Morgunblaðið - 29.11.2014, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra (RLS) vinnur að gerð ítarlegr-
ar viðbragðsáætlunar vegna hugsan-
legs jökulhlaups til suðvesturs frá
eldgosi í norðvestanverðum Vatna-
jökli. Færi stórt hlaup í þá átt gæti
það truflað eða stöðvað virkjanir á
Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Þar
eru sex virkjanir og er afl þeirra alls
935 MW. Rafmagnsleysi af þeirri
stærðargráðu hefði gríðarleg áhrif.
Færanlegar stöðvar á NA-landi
RARIK á færanlegar varaafl-
stöðvar sem geta framleitt um fjögur
MW, að sögn Örlygs Jónassonar,
framkvæmdastjóra rekstrarsviðs
RARIK. Þegar umbrotin hófust í
norðvestanverðum Vatnajökli var tal-
ið líklegast að hamfaraflóð gætu farið
í Jökulsá á Fjöllum eða Skjálfanda-
fljót. Flóð í Jökulsá mundi ógna ör-
yggi flutningslínu Landsnets í Keldu-
hverfi. Rofni hún missir NA-hornið
rafmagn. Varaaflstöðvar eru á Rauf-
arhöfn og Þórshöfn en engin á Kópa-
skeri. Brýrnar yfir Jökulsá, bæði við
Grímsstaði og í Kelduhverfi, voru
einnig taldar geta verið í hættu. Því
var ákveðið að fara með varaaflstöðv-
arnar á Kópasker og Þórshöfn þar
sem þær eru nú.
Varaaflstöðvar eru til á nokkrum
stöðum, flestar á Austurlandi. Þá eiga
mörg fyrirtæki varaaflstöðvar fyrir
sína starfsemi. Örlygur sagði að verk-
takar eigi færanlegar rafstöðvar sem
RARIK hefur stundum fengið leigð-
ar. RARIK hefur ekki gert ráðstaf-
anir til að fá færanlegar rafstöðvar er-
lendis frá verði miklar truflanir á
raforkuframleiðslu hér.
Örlygur benti á að sviðsmyndir um
jökulhlaup úr Vatnajökli til norðurs
hefðu ekki verið afskrifaðar. Hlaup í
þá áttina myndi hafa óveruleg áhrif á
dreifikerfi RARIK. Hann sagði að
myndi stórt hlaup í Tungnaá og
Þjórsá trufla virkjanirnar þar myndu
færanlegu varaaflstöðvarnar hafa lít-
ið að segja til að bæta úr því.
Eigum hauka í horni
Rögnvaldur Ólafsson, verkefna-
stjóri almannavarnadeildar RLS,
sagði að komi til atburða af þessu tagi
verði aðaláhersla lögð á að bjarga
mannslífum. Þar á eftir komi að
tryggja innviði eins og bregðast við
rafmagnsleysi og fleiru.
Hann kvaðst ekki vita til þess að
gerðar hefðu verið ráðstafanir til þess
að fá varaaflstöðvar erlendis frá, yrðu
truflanir á raforkuframleiðslu.
„Við eigum samstarfsaðila mjög
víða og getum leitað aðstoðar hjá
þeim,“ sagði Rögnvaldur. Hann
nefndi samstarf almannavarna á
Norðurlöndum, almannavarnasam-
starf Evrópusambandsins, Atlants-
hafsbandalagið og Sameinuðu þjóð-
irnar í því sambandi.
Lítið færanlegt varaafl til
verði mikill raforkuskortur
Færanlegar rafstöðvar RARIK á NA-landi Hægt að leita aðstoðar erlendis
Ljósmynd/Landsvirkjun
Hraunaeyjafossvirkjun Mögulegt jökulhlaup frá gosi í Vatnajökli gæti truflað eða stöðvað raforkuframleiðslu á
Tungnaár- og Þjórsársvæðinu. Þar eru sex vatnsaflsvirkjanir og er afl þeirra samtals 935 MW.
Skógrækt ríkisins og Þjórsárskóli
hafa endurnýjað eldri samstarfs-
samning frá 2009 um þróun skóg-
arfræðslu í skólastarfi Þjórsárskóla
til næstu þriggja ára eða til ársins
2017. Í fréttatilkynningu kemur
fram að frá árinu 2009 hefur margt
verið gert í skógartengdu útinámi í
Þjórsárdalsskógi en einnig á lóð
skólans og næsta nágrenni. Þróuð
hafa verið verkefni sem tengjast
ólíkum námsgreinum og sam-
þættum viðfangsefnum. Farnar eru
tíðar og reglubundnar ferðir í
skóginn þar sem allir nemendur og
starfsfólk fara saman og einnig
ferðir þar sem foreldrum er boðið
að taka þátt, s.s. á aðventunni.
Í nýja samningnum er ætlunin
að komast lengra í þróunarstarfinu
og búa til „skógarnámskrá“ sem
tengist öllum námsgreinum í sam-
þættu skógarnámi og efla um leið
einstaklingsmiðað nám og fjöl-
breytta kennsluhætti, þróa mats-
aðferðir og skógartengd viðfangs-
efni sem tengjast grunnþáttum
menntunar, s.s. lýðræði, sjálfbærni,
sköpun, læsi, jafnrétti, heilbrigði
og mannréttindum.
Fljótlega verður foreldrum
barna í Þjórsárskóla boðið á fjöl-
breytt skógarnytjanámskeið þar
sem lögð verður áhersla á tálgu-
tækni, ferskviðarnytjar og skóg-
arhirðu.
Morgunblaðið/Frikki
Skóglendi Unnið er að gerð skógarnámskrár í Þjórsárskóla.
Unnið að skógarnám-
skrá í Þjórsárskóla
Biskup Íslands,
Agnes M. Sigurð-
ardóttir, hefur
skipað séra
Bryndísi Möllu
Elídóttur í emb-
ætti prests í
Seljaprestakalli í
Reykjavík. Emb-
ættið veitist frá
1. desember
næstkomandi.
Frestur til að sækja um embættið
rann út 7. nóvember sl. og voru um-
sækjendur þrettán. Auk Bryndísar
sóttu eftirtaldir um embættið: Anna
Þóra Paulsdóttir guðfræðingur,
séra Arndís G. Bernharðsdóttir
Linn, séra Bára Friðriksdóttir, Dís
Gylfadóttir guðfræðingur, séra El-
ína Hrund Kristjánsdóttir, Eva
Björk Valdimarsdóttir guðfræð-
ingur, Fritz Már Berndsen Jörg-
ensson guðfræðingur, séra Gunnar
Jóhannesson, Kristinn Snævar
Jónsson guðfræðingur, María
Gunnarsdóttir guðfræðingur, séra
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og
Viðar Stefánsson guðfræðingur.
Sóknarprestur Seljaprestakalls
er séra Ólafur Jóhann Borgþórs-
son.
Skipuð prestur
í Seljaprestakalli
Bryndís Malla
Elídóttir
Viðbrögð við áhrifum eldgoss í
Vatnajökli og stórfelldra flóða á
Þjórsársvæðinu á raforkukerfið
voru æfð 6. nóvember í fyrra.
Neyðarstjórn Landsnets hélt æf-
ingu 1311 með þátttöku Neyðar-
samstarfs raforkukerfisins (NSR).
Um 200 manns frá fjölda stofnana
og fyrirtækja tóku þátt í æfing-
unni. Auk þess var æfður flutn-
ingur frétta af atburðarásinni.
Gert var ráð fyrir því að öskufall
ylli truflunum á flutningi og fram-
leiðslu rafmagns. Auk þess yrði
tjón á mannvirkjum vegna flóða.
Af þessu leiddi
raforkuskortur
og þurfti að
skerða raforku
til stóriðju og
almennings, að
sögn Lúðvíks B.
Ögmundssonar,
öryggisstjóra
Landsnets og
formanns NSR.
Nú, rúmu ári síðar, búa menn sig
undir að mögulega þurfi í raun og
veru að takast á við slíkan atburð.
Viðbrögð við gosi og flóði æfð
SVIÐSMYND HAMFARA Á ÆFINGU Í FYRRA GÆTI RÆST
Lúðvík B.
Ögmundsson.
Ríkisstjórnin
samþykkti í
gær, að tillögu
forsætisráð-
herra, að veita
samtals 8 millj-
óna króna styrk
af ráðstöf-
unarfé sínu í
tilefni jóla til
tíu góðgerða-
samtaka sem starfa hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
forsætisráðuneyti fá Mæðra-
styrksnefnd Akureyrar, Mæðra-
styrksnefnd Hafnarfjarðar,
Mæðra- styrksnefnd Kópavogs,
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands
og Hjálpræðisherinn á Íslandi
700.000 krónur hver samtök.
Hjálparstarf kirkjunnar, Sam-
hjálp, Rauði kross Íslands og Fjöl-
skylduhjálp Íslands og Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur fá
900.000 þúsund krónur hver.
Ríkisstjórnin styrkir
hjálparsamtök
Félagar í Mæðra-
styrksnefnd.
Ecco Trace Lite
Stærðir: 36-42
Verð kr. 26.995
Ecco Cleo
Stærðir: 36-42
Verð kr. 23.995
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050
STEINAR WAAGE KRINGLAN & SMÁRALIND
WWW.SKOR.IS