Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Starfsmönnum lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja fjölgaði um 1.400
(3%) milli áranna 2012 og 2013 og
heildarlaunagreiðslur í atvinnulíf-
inu jukust um 8% frá árinu 2012.
Heildarlaunagreiðslur jukust um
9% hjá örfyrirtækjum, 10% hjá
litlum fyrirtækjum, 9% hjá meðal-
stórum fyrirtækjum og 6,5% hjá
stórfyrirtækjum.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt
Hagstofu Íslands sem unnin var
fyrir Samtök atvinnulífsins og Litla
Ísland sem er vettvangur þar sem
smá fyrirtæki vinna saman óháð at-
vinnugreinum.
Árið 2013 voru 2.400 fyrirtæki
starfandi sem ekki voru til árið
2012. Langflest þeirra eru svoköll-
uð örfyrirtæki en þeim fjölgaði um
17% milli ára. Árið 2013 hættu
1.900 fyrirtæki starfsemi sem voru
starfandi 2012. Fjöldinn jókst því
um 500 fyrirtæki.
Meðaltekjur hækka með stærð
Fram kemur að meðaltekjur
starfsmanna fara hækkandi með
stærð fyrirtækja. Meðaltekjur í
litlum fyrirtækum voru 384.000 kr.
á mánuði árið 2013, 434.000 í með-
alstórum fyrirtækjum en 464.000
kr. í stórum fyrirtækjum. Meðal-
launin voru þannig 12% hærri í
stórum fyrirtækjum en í litlum og
meðalstórum fyrirtækjum.
Í fréttatilkynningu segir að
ástæða þess að farið var út í þessa
vinnu sé sú að hagtölur um fyrir-
tæki eftir stærð séu ekki birtar hér
á landi en þær liggja almennt fyrir í
nágrannaríkjunum.
Þá segir að upplýsingarnar gefi
færi á að leggja mat á mikilvægi
smárra, meðalstórra og stórra fyr-
irtækja í sköpun atvinnu og verð-
mæta. Jafnframt er unnt að leggja
mat á þróunina, t.d. hvaða stærð-
arflokkar fyrirtækja eru í örustum
vexti og leggja mest til fjölgunar
starfa og aukinnar verðmætasköp-
unar.
Góð vísbending um stöðuna
Þá segir að líta verði á niðurstöð-
urnar sem bráðabirgðaniðurstöður,
sem þó gefa góða vísbendingu um
stöðu mála. Gögnin eru þeim ann-
mörkum háð að þau innihalda ekki
upplýsingar um stóran hluta ein-
yrkja.
Ísland sker sig ekki úr hvað varð-
ar hlutfallslegan fjölda lítilla og
meðalstórra fyrirtækja. Í ESB er
hlutfall þeirra 99,8% og 99,7% í Sví-
þjóð, samanborið við 99,8% á Ís-
landi
Morgunblaðið/Golli
Atvinna Heildarlaunagreiðslur í atvinnulífinu námu 584 milljörðum 2013.
Launagreiðslur
jukust um 8%
2.400 ný fyrirtæki en 1.900 hættu
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 www.ullarkistan.is
Jólagjöf sem vermir
Hlýr og notalegur
ullarfatnaður
á góðu verði
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
400.000 KR.
FERÐAFJÖR
FINNDUBÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til ogmeð 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf fráWOWair. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
*GJAFABRÉF FRÁWOWair
NOTAÐIR BÍLAR
Vertu með!
Hvert myndir
þú fara?
Í MIKLU ÚRVALI
Tilboð: 2.190.000 kr.
Citroën C4 Comfort ZFK12
Skráður júní 2013, 1,6HDi dísil, beinskiptur
Ekinn 69.000 km.
Ásett verð: 2.390.000 kr.
Verð: 1.930.000 kr.
Mazda2 Go APA14
Skráður júní 2014, 1,3i bensín, beinskiptur
Ekinn 23.000 km.
Verð: 890.000 kr.
Ford Focus C-Max Trend OI685
Skráður mars 2005, 1,6i bensín, beinskiptur
Ekinn 105.000 km.
„Það er bara mikil ánægja með þetta
hér, krakkarnir eru alsælir,“ segir
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, skóla-
stjóri Ingunnarskóla, um þá ákvörð-
un að seinka byrjun skóladagsins fyr-
ir nemendur í 6.-10. bekk. Frá því í
haust hefur kennsla hafist kl. 8.30 í
stað 8.10, og er það tilhögun sem hef-
ur reynst vel.
Guðlaug segir foreldra ungling-
anna m.a. hafa talað um það að dregið
hafi úr streitu á morgnana, þegar allir
eru að koma sér út úr húsi á sama
tíma. „Það er ekki sama spennan, fólk
talar um það. Að þetta sé mýkri byrj-
un á morgnunum, minni spenna, og
það fara allir rólegri út. Þannig að
þetta hefur áhrif á allt heimilið,“ segir
hún.
Hugmyndin var fyrst rædd í skóla-
ráði sl. vor, en þar var m.a. velt upp
þeim möguleika að seinka kennslu til
kl. 9. „Það er svo flókið út af dagskrá
krakkanna í sambandi við tómstunda-
starfið. Það eru þessar íþróttaæfingar
og annað sem tekur við þegar skólinn
er búinn. Þannig að við þorðum ekki
að ganga lengra, en ákváðum að byrja
þarna og sjá hvernig þetta myndi
ganga,“ segir Guðlaug.
Hún segir að eftir breytinguna
mæti krakkarnir síður seint í tíma.
Í stað þess að lengja skóladaginn í
hinn endann var gripið til þess ráðs að
klípa mínútur af frímínútum og inn á
milli tíma. Þessu fylgir að kennararn-
ir taka við nýjum hóp um leið og þeir
kveðja annan, og krakkarnir þurfa að
vera snöggir að koma sér á milli stofa.
Engu að síður segir Guðlaug kenn-
arana einnig ánægða með að taka
daginn örlítið seinna.
„Þeim fannst þetta bara mjög já-
kvætt. Þetta skiptir þá kannski ekki
máli öðruvísi en að krakkarnir koma
rólegri inn í daginn og eru sáttari. Og
eins fyrir kennarana, þá getur þetta
líka verið mjög jákvætt, þeir koma
kannski upp úr átta og geta þá verið
búnir að undirbúa betur.“
Guðlaug segir muna um mínúturn-
ar 20 hvað morgunbirtuna varðar.
„Við munum ekki snúa til baka,“
segir Guðlaug, en óskastaðan væri að
klukkunni yrði almennt seinkað.
holmfridur@mbl.is
Krakkarnir alsælir
með að vakna síðar
Ingunnarskóli byrjar kennslu kl. 8.30
Morgunblaðið/ Guðrún Vala
Ánægð Guðlaug Erla Gunnars-
dóttir, skólastjóri Ingunnarskóla.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga