Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Reykjavíkurborg hefur birtuppgjör sitt fyrir fyrstu níu
mánuði ársins og þar kemur í ljós
að reksturinn
gengur verr en
ætlað var. Við
fyrstu sýn er hann
að vísu betri en
áætlanir gerðu ráð
fyrir, en það stafar
af óreglulegum lið-
um. Að þeim frá-
töldum var rekstr-
arniðurstaða borgarinnar í heild
fyrir fjármagnsliði 288 milljónum
króna lakari en áætlun gerði ráð
fyrir.
Þegar horft er til borgarsjóðssérstaklega, þ.e. þeirrar
starfsemi sem fjármögnuð er með
skatttekjum, kemur í ljós 272
milljóna króna halli af rekstr-
inum en áætlað hafði verið að af-
gangur yrði upp á 416 milljónir
króna.
Rekstrarafkoman var sem sagt688 milljónum króna verri
en áætlað hafði verið á fyrstu níu
mánuðum ársins.
Þessi niðurstaða endurspeglarþann skort á aðhaldi sem
ríkt hefur við stjórn borgarinnar.
Eitt dæmi um þessa lausung ífjármálastjórn borgarinnar
birtist í „fræðsluferð“ sem menn-
ingar- og ferðamálaráð borgar-
innar fór í á dögunum.
Í miðjum hallarekstrinum sendiborgin átta borgarfulltrúa og
jafnmarga embættismenn borgar-
innar til Hollands til að kynna sér
ferða- og menningarmál.
Samtals sextán ferðalangar ogmátti ekki minna vera til að
skoða söfn í Amsterdam.
Dagur B.
Eggertsson
Rekstrarleg
óvissuferð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.11., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 6 alskýjað
Nuuk -7 léttskýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 0 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 8 heiðskírt
Dublin 11 skýjað
Glasgow 10 alskýjað
London 12 heiðskírt
París 12 heiðskírt
Amsterdam 7 heiðskírt
Hamborg 2 alskýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 1 þoka
Moskva -7 skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 12 alskýjað
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -3 skýjað
New York 1 léttskýjað
Chicago -4 alskýjað
Orlando 10 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:41 15:53
ÍSAFJÖRÐUR 11:14 15:29
SIGLUFJÖRÐUR 10:58 15:11
DJÚPIVOGUR 10:17 15:15
„Ég gat sem betur fer staðið við það
sem ég lofaði mér í upphafi að ég
skyldi beita allri minni einbeitingu
og viljastyrk til þess að halda mér
uppi og reyna að hafa gaman í
kringum mig. Ég er sannfærð um að
það hafi haft verulega mikil áhrif á
það hvernig þetta gekk. Afstaðan til
þessarar áskorunar.“
Þetta segir Ólöf Nordal, fyrrver-
andi alþingismaður, en hún greind-
ist með illkynja krabbameinsæxli í
sumar og var með skömmum fyrir-
vara skorin upp við því. Við tók
margra mánaða lyfjameðferð sem
lauk á fimmtudaginn með góðum
árangri. Ólöf ákvað strax að takast
á við þessa áskorun með jákvæðni
að vopni og einbeita kröftum sínum
alfarið að því að ná bata.
Afstaðan skiptir miklu
„Ég er sannfærð um að það hafi
haft áhrif. Ég kom til að mynda
syngjandi út úr lyfjameðferðinni í
gær [á fimmtudaginn]. Ég held að
það geti haft áhrif á líkamann að
beita hugarorkunni þannig á hann.
Þegar maður einbeitir sér að því að
gera það sem maður ætlar sér að
gera og heldur áfram að brosa
framan í fólk,“ segir hún.
Framundan er að ná aftur fullum
kröftum og fara að sinna aftur þeim
verkefnum sem hún tók sér leyfi frá
til að takast á við veikindin. „Nú vil
ég fara að komast aftur út í þjóðfé-
lagið og huga aftur að því sem fram-
tíðin ber í skauti sínu og setja mér
lengri áætlanir en bara þrjár vikur
fram í tímann. Ég hef undanfarna
mánuði bara horft fram til næstu
lyfjadælingar,“ segir hún og hlær.
Nánar er rætt við Ólöfu á mbl.is.
hjortur@mbl.is
Áskorun með jákvæðni að vopni
Morgunblaðið/Kristinn
Ólöf Nordal „Nú vil ég fara að kom-
ast aftur út í þjóðfélagið.“
Ert þú að rannsaka
orku og umhverfi?
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir
námsmenn og rannsóknarverkefni á sviði
umhverfis- og orkumála.
Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum.
Þess vegna felast mikil verðmæti í því að nýta
íslenskt hugvit til þess að auka þekkingu á orku
og umhverfismálum.
Til úthlutunar úr Orkurannsóknasjóði árið 2015
eru 54 milljónir króna.
Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða
doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orku-
mála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu
sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema
og öðrum útgjöldum.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur eru á
landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur. Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2015.