Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Heimilin nota um 28% raforkunnar,
sé miðað við allt árið, sem er svipað
hlutfall og iðnaðurinn á starfssvæð-
inu notar.“
Ljós á 40 pera seríu kostar 40
krónur á sólarhring
„Það er tiltölulega auðvelt að
reikna út kostnaðinn við þessar serí-
ur, ef fólk veit á annað borð hversu
sterkar perurnar eru,“ segir Vignir.
„Hjá okkur kostar hver kílóvatt-
stund um 12 krónur, sem þýðir að
rafmagnskostnaðurinn vegna al-
gengrar tegundar af 40 pera útiseríu
er um 40 krónur á sólarhring, ef
kveikt er á perunum allan sólar-
hringinn. Í þessum seríum eru per-
urnar 3,5 vött. Ef við tökum hins
vegar gömlu lituðu 25 vatta glóper-
urnar, er kostnaðurinn 288 krónur á
sólarhring. Mér sýnist að slíkar serí-
ur séu á nokkuð hröðu undanhaldi.
Nýjasta nýtt er svo LED-perur og
það kostar aðeins nokkrar krónur að
láta slíkar seríur loga allan sólar-
hringinn. Það er með öðrum orðum
hægt að stýra rafmagnskostn-
aðinum, verðið fer alltaf eftir því
hversu mikið rafmagn skreyting-
arnar nota. Þótt ég hafi nú ekki gert
vísindalega athugun á jólaseríum,
sýnist mér samt sem áður að glóper-
urnar séu á útleið og LED-perurnar
koma í staðinn.“
Að mörgu er að hyggja
Á liðnum árum hefur margoft orð-
ið stórtjón af völdum bruna á þessum
árstíma, sem rekja má til rafmagns.
Stundum má rekja íkveikju til bil-
unar, enn algengara er þó að gáleysi
í umgengni við rafmagn sé um að
kenna. „Við hvetjum fólk til að sýna
fyllstu aðgát, þegar jólaseríur og
skreytingar eru annars vegar,“ segir
Vignir. „Allar seríur þurfa að vera af
viðurkenndri gerð, úti sem inni og
ekki má ofhlaða fjöltengin. Það er
varasamt að breyta seríum, til dæm-
is með því að stytta þær. Þar sem
perurnar eru raðtengdar hækkar
spennan á þeim perum sem eftir eru
í seríunni. Þær ofhitna eða springa
sem getur valdið slysum. Rafbún-
aður sem notaður er utandyra verð-
ur að vera rakaþéttur, svo sem tengl-
ar, klær, framlengingarsnúrur,
spennar og auðvitað sjálf serían. Síð-
an vil ég líka benda sérstaklega á að
snúrutenglar sem hanga upp með
vegg, geta fyllst af vatni. Það er þess
vegna nauðsynlegt að verja slíka
tengla sérstaklega. Það er því um að
gera að gæta fyllstu varúðar, þegar
jólaseríur eru annars vegar,“ segir
Vignir Hjaltason hjá Norðurorku.
Setur upp 120 seríur fyrir jólin
„Seríurnar eru líklega um 120
talsins, þannig að á trén í garðinum
hérna í Áshlíðinni fara liðlega fjög-
urþúsund perur og þeim fjölgar ár
frá ári,“ segir Ragnar Sverrisson,
kaupmaður á Akureyri. „Já, já, serí-
urnar eru allar komnar á sinn stað,
fjölskyldan hjálpast að við verkið.
Venjulega tekur þessi vinna um viku
og þá tel ég með nauðsynlegan und-
irbúning. Svo er sjálfsagt svipaður
fjöldi pera innandyra, þannig að
þetta er töluverður slatti. Trén
stækka sem betur fer á hverju ári,
þannig að við þurfum að bæta við
seríum á hverju ári og við þurfum að
fá stærsta krana bæjarins til verks-
ins. En við njótum þess að skreyta
húsið og garðinn og það kemur ekki
til greina að hætta þessu, enda höf-
um við gert þetta í um 25 ár.“
Býr jólasveinninn hér?
„Já, þetta er alltaf jafn gaman,
bæjarbúar fylgjast greinilega með
okkur, enda eykst umferðin um Ás-
hlíðina á þessum árstíma. Einu sinni
sagði leikskólakennari mér að börnin
hefðu haldið því fram að húsið okkar
væri heimili jólasveinsins og það eru
góð meðmæli. Og svo verðum við
jafnvel vör við að ferðafólk komi
hingað til að sjá ljósadýrðina, þannig
að það eru greinilega ekki bara norð-
urljósin sem heilla hérna fyrir norð-
an. Nágrannar okkar eru sem betur
fer þolinmóðir, enda er Áshlíðin ekki
fjölfarin gata, nema þá helst á að-
ventunni.“
Ánægjan verður ekki verðlögð
„Ef þessar skreytingar teljast til
óþarfa, þá bendi ég gjarnan á að á
heimilinu sé hvorki reykt né neytt
áfengis, þannig að ég get með góðri
samvisku sett fjármuni í þessar
skreytingar. Ég bendi líka á að við
höfum sett fjármuni í seríurnar á
löngum tíma. Auðvitað kostar tölu-
vert að vera með kveikt á öllum þess-
um perum, en ég borga reikninginn
með glöðu geði, enda er ekki hægt að
verðleggja ánægjuna sem fylgir
þessu. Við höfum vissulega talað um
að skipta yfir í LED-perur, en þá
kemur á móti að við eigum allar serí-
urnar, þannig að þær verða líklega
notaðar áfram. Perurnar sem eru í
seríunum eru líka miklu jólalegri en
LED-perurnar,“ segir Ragnar
Sverrisson, kaupmaður á Akureyri.
Desember er
rafmagnaðasti
mánuðurinn
Jólaseríur taka til sín mismikið raf-
magn Glóperur á undanhaldi en
LED-perur eru að sækja í sig veðrið
Morgunblaðið/Karl Eskil Pálsson
Mikil ljósadýrð „Seríurnar eru líklega um 120 talsins, þannig að á trén í garðinum hérna í Áshlíðinni fara liðlega
fjögur þúsund perur og þeim fjölgar ár frá ári,“ segir Ragnar Sverrisson, kaupmaður á Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Réttur búnaður „Allar seríur þurfa
að vera af viðurkenndri gerð og
ekki má ofhlaða fjöltengin,“ segir
Vignir Hjaltason, rafiðnfræðingur.
SVIÐSLJÓS
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
„Mér sýnist fólk hengja upp jólaserí-
urnar frekar snemma þetta árið.
Þetta á sérstaklega við um skreyt-
ingar utandyra, enda hafa veðurguð-
irnir leikið við hvurn sinn fingur und-
anfarnar vikur. Almenningur hefur
greinilega drifið upp seríurnar í blíð-
unni, enda bara skynsamlegt,“ segir
Vignir Hjaltason,
rafiðnfræðingur
hjá Norðurorku á
Akureyri. Des-
ember og janúar
eru þeir mánuðir
sem raforkunotk-
unin er mest og
aukin ljósanotkun
skýrir þá aukn-
ingu að stærstum
hluta að mati
Vignis. „Dagarnir
eru stuttir á þessum árstíma og þá
finnst fólki líklega gott að lýsa upp
skammdegið með jólaljósum, þannig
að með ljósunum er í raun og veru
verið að slá tvær flugur í einu höggi.
Akureyrarbær er auðvitað sá aðili
sem skreytir mest, bærinn setur til
dæmis skreytingar á fjölda ljósa-
staura og á hverri skreytingu eru
ansi margar ljósaperur. Síðan bætist
við fjöldinn allur af trjám, sem
skreytt eru með ljósum. Heimilin
eru líka sum hver ansi stórtæk í
þessum efnum og fyrir vikið snúast
raforkumælarnir svolítið hraðar á
komandi vikum og við hjá Norður-
orku verðum vör við aukna notkun.
Ragnar
Sverrisson
Þrjú fyrirtæki, Arctic Oddi ehf., Val-
þjófur ehf. og Vísir hf. hafa gert með
sér samkomulag sem styrkir til
langframa stoðir atvinnulífsins á
Flateyri og Þingeyri og eyðir um
leið þeirri óvissu sem verið hefur um
atvinnustarfsemi á stöðunum að
undanförnu, að því er fram kemur í
tilkynningu frá fyrirtækjunum.
Arctic Oddi mun flytja starfsemi
sína frá Flateyri í húsnæði sem var í
eigu Vísis á Þingeyri. Þar mun fyr-
irtækið sinna vinnslu og pökkun á
eldisfiski og sinna frekari uppbygg-
ingu fyrir fiskeldi sitt. Starfsemin á
Þingeyri kallar á um 15 störf í upp-
hafi en þeim mun fjölga í hlutfalli við
uppbyggingu fyrirtækisins.
Um 20 ársstörf skapast við
vinnslu bolfisks á Flateyri þegar út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækið
Valþjófur tekur við fasteignum og
tækjum Arctic Odda á staðnum.
Fyrirtækið mun einbeita sér að full-
vinnslu bolfisks, bæði frá Flateyri og
Þingeyri.
Auk starfa hjá fyrirtækjunum
tveimur má gera ráð fyrir að til verði
nokkur fjöldi afleiddra starfa vegna
margvíslegrar þjónustu við fyr-
irtækin. Þau störf leggja grunn að
frekari atvinnuuppbyggingu á Vest-
fjörðum til lengri tíma litið, segir í
tilkynningunni.
Með þessu samkomulagi lýkur að-
komu Vísis að útgerð og vinnslu á
Þingeyri sem félagið hefur staðið að
síðustu 15 árin. Samkomulagið er
gert með fyrirvara um samþykki
Byggðastofnunar sem gert er ráð
fyrir að liggi fyrir um miðjan desem-
ber.
Vinnsla tryggð
á Vestfjörðum
Orka og hreysti
til að njóta aðventunnar
Lifestream, lífræn næring, fæst í apótekum, heilsubúðum og helstu stórmörkuðum.