Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Margar verslanir hér á landi buðu varning sinn á tilboðsverði á „Black Friday“ eða svörtum föstudegi í gær. Í fyrra reið Húsgagnahöllin á vaðið og bauð upp á afslátt á svört- um föstudegi. Nú fylgdu fleiri í kjöl- farið. Mikið var að gera í þeim versl- unum sem Morgunblaðið hafði samband við. Mikil ánægja var með- al viðskiptavina, að sögn verslunar- stjóra búðanna og munu þær því flestar bjóða upp á svartan föstudag að ári. Nokkrar verslanir hér voru með- sértilboð á svörtum föstudegi sem ná þó einnig til annarra daga, t.d. á fimmtudagsins á undan og/eða standa yfir helgina. Nokkuð var um að fólk biði í bið- röð við verslanir hér í gærmorgun. Þá voru þær fljótar að fyllast um leið og opnað var. Biðröð og nóg að gera „Það var biðröð af fólki þegar ég opnaði búðina í morgun og það hefur verið mikið að gera í allan dag,“ seg- ir Ívar Jóhann Halldórsson, versl- unarstjóri Rúmfatalagersins á Smáratorgi. Ívar segir mjög líklegt að versl- unin muni endurtaka leikinn að ári. „Viðskiptavinir eru ánægðir með þetta. Það er gott ef við getum hjálpað þeim að gera góð kaup. Þá eru allir sáttir. Svo virðist Íslend- ingum líka vel við þennan ameríska sið.“ Spurður hver ástæðan sé fyrir því að Rúmfatalagerinn sé með svartan föstudag, nefnir hann aðrar versl- anir sem fordæmi. Nettó matvöruverslun bauð einn- ig í fyrsta skipti upp á tilboðsverð á svörtum föstudegi. Þau tilboð ná þó frá fimmtudegi til sunnudags. „Þetta hefur gengið mjög vel. Það var mjög mikið að gera í gær [fimmtudag]. Verðið er þannig að fólk stekkur á tilboðin. Ég held að við séum fyrsta matvörubúðin sem er með tilboð á svörtum föstudegi,“ segir Hallur Heiðarsson rekstrar- stjóri Nettó. Hann segir að bæði hafi verið mikið að gera í Reykjavík og á Akureyri. Þar sem þetta hafi mælst vel fyrir segir hann að það verði skoðað með opnum huga að endurtaka leikinn að ári. Heiðar segir að það hafi ekki ver- ið samantekin ráð Nettó og annarra fyrirtækja að bjóða upp á svartan föstudag. Heldur algjörlega sjálf- sprottið. „Ég held að þetta sé komið til að vera. Neyslumynstrið er að breytast og fólk eltir afslættina meira,“ segir Jón Woodard, verslunarstjóri Betra baks. Spurður hvort það sé vegna þess að tilboðsdagar séu algengari en áður, segir hann það líklegt. Þó ekki hafi verið biðröð fyrir utan verslunina um leið og opnað var hafi hún orðið „kjaftfull“ fljótlega. Jón segir gaman að geta veitt góðan afslátt og hann sé meiri en á útsölum. Margir hafi keypt jólagjafir. Toys R’us-keðjan á öllum Norðurlöndum bauð upp á afslátt á svörtum föstu- degi í gær. Verslanir hér á landi voru því engin undantekn- ing frá því en þetta var í fyrsta skipti sem versl- anir hér tóku þátt í þessu. Morgunblaðið/Ómar Verslun Mörgum finnst gaman að fara saman að versla fyrir jólin og eflaust á það við um þessar vinkonur. Svartur föstudagur að festast í sessi?  Flestar verslanir munu eflaust bjóða aftur upp á svartan föstudag að ári  Ánægðir viðskiptavinir  Tilboðin ekki endilega bundin við föstudaginn  Biðröð og nóg að gera í verslunum „Á síðustu 100 árum hafa þessir dagar eins og valen- tínusardagurinn, svarti föstu- dagurinn og fleiri, verið búnir til af auglýsendum og kaup- mönnum,“ segir Árni Björns- son þjóðháttafræðingur. Hann segir enga gamla ís- lenska hefð tengjast þessum degi, ekki nema ef vera skyldi að föstudagurinn sjálfur hefur alltaf verið talinn frekar heppilegur dagur samkvæmt gamalli hefð, samanber orða- tiltækið föstudagur til fjár. Í þessu samhengi bendir hann á að föstudagurinn 13. sem eigi að vera óheilladagur sé einnig tilbúningur af Holly- wood, tengdur tiltekinni mynd. Fyrirmyndin er sótt til Bandaríkjanna en þar hafa verslanir boðið upp á mikinn afslátt af vörum sínum á þessum tiltekna föstudegi eft- ir þakkargjörðarhátíðina. Oft- ar en ekki hefur orðið mikill handagangur í öskjunni þegar verslanir eru opnaðar á föstudagsmorgun er- lendis, svo mikill að í sumum tilfellum þarf að kalla til lögreglu. Dagurinn er mesti verslunardagur árs- ins í Bandaríkjunum. Búinn til af kaupmönnum SVARTI FÖSTUDAGURINN Árni Björnsson Þrír sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við hnífstunguárás á Hverfisgötu á sunnudagskvöldið. Rannsókn málsins er í fullum gangi en skammt á veg komin. Talið er að ráðist hafi verið á karlmann sem varð fyrir stung- unum í heimahúsi á Hverfisgötu á sunnudagskvöldið. Fjórir menn voru handteknir í kjölfar árásarinnar. Tveimur þeirra hefur verið sleppt en tveir þeirra sæta nú gæsluvarðhaldi til 8. desember. Sá þriðji, maður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði að eftir árásina, er nú einnig í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins. Sá sem fyrir árásinni varð er enn á sjúkrahúsi en hann var í lífshættu fyrstu dagana eftir árásina og hald- ið sofandi í öndunarvél. Í gæsluvarðhaldi vegna hnífstunguárásarOf Icelandic Nobles & Idiot Savants Translated by Hallberg Hallmundsson and Julian Meldon D’Arcy An Anthology of theWritings of the Novelist, Essayist, and Humorist Thórbergur Thórdarson The funniest chapters from the writings of Mr. Thórdar- son, along with the most daring, as for example his letter to a Nazi from the year 1933. The books are available in all of the bigger bookshops The Poetry of Egill Skallagrímsson, Hallgrímur Pétursson, Jónas Hallgrímsson, Stephan G. Stephansson, Einar Benediksson, Davíð Stefánsson, Tómas Guðmundsson, Jón Dan, Kristján frá Djúpalæk, Jón úr Vör, Einar Bragi, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir, Ísak Harðarson, Jónas Þorbjarnarson and many more. Of Icelandic Nobles is 217 pages and Potpourri is 243 pages. Distributed by Forlagið – JPV. Also published by BRÚ: A Potpourri of Icelandic Poetry Through Eleven Hundred Years Translations and biographies by Hallberg Hallmundsson From the writings of an Icelandic humourist THÓRBERGUR THÓRDARSON Translated by HALLBERG HALLMUNDSSON andJULIAN MELDON D’ARCY “Long esteemed as a leading stylist andhumorist, Thórdarson is a peculiarmixture of paradoxical traits: a clear andkeen intellect and a singularly gulliblenature. He was an avowed Communistbut inasmuch as he accepted the conceptof life after death, he denied materialismAbove all, he was a firm believer inghosts, which he ‘felt’ everywhere aroundhim. For a time, he became a theosophistpracticed yoga, and even wrote a bookon the subject. In addition, he remainedone of the most ardent Esperantists inIceland. Through all his diverse interestcould be seen a man who was, basicallyan honest seeker after truth, althoughpolitically, he seemed to have found ionce and for all. Thórdarson wrote essays, biographiespoetry and autobiographical works. Hieccentricity, crowned with a brillianstyle and an ever present humor, whichhe frequently pointed at himself, resultedin some of the most original and uniqueworks of modern Icelandic literature.” HALLBERG HALLMUNDSSONFROM AN ANTHOLOGY OF SCANDINAVIAN LITERATURE ISBN 978-9935-9118-2-7 9 789935 911827 , . , s , , t , s t An Anthology of the Writings of the Novelist, Essayist, and HumoristThórbergur Thórdarson Translated by HALLBERG HALLMUNDSSONand JULIAN MELDON D’ARCY Of Icelandic Nobles & Idiot Savants Reykjavík 2014 O f Icelandic N obles & Idiot Savants Translated by:H .H allm undsson and Julian M .D ’A rcy 2014 Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir rannsóknastyrki í landgræðslu og skógrækt, með sér- stakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. Til úthlutunar verða um fjórar milljónir króna. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. janúar 2015. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðum Landgræðslu ríkisins (land.is), Skógræktar ríkisins (skogur.is) og Skógræktar- félags Íslands (skog.is). Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í einu pappírseintaki og á tölvutæku formi (á geisladiski sem rtf, pdf eða word skjal). Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá. Umsóknum skal skila til: Landgræðslusjóðs, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík. Skrifa skal skýrt á umslag: „Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.