Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 29

Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 29
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Sem hestamaður hef ég góða tilfinn- ingu fyrir þessu. Hér er rík hefð fyrir hestamennsku og fyrir útreiðum,“ segir Einar Öder Magnússon tamn- ingamaður sem er faglegur ráðgjafi Pur Cheval við kynningu á íslenska hestinum í Frakklandi. Fyrirtæki Ingibjargar Kristjánsdóttur og Ólafs Ólafssonar hefur staðið fyrir kynn- ingarátakinu sem nær hápunkti á Hestasýningu Parísar sem nú stend- ur yfir. Þar er íslenska hestinum hampað sem hestakyni sýningar- innar. Pur Cheval, Hinn hreini hestur, sem er fyrirtæki Ingibjargar og Ólafs hefur staðið fyrir kynningar- átaki á íslenska hestinum í Frakk- landi í átján mánuði. Markmiðið var að efla vitund og útbreiðslu íslenska hestsins hjá hestaáhugafólki í Frakk- landi og ná til franskra hestamanna. Jákvæð viðbrögð hjá öllum „Við erum sátt, náðum að koma hestinum vel á framfæri og fengum jákvæð viðbrögð hjá öllum,“ segir Ólafur Ólafsson. Með samstarfi við helsta hestatímarit Frakklands tókst að fá reglulega umfjöllun um íslenska hestinn. Sömuleiðis komst hesturinn í franskt sjónvarp með þáttum á stöð sem sérhæfir sig í umfjöllun um hestamennsku. Meðal annars var gerð sjónvarpsmynd sem tekin var upp hér á landi, meðal annars í smalamennsku, stóðréttum og hesta- ferð, og vakti athygli í Frakklandi. Þá hefur komist á samstarf við reiðskóla og hefur íslenski hesturinn þótt spennandi þar. Pur Cheval tók þátt í stórsýning- unni Paris Horse Show á síðasta ári og hafði það jákvæð áhrif lengi á eft- ir, að sögn forsvarsmanna fyrirtæk- isins. Á Parísarsýningunni í ár er ís- lenski hesturinn heiðurshestur sýningarinnar og fær með því mikla kynningu fyrir sýninguna og meðan á henni stendur. Sýningin stendur í tíu daga og er sýningarbás Pur Cheval með dagskrá alla dagana, sýningar, keppnir og almenna fræðslu, auk þess sem teknar eru myndir af börn- um og unglingum á baki og gestir fá að bregða sér á bak. Þarf að fylgja eftir Íslenski hesturinn hefur ekki náð sömu vinsældum í Frakklandi og í þýskumælandi löndum Evrópu og í Skandinavíu. Einar Öder segir að mikil hefð sé fyrir reiðmennsku í Frakklandi og mikið sótt í þann skóla. Hann telur að með þessu markaðsátaki hafi tekist að breyta ímynd íslenska hestsins á þessum markaði. Þau hafi náð athygli reið- manna. Segist hann ekki vera í vafa um að þegar farið sé að nota hestinn við útreiðar komi stórlaxarnir á eftir og fari að rækta, eins og alls staðar hafi gerst, og keppnin komi síðan í kjölfarið. „Það þarf að fylgja þessu eftir,“ segir Einar Öder og getur þess að verkefnið hafi verið kynnt fyrir helstu hagsmunaaðilum á Íslandi. „Afraksturinn er miklu meiri en tölur um útflutning hrossa sýna. Fólk hef- ur fengið áhuga á íslenska hestinum og það hefur skilað sér í því að fleiri Frakkar heimsækja Ísland og sumir fara í hestaferðir.“ Ólafur segir að framhaldið sé í höndum þeirra sem flytja út hesta. Þeir þurfi að leggja meiri áherslu á þennan markað, meðal annars með því að útbúa kynningarefni á frönsku svo það sé aðgengilegt. Íslenski hesturinn í heiðurssessi  Hápunktur átján mánaða kynningarátaks Pur Cheval er á Hestasýningu Parísar  Áhersla lögð á að ná til hestafólks og almennings  Komust í hestamiðla  Vonast til að Frakklandsmarkaður opnist Parísarteymið Ólafur Ólafsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Charlotta Gripenstam, Svanhvít Kristjánsdóttir og Einar Öder Magnússon. Sýning Daglegar sýningar eru á Hestasýningunni í París. Í dag verður efnt til keppni á sýningarsvæði Pur Cheval og dæmir Einar Öder Magnússon. ÚR BÆJARLÍFINU Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnesi Bjarnarbraut 8 hefur í gegnum tíðina hýst ýmsa þjónustustarfsemi sem hefur komið og farið í áranna rás. Þar var lengi vel Skólaskrif- stofa Vesturlands, Fasteignamat ríkisins og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra svo eitthvað sé nefnt. Nú er mikið líf í húsinu og hýsir það 11 fyrirtæki og stofnanir. Meðal „ný- búa“ hússins má nefna Hugheima – frumkvöðlasetur sem tók til starfa í haust og er opið frumkvöðlum á Vesturlandi. Markmiðið með starf- seminni er m.a. að skapa drífandi umhverfi fyrir framþróun hug- mynda og örvun nýsköpunar á Vest- urlandi. Í haust fór af stað hug- myndavinna um hvernig mætti gera húsið meira aðlaðandi og þá sér- staklega hið sameiginlega miðrými. Með samstilltu átaki hefur orðið gjörbylting og nú hittist starfsfólk þar í notalegu umhverfi og drekkur kaffisopann saman. Opið hús var síðan fimmtudaginn 20. nóvember á Bjarnarbrautinni þar sem gestum og gangandi var boðið að koma og fræðast um starfsemi fyrirtækja og stofnana í húsinu auk þess að njóta léttra veitinga. Liðlega hundrað manns litu inn og voru „húsráð- endur“ himinlifandi með heimsókn- ina.    Fádæma blíða hefur leikið við okkur á Vesturlandi í nóvember og vel hefur viðrað til útivistar. Ein af útivistarperlunum okkar eru svo- kallaðar Einkunnir sem er skóg- ræktarreitur vestast í Hamarslandi við Borgarnes. Sveitarfélagið hefur séð um rekstur og framkvæmdir og er staðurinn orðinn hinn ákjósan- legasti til útivistar. Þar má tína ber og matsveppi á haustin, veiða í Álat- jörn sem þar er nálægt auk þess að njóta gönguferða. Hestamenn fara gjarnan ríðandi upp að Einkunnum og hundar skokka með eigendum sínum.    Nú er hinsvegar fyrirhugað að breyta aðalskipulagi Borgar- byggðar 2010-11 og breyta land- notkun svæðis í landi Hamars úr landbúnaði í íþróttasvæði. Tillaga liggur fyrir að breyttu deiliskipulagi fyrir Einkunnir í þá veru að taka ákveðið svæði þar í grenndinni und- ir skotæfingasvæði.    Viðbrögðin láta ekki á sér standa Hilmar Már Arason, for- maður umsjónarnendar Einkunnar, ritaði grein í Skessuhorn þar sem hann bendir á fjölmörg atriði sem huga þarf að og segir m.a. „Jafn- framt er það ekki í anda meg- inmarkmiðs skipulagsins en það er m.a. að tekin skulu mið af sjálfbærri þróun við skipulag og uppbyggingu sveitarfélagsins og taka skuli sér- stakt tillit til umhverfis- og nátt- úruverndar við skipulag og þróun svæða. Jafnframt því mun þessi breyting eyðileggja náttúruupplifun fólks í fólkvanginum og draga úr ör- yggis- tilfinningu þeirra sem fólk- vanginn sækja“. Hann bendir jafn- framt á tiltölulega stutta fjarlægð frá riffilbraut að fólkvangsmörkum og trúir því að í jafn stóru og víð- feðmu sveitarfélagi og Borgarbyggð er, hljóti að vera hægt að finna æf- ingasvæði fyrir byssueigendur sem sátt muni ríkja um. Og það er ég líka sannfærð um að takist! Mikið líf í virðulegu húsi Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Notalegt umhverfi Það er huggulegt á Bjarnarbrautinni í Borgarnesi og útsýni til Hafnarfjallsins. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, gagnrýnir málsmeðferð ríkis- stjórnarinnar varðandi ramma- áætlun og segir ófaglega að því staðið að leggja til að sjö nýir virkjanakostir fari í nýting- arflokk. Vísar hann þar til þeirrar breyt- ingatillögu Jóns Gunnarssonar, formanns at- vinnuveganefnd- ar, að auk Hvammsvirkjunar skuli sjö virkjanakostir færðir úr bið- flokki í nýtingarflokk. Fram kom í samtali við Stefán Gíslason, formann verkefnis- stjórnar þriðja áfanga rammaáætl- unar, í Morgunblaðinu í gær að verkefnisstjórnin hefði fjallað um þrjá virkjanakosti í Þjórsá; Hvammsvirkjun, Urriðafossvirkjun og Holtavirkjun. Hún hefði sam- þykkt að Hvammsvirkjun skyldi fara í nýtingarflokk en að herslu- muninn vantaði upp á að hinir tveir kostirnir gætu farið í sama flokk. Verkefnisstjórnin hefði hins vegar ekki haft tíma til að skoða fimm aðra kosti af þeim átta sem Jón lagði til að færu í nýtingarflokk. Þingmenn ósammála um lögin „Vinna við gerð rammaáætlunar hófst um síðustu aldamót. Fyrsti áfangi kláraðist og virkjanir voru metnar eftir verndar- og/eða nýt- ingargildi. Annar áfangi hófst árið 2007 eftir að Þórunn Sveinbjarnar- dóttir tók við embætti umhverfis- ráðherra. Það er síðan ekki fyrr en árið 2011 að rammáætlun fær laga- lega umgjörð,“ segir Árni. „Það gerist svo í gær að þing- menn eru hreint ekki sammála um það hvað lögin segja. Þetta minnir svolítið á það sem kom upp um dag- inn, þegar Landsnet lagði fram Sprengisandslínu til mats á um- hverfisáhrifum, þrátt fyrir að iðn- aðarráðherra hafi lagt fram í þinginu þingsályktunartillögu um stefnu stjórnvalda varðandi raf- línulagnir. Umhverfisráðherra á að leggja fram þingsályktunartillögu um landsskipulag, sem hefði þá bæði áhrif á Sprengisandslínu og Sprengisandsveg.“ Áætlunin gengur út á sátt „Frágangur Alþingis og stjórn- sýslan virðast í lausum skorðum. Rammaáætlun gengur út á að ná sátt um aðferðafræði. Niðurstaða gærdagsins er að það er engin sátt um aðferðafræðina,“ segir Árni og vísar til harðra viðbragða stjórnar- andstöðuþingmanna eftir að Jón lagði fram breytingatillöguna í at- vinnuveganefnd sl. fimmtudag. „Það er mjög sérstakt að Katrín Jakobsdóttir skuli hafa kallað eftir því – ef málið haldi áfram í sama farvegi – að þingið taki afstöðu til þess hvað lögin segi. Mín niðurstaða er sú að málið er illa unnið. Fyrsti áfangi fer fram án þess að það gildi nokkur lög. Annar áfangi hefst án þess að það gildi nokkur lög og nú þegar þriðji áfangi er að hefjast eru menn ekki sammála um hvað lögin segja.“ Lausatök við rammaáætlun  NSÍ gagnrýna vinnubrögð þingsins Árni Finnsson FRÉTTIR 29Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.