðalhiti nóv-
ember síðustu tíu árin hefur verið
um 2,2 gráður.
Trausti bendir á að hiti hafi alltaf
lækkað á tímabilinu frá 22. nóv-
ember til áramóta.
Veðrið á landinu þennan nóvem-
bermánuð hefur verið allsérstakt en
fyrir utan hlýindin sunnanlands þá
hefur rignt gríðarlega á Austur-
landi. „Það er ekki met en það hefur
rignt á Seyðisfirði og í Neskaupstað
rúmlega 700 millimetra. Ársúrkoma
í Reykjavík er 800 millimetrar.“
Heitur og blautur nóvember
Veðrið um
landið allt allsér-
stakt í nóvember
Morgunblaðið/Eggert
Stillt veður Veðrið í höfuðborginni hefur verið einstakt. Einn sá hlýjasti frá
upphafi mælinga. Hér er kvöldsólin að setjast í miðjum mánuði við sléttan sjó.
JÓLATILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
FULLT VERÐ
8.990
5.990
Pizzasteinn
Spaði og skeri fylgja
15”
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í frumvarpi iðnaðar- og við-
skiptaráðherra um gjaldtöku í
ferðaþjónustu er lagt til að tekið
verði 1.500 króna gjald fyrir nátt-
úrupassa sem allir, Íslendingar sem
útlendingar, yfir 18 ára aldri greiði,
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Verður gjaldið tekið til
þriggja ára og stefnt er að því að
gjaldtakan hefjist 1. september árið
2015.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, kynnti
frumvarpið á ríkisstjórnarfundi síð-
degis í gær þar sem samþykkt var
að senda það til þingflokka stjórn-
arflokkanna. Þar fékk það sam-
þykki hjá Sjálfstæðisflokknum.
Frumvarpið var hins vegar rætt á
þingflokksfundi Framsóknarflokks-
ins en ekki afgreitt. ,,Við viljum
bara skoða málið betur og velta
þessu aðeins betur fyrir okkur,“
sagði Þórunn Egilsdóttir, varafor-
maður þingflokksins, í samtali við
mbl.is í gær.
Fullur skilningur á
að Framsókn þurfi tíma
Ragnheiður Elín segir það eðli-
legt að framsóknarmenn vilji skoða
frumvarpið betur. „Á þessu máli
eru skiptar skoðanir og ég ber
mikla virðingu fyrir því. Allir hafa
eitthvað til síns máls. Það sem mér
er mjög umhugað um er að koma
fram með þessar tillögur þannig að
hægt sé að taka umræðuna um
þessa leið sem ég er að leggja til út
frá rökum og að allir hafi sömu upp-
lýsingarnar,“ segir hún. Ragnheiður
Elín bendir á að umræðan hafi farið
víða og sumt eigi ekki við rök að
styðjast. „Ég hef fullan skilning á
því ef Framsókn þarf lengri tíma og
vona að við fáum tækifæri til að
leggja þetta fyrir þingið þannig að
hægt verði að meta þetta eftir bestu
aðferðum,“ segir Ragnheiður Elín.
Náttúrugjaldið 1.500 krónur
Allir yfir 18 ára aldri greiða gjaldið í þrjú ár Ríkisstjórnin samþykkti frum-
varpið Þingflokkur Framóknarflokks þarf lengri tíma til afgreiðslu
Morgunblaðið/Kristinn
Geysir Stefnt er að því að taka upp gjald fyrir náttúrupassa 1. sept. 2015.
Ársreikningur Ríkisútvarpsins ohf.
fyrir rekstrarárið 2013-2014 var
birtur í Kauphöll Íslands í gær-
kvöldi. Fram kemur að tap á rekstr-
arárinu 1. september 2013 til 31.
ágúst 2014 var 271 milljón kr. eftir
skatta. Tapið fyrir tekjuskatt var
339 millj. kr. Þar af var tap á fyrri
hluta rekstrarársins 274 milljónir
fyrir tekjuskatt, en tap á síðari hluta
rekstrarársins var um 65 milljónir
kr. Fram kemur að rekstrarárið hafi
einkennst af miklum sviptingum.
Fallið hafi verið frá því að RÚV
fengi útvarpsgjaldið óskert og það
hafi leitt til umtalsverðrar lækkunar
á væntum þjónustutekjum ársins
2014. Í niðurlagi segir að unnið sé að
nýjum samningi við mennta- og
menningarmálaráðuneytið. „Stjórn
RÚV hefur óskað eftir því að félagið
fái útvarpsgjaldið óskert og fallið
verði frá hugmyndum um að lækka
útvarpsgjaldið frá því sem nú er,“
segir í tilkynningunni. Til stendur að
lækka gjaldið úr 19.400 kr. í 17.800
krónur á næsta ári. vidar@mbl.is
271 milljónar tap
á rekstri RÚV á
síðasta rekstrarári
„Fyrir nefndinni kom það sjón-
armið fram að skatta- og gjalda-
lækkanir skili sér oft illa út í verð-
lag á meðan hækkanir skili sér
fljótt. Ef ákvarðanataka um
skattabreytingar væri látin stjórn-
ast af þessu sjónarmiði yrðu skatt-
ar sjaldan lækkaðir,“ segir í
nefndaráliti meirihluta efnahags-
og viðskiptanefndar, sem af-
greiddi breytingartillögur við
frumvarpið um breytingar á virð-
isaukaskatti úr nefndinni í gær.
Hvetur meirihlutinn stjórnvöld,
aðila vinnumarkaðar og hags-
munasamtök til þess að taka sam-
an höndum og tryggja að skatta-
og gjaldalækkanir frumvarpsins
skili sér að fullu.
Leggur meirihlutinn til eins og
fram hefur komið að skatthlutfall
neðra þrepsins hækki í 11% í stað
12%. Segjast þingmennirnir hafa
skilning á áhyggjum bókaútgef-
enda, rithöfunda o.fl. af áhrifum
hækkunar neðra þrepsins. „Meðal
nefndarmanna kom fram almenn-
ur vilji til að leita frekari leiða til
að bæta stöðu framantalinna
greina.“
Taki höndum saman
til að tryggja að
lækkanir skili sér