Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Vegna óvanalega mikils músagangs
í húsum víða á landinu sendi Mat-
vælastofnun frá sér tilkynningu í
gær þar sem segir að mýsnar eigi
ekki að þurfa að þjást í drekking-
argildrum.
„Í baráttunni við að halda músa-
gangi í skefjum er rétt að minna á
að við eyðingu meindýra er óheim-
ilt að beita aðferðum sem valda
þeim óþarfa limlestingum og kvöl-
um. Rétt er að minna á að sam-
kvæmt lögum um velferð dýra er
óheimilt að aflífa dýr með því að
drekkja þeim,“ segir meðal annars í
tilkynningunni.
Drekkingar-
gildrur
ólöglegar
Óheimilt að valda
meindýrum óþarfa kvölum
Morgunblaðið/Kristján
Meindýr Mýs hafa sinn rétt þótt
þær séu mörgum til ama.
Olíufélögin lækkuðu í gær verð á
bensíni um 2,00 kr. hvern lítra og 3,00
kr. hvern lítra af dísilolíu. Lækkunin
nemur samtals 4,00 kr. á bensínlítra
og 5,00 kr. á dísilolíulítrann á tveimur
dögum, en frá því í júlí í sumar hefur
N1 lækkað verðið á bensíninu um
27,90 kr. og á dísilolíu um 17,40 kr.
Stefán Karl Segatta, eldsneytis-
innkaupastjóri hjá N1, segir að lækk-
unin nú sé tilkomin vegna lækkandi
heimsmarkaðsverðs á eldsneyti. Í
fyrradag hafi OPEC (Samtök olíu-
framleiðsluríkja) tilkynnt að ekki
yrði dregið úr framleiðslunni. Í kjöl-
farið hafi verð á hráolíu fallið og í lok
dags hafi lækkunin numið tæplega 6
dollurum á tunnuna. Það hafi haft
mikil áhrif til lækkunar á bensín- og
dísillítranum í fyrradag og aftur í
gær.
Tunnuverðið á hráolíu er nú um 73
dollarar, en var um 115 dollarar í júní
sem leið. Þá var meðalverðið fyrir
bensíntonnið tæplega 1.050 dollarar,
en meðalverðið í nóvember stefnir á
að verða tæplega 760 dollarar, að
sögn Stefáns. Bensínlítrinn hjá N1
kostar nú 223,90 kr.
Stefán bendir á að opinber gjöld af
verði bensínlítrans séu um 52% fyrir
utan greiðslur í flutningsjöfn-
unarsjóð og vörugjöld til hafna. Hann
bætir við að ómögulegt sé að segja til
um bensín- og dísilverð í nánustu
framtíð, því ýmislegt hafi áhrif á
heimsmarkaðsverðið á hráolíu eins
og til dæmis framleiðsla hráolíu í
Bandaríkjunum.
Bensínið lækkar enn á ný
Morgunblaðið/Kristinn
Eldsneyti Ýmislegt hefur áhrif á verðið á bensíni og dísilolíu.
Bensínlítrinn hefur lækkað um 27,90 krónur frá því í júlí
Starfsfólk leikskólans Drafn-
arsteins mætir á Bláa róló sem er á
horni Túngötu og Bræðraborgar-
stígs í Reykjavík,frá klukkan 10 til
14 í dag með kaffi og kakó, ýmis-
legt góðgæti og annan varning til
sölu.
Þessi viðburður er til þess að
safna fyrir námsferð sem starfs-
fólkið ætlar að fara næsta vor.
Markaður á Bláa róló
Á morgun, fyrsta
sunnudag í að-
ventu, verða að-
ventuljósin tendr-
uð í fyrsta skipti í
Kirkjuseli Graf-
arvogssafnaðar á
Spönginni í
Reykjavík.
Guðsþjónustan
hefst kl. 13 í
Kirkjuselinu og
munu börn kveikja á svonefndu
spádómskerti. Næstu sunnudaga á
aðventunni verða tendruð ljós á
hirðakerti, englakerti og Betle-
hemskerti.
Kveikt á aðventu-
kransi í Kirkjuselinu
Kveikt verður á
spádómskertinu.
GRÍPTU GÆSINA
CHATEAU
SPORTÍS
SETTU ALVÖRU GÆÐI Í JÓLAPAKKANN!
HYBRIDGE
CITADEL
MONTEBELLO
KENSINGTON
TRILLIUMVICTORIA
kr.129.990.-
kr.104.990.-
kr.114.990.-
LODGE
kr.99.990.-
kr.129.990.-
kr.114.990.-
kr.89.990.-
kr.114.990.-
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS