Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stuðmenn hafa alltaf litið á Sjallann
sem sinn heimavöll. Minningarnar
sem tengjast húsinu eru ótrúlega
margar og góðar; jafnt úr búnings-
klefunum og af sjálfu sviðinu. Þar
sést yfir salinn og parketklætt dans-
gólfið þar sem ævintýrin gerast jafn-
an,“ segir Jakob Frímann Magnús-
son, forsprakki Stuðmanna.
Í kvöld halda Stuðmenn sitt allra
síðasta gigg í Sjallanum á Akureyri
og raunar hafa fleiri listamenn kom-
ið þar fram að undanförnu undir
sömu formerkjum Húsið hefur nú
verið selt mönnum sem fá að því
lyklana um áramótin næstu og ætla
að breyta byggingunni í hótel.
Óskabörn stíga á svið
Sjallinn var opnaður árið 1963 og
þótti húsið strax henta vel til
skemmtanahalds og stemningin þar,
til dæmis á dansleikjum með hljóm-
sveit Ingimars Eydal, var rómuð og
er svo enn í dag. Á þessari rúmu
hálfu öld hafa raunar flestar íslensk-
ar hljómsveitir sem eitthvað kveður
að haldið skemmtanir í Sjallanum.
Mikið verður lagt undir á Stuð-
mannaskemmtun sem hefst kl. 21
með hanastéli þar sem bæjarstjóri
Akureyringa, Eiríkur Björn Björg-
vinsson, flytur ávarp. Þá verður sýnt
myndband með brotum úr sögu
hússins og óskabörn akureyrskrar
sönglistar stíga á svið, þau Kristján
Jóhannsson og Helena Eyjólfs-
dóttir. Í framhaldinu flytja Stuð-
menn dagskrá sína með lögum af
hljómplötunni Tívolí frá 1976, sem
þeir fluttu svo eftirminnilega í Hörp-
unni í haust. Í framhaldinu hefst síð-
an svellandi dansleikur þar sem gera
má ráð fyrir að allir helstu smellir
sveitarinnar verði fluttir, lög sem á
margan hátt eru þjóðsöngvar Ís-
lendingar.
Ragnhildur og
Valgeir með í kvöld
„Kristján Jóhannsson söng
Hamraborgina á sínum tíma svo óm-
aði um landsins breiðu byggðir. Og
kannski má – svona á vissan hátt –
segja að Sjallinn hafi verið hin norð-
lenska hamraborg skemmtanalífsins
– svo og okkar Stuðmanna, svo oft
höfum við spilað í höfuðstað Norður-
lands,“ útskýrir Jakob Frímann
Magnússon, sem er Akureyringur
að uppruna.
„Þegar við sendum frá okkur
fyrstu plötuna, Sumar á Sýrlandi,
sem var árið 1975, voru með okkur í
Sjallanum hinn rómaði blússöngvari
Long John Baldry og svo hin ramm-
íslenska revíusöngkona Steinka
Bjarna. Ævintýrin í Sjallanum eru
þegar ég lít til baka raunar óteljandi
og ég minnst þess að þarna frum-
fluttum við lagið Í sambandi, sem
var í myndinni Með allt á hreinu sem
var raunar tekin upp að talsverðum
hluta á Akureyri. Þá er Segðu mér
satt Sjallalag og þau kunna meira að
segja að vera fleiri en ég man í fljótu
bragði.“
Vegna Sjallahátíðar kvöldsins
hafa Stuðmenn kallað til allt sitt
besta fólk. Mun hljómsveitin, að
sögn Jakobs, nú koma fram nánast
eins og hún var skipuð árið 2005 en
þá voru innanborðs – auk Jakobs –
þau Ragnhildur Gísladóttir, Valgeir
Guðjónsson, Egill Ólafsson, Ásgeir
Óskarsson, Tómas Tómasson og Ey-
þór Gunnarsson. Þá verður gítar-
leikarinn Friðrik Karlsson sér-
stakur gestur Stuðmanna að þessu
sinni – svo segja má að valinn maður
sé í hverju einasta rúmi.
Heimahöfn og hamraborgin
Stuðmenn kveðja Sjallann á Akueyri í kvöld eftir langa samfylgd Séð af sviðinu mörg ævintýri
gerast á dansgólfinu, segir Jakob Frímann Magnússon Skemmtistaðnum verður breytt í hótel
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Stuðmenn könnuðu aðstæður í Sjallanum í gærdag. Í kvöld verður talið í og tekið til við að tvista, eins og sungið er í frægu lagi þeirra.
Ljósm/Úr einkasafni Helenu Eyjólfsdóttur
Blómaskeið Hljómsveit Ingimars Eydal var lengi húsband í Sjallanum og
varð sem slík einkenni Akureyrar, líkt og KEA og kirkjutröppurnar.
Það var um árið 1960 sem fram
komu hugmyndir um byggingu
samkomuhúss á horni Gránu-
félagsgötu og Glerárgötu á Ak-
ureyri. Sjálfstæðismenn í bænum
stofnuðu hlutafélagið Akur um
kaup á húsi sem þá var á þessu
horni. Það var rifið og Sjálfstæð-
ishúsið byggt í staðinn. Gísli Hall-
dórsson arkitekt teiknaði húsið og
Akursmenn hófu framkvæmdir
sumarið 1961. Aðalsalur Sjálfstæð-
ishússins var formlega tekinn í
notkun 5. júlí 1963, en þá höfðu
Ingimar Eydal og hans fólk verið
ráðin sem húshljómsveit.
Ingimar með sveit sinni lék í
Sjallanum frá 1963 til 1976, en það
ár slasaðist Ingimar alvarlega í bíl-
slysi og varð að hætta. Hann sneri
reyndar aftur síðar, en þá undir
öðrum formerkjum. Hljómsveit
Finns, bróður Ingimars, var hús-
band í Sjallanum frá 1977 til 1980.
Fjölmargir þekktir tónlistarmenn
voru í Hljómsveit Ingimars Eydal á
velmektartímum hennar. Þar má
meðal annars nefna Þorvald Hall-
dórsson og stórsöngvarann Vil-
hjálm Vilhjálmsson sem var innan-
borðs 1965 til 1966. Helena
Eyjólfsdóttir, kona Finns, söng ár-
unum saman með sveit Ingimars.
Sjallinn brann að kvöldi 19. des-
ember 1981. Hinn nýi Sjalli var opn-
aður til dansleikjahalds 25. júní
1982, hálfu ári eftir brunann. Hús-
inu hafði þá verið breytt verulega,
en það tekur á góðum degi allt að
1.000 gesti. „Fjölmennir dansleikir
heyra nánast sögunni til og grund-
völlur fyrir starfsemi í þeirri mynd
sem verið hefur er ekki lengur til
staðar,“ segir Elís Árnason. Þeir
Þórhallur Arnórsson eiga Sjallann
og hafa staðið að skemmtanahaldi
þar frá 1995 en ætla nú að slá loka-
tóninn í þeim rekstri. Sjallinn sem
var heyrir senn sögunni til.
Fjölmennir dansleikir úr sögunni
SUNGIÐ OG DANSAÐ Í SJALLANUM FRÁ 1963
Goðsögn Vilhjálmur Vilhjálmsson var
söngvari í Sjallanum í kringum 1965,
Ljósm/Úr safni Helenu Eyjólfsdóttur
H-Berg ehf | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
Nýjar vörur
Sætuefni
Vöfflumix
Agave síróp dökkt
Agave síróp ljóst
Kókosolía
FRÁBÆR
T
VERÐ