Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 11
myndast ekki transfitusýrur og það
sama á við um kókosolíuna,“ segir
hún. Landsvæði í Suðaustur-Asíu,
Indónesíu og Malasíu hefur þótt
ákjósanlegt undir olíupálmapl-
antekrur og segir Rannveig að í
raun hafi margir í þessum löndum
selt sálu sína til að ná að selja
pálmaolíuna ódýrt. Fyrir vikið rýrna
regnskógarnir mun meira en áður
þó svo að breyturnar séu að sjálf-
sögðu fleiri en ein. „Það eru mín rök
fyrir því að sneiða hjá pálmaolíunni.
En maður þarf vissulega að passa
sig því ef við stoppum þetta verður
olían að koma einhvers staðar frá og
ekki vill maður fara úr öskunni í eld-
inn. Ég hef oftast varann á með kók-
osolíuna líka þótt hún sé ekki vanda-
mál á heimsmælikvarða eins og
pálmaolían en ef framleiðsla pálma-
olíunnar yrði stöðvuð gætu fram-
leiðendur farið yfir í öðruvísi rækt-
un því það er alltaf eftirspurn eftir
olíu því hún er notuð í svo margt,
bæði matvæli og snyrtivörur.“
Dýrkeypt fegurð
Í bókinni Vakandi veröld eftir
þær Rakel og Margréti segir að ár-
leg eyðing regnskóganna svari til
þess er nemur helmingi af flat-
armáli Íslands. „Þó að minna sé
rætt um eyðingu regnskóganna nú
en áður er vandinn enn til staðar.
Vandamálið hefur færst frá því að
vera aðallega vegna fáatækra
bænda sem eru að brenna regn-
skógana til að búa til nýtt beitilendi
og ræktarland til eigin nota. Þetta
var mikið vandamál fyrir nokkrum
árataugum og þessar aðferðir eru
enn stundaðar. Í dag er vandamálið
af svo stórum skala að hann er
margfaldur miðað við þá,“ segir
Rannveig en bendir á að ekki sé
hægt að skella skuldinni alfarið á
pálmaolíu eða snyrtivörur. Eftir
sem áður er ágætt að líta í eigin
barm í þeim tilgangi að skoða betur
hvað hver og einn getur gert til að
stuðla að heilbrigði jarðarinnar. Í
bókinni má finna fjölda uppskrifta
að snyrtivörum sem auðveldlega má
búa til heima og þar með má losna
við flóknar og illskiljanlegar inni-
haldslýsingar á krukkunum úr búð-
inni. Svitalyktareyðir, tannkrem,
andlitsmaski, raksápa, sjampó og
hárnæring eru dæmi um snyrtivör-
ur sem búa má til heima. Þannig má
líka endurnýta krukkur og plast-
brúsa. Rétt eins og höfundar bók-
arinnar hefur Rannveig búið til
nokkuð af eigin snyrtivörum. „Ég
bý gjarnan til andlitsmaska og það
er alveg frábært. Manni líður svo
vel með þetta því maður veit að það
eru engin aukaefni. Það er líka mjög
mikilvægt að hafa í huga að ef þú
getur borðað snyrtivöruna eða
maskann sem þú setur á líkamann
þá er það gæðamerki. Annars reyni
ég að velja mér þær vörur sem eru
með hvað stysta innihaldslýsingu og
reyni að forðast paraben og pálma-
olíu,“ segir líffræðingurinn Rann-
veig Magnúsdóttir sem vonast til að
sjá innlenda framleiðendur ýmissa
vara nota aðra olíu til framleiðsl-
unnar en pálmaolíu og leggja með
þeim hætti lóðin á vogarskálarnar í
verndun og varðveislu regnskóg-
anna.
AFP
Átök Nýverið var 1000 hektara plantekra olíupálma upprætt í Indónesíu.
AFP
Ruðningur Regnskógum er rutt burt til að unnt sé að vinna pálmaolíu.
„Það er líka mjög
mikilvægt að hafa í
huga að ef þú getur
borðað snyrtivöruna
eða maskann sem þú
setur á líkamann þá
er það gæðamerki.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Stundum hefur reynst erfitt að finna
góð borðspil fyrir þau allra yngstu,
það er að segja fyrir þau börn sem
ekki eru læs. Þess vegna er ánægju-
legt að þetta stórskemmtilega og
sniðuga spil, Sequence, sé fáanlegt
því það er kjörið fyrir þann hóp barna.
Þar fyrir utan geta allir haft gaman af
leiknum, líka fullorðnir.
Spilið er eðli máls samkvæmt ein-
falt í alla staði en reynir nokkuð á út-
sjónarsemi. Sequence gengur út á að
ná að móta röð fjögurra spilapeninga í
sama lit á spilaborði og sá sem fyrstur
nær því vinnur. Borðið er alsett fer-
hyrndum myndum af dýrum. Hver leik-
maður fær einn lit af spilapeningum
og í hverri umferð er leikmaður með
þrjú spil á hendi. Á spilunum eru dýra-
myndir sem samsvara reitum spila-
borðsins. Leikmaður leggur spilapen-
ing á myndina á borðinu og reynir að
koma sínum lit fyrir í röð. Aðrir leik-
menn geta komið í veg fyrir að það
takist, séeu þeir nógu útsmognir. Þeg-
ar spilapeningur hefur verið lagður á
mynd á borðinu geta aðrir ekki fjar-
lægt hann nema með Drekaspili. Það
eru engin Einhyrningsspil eða Dreka-
spil á leikborðinu en í spilastokknum
eru 2 Drekaspil og 2 Einhyrningssspil.
Með Einhyrningsspili má leggja pening
á hvaða auða reit borðsins sem er.
Aldur: 3-6 ára
Fjöldi leikmanna: 2-4
Verð: Frá 2.699 kr.
Sölustaðir: Hagkaup, Spilavinir og
bókabúðir.
Spil vikunnar: Sequence
Frábært spil fyrir þau yngstu
Café Lingua Borgarbókasafnsins
verður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi að þessu sinni. Um 120
Nepalar eru búsettir á Íslandi og búa
flestir í Breiðholtinu. Þeir munu hafa
umsjón með kaffinu í dag og hefst
það kl. 14. Boðið verður upp á sýn-
ingu og fræðslu um ýmsa muni sem
tengjast landi og þjóð, en auk þess
verður dansað og boðið upp á nep-
alskan mat. Tungumálin sem verða í
forgrunni eru íslenska, nepalska og
enska. Allir eru velkomnir.
Íslenska, nepalska og enska í Gerðubergi
Menning 120 Nepalar búa á landinu.
Boðið upp á nepalskan mat
SÓSAN SEM
SAMLOKUR
ELSKA
Nýja gómsæta samlokusósan frá E. Finnsson
hentar mjög vel á bæði heitar og kaldar samlokur.
Prófaðu og gerðu gott betra.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Dubai-skýjaborgin ísandinum
Fararstjórar: Elín Guðmundsdóttir & Olga María Ólafsdóttir
Í Dubai er að finna framúrstefnulega skýjakljúfa meðfram
glitrandi strandlengju, í miðri Arabíueyðimörkinni.
Borgin sameinar austur og vestur, gamla og hið nýja og
myndar stórfenglega blöndu af hefðum og módernisma.
Arabíunætur bíða okkar með eftirvæntingu.
Kynningarfundur verður haldinn 2. desember
kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
eh
f.