Morgunblaðið - 29.11.2014, Síða 31

Morgunblaðið - 29.11.2014, Síða 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 NORDAHL Lokkar 3.490 Hringur 3.990 Hálsmen 7.500 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is er með jólagjöfina FOSSIL Armband m/leðri 7.200 Hálsmen 10.150 Pelasett 9.900NORDAHL Hálsmen 17.500 Lokkar 8.500 LOVÍSA Hálsmen 7.500 Lokkar 12.700 Armband 13.400 NORDAHL Armband 6.700 Hálsmen 5.800 FOSSIL Armband 8.200 FOSSIL 32.700 FOSSIL 37.500 FOSSIL 23.600 FOSSIL 25.900 Daniel Wellington 29.800 Daniel Wellington 29.800 Fasteignaverð og kaupmáttur launa hefur fylgst nokkuð náið að á síðustu árum og ekki er að sjá að fasteigna- verð hafi þróast mikið úr takti við það sem eðlilegt megi teljast. Þetta kemur fram í Hagsjá Hagfræðideild- ar Landsbankans. Í nýrri þjóðhagsspá Landsbank- ans er því spáð að fasteignaverð hækki um 8,5% í ár frá fyrra ári, um 9,5% árið 2015, 6,5% árið 2016 og um 6,2% á árinu 2017. Megindrifkraft- urinn í hækkuninni er þróun kaup- máttar, tekna og atvinnustigs. Kaupmáttur launa hefur aukist mikið á undanförnum mánuðum og Landsbankinn spáir áframhaldandi hækkun kaupmáttar á næstu árum. Þá muni fasteignaverð fylgja þeirri þróun, en þó ekkert í líkingu við það sem gerðist fyrir áratug þegar fast- eignaverð tók á skrið án tengsla við aðrar raunstærðir hagkerfisins. Bætt atvinnustig og áhrif minni skulda heimilanna, og þar með aukið veðrými, er talið munu styðja þessa þróun og valda því að fasteignaverð hækki eitthvað umfram verðbólgu og kaupmátt, sérstaklega árið 2015. brynja@mbl.is Fasteignaverð mun hækka í takti við þróun kaupmáttar Morgunblaðið/ÞÖK Fasteignir Hagfræðideild Landsbankans spáir hækkun fasteignaverðs. Viðskiptaráð Ís- lands leggst gegn laga- frumvarpi um breytingu á lög- um um virð- isaukaskatt, á þeim grundvelli að frumvarpið dragi úr einföld- un og skilvirkni skattkerfisins. Með frumvarpinu er lagt til að þjóð- kirkjusöfnuðum og skráðum trú- félögum og lífsskoðunarfélögum verði endurgreiddur allur virðisauka- skattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna við endurbyggingu og viðhald kirkna eða samkomuhúsa. Í umsögn Viðskiptaráðs kemur fram að ráðið sé almennt mótfallið undanþágum frá greiðslu neyslu- skatta. Þar segir: ,,Íslenska virðis- aukaskattkerfið er óskilvirkt og inn- heimtuhlutfall hérlendis er vel undir meðaltali OECD-ríkja. Það orsakast af miklu umfangi undanþága og því að margir veigamiklir vöru- og þjón- ustuflokkar falla undir lægra skatt- þrep, sem veldur því að hið almenna þrep skattsins hækkar.“ Þá segir í umsögninni að und- anþágum frá skattgreiðslum fylgi tapaðar skatttekjur, velferðartap og umsýsla sem auki kostnað við fram- fylgni laganna. Með færri und- anþágum frá virðisaukaskatti megi takmarka þennan kostnað. brynja@mbl.is Gegn und- anþágum trúfélaga Skattur Frumvarpið nær til kirkna. Innflutningskvóti fyrir sjávaraf- urðir til Nígeríu var skyndilega aukinn um 750.000 tonn og gildir til áramóta. Mikið framboð er af makríl nú, meðal annars vegna innflutningsbanns Rússa, og streymir hann til Nígeríu. Nígería er jafnframt mikilvægur markaður fyrir makríl frá Íslandi. Þetta kemur fram á netmiðlinum kvotinn.is. Erfitt hefur reynst að koma makr- íl úr frystigeymslum í Hollandi og Þýskalandi, en kapp er lagt á að nýta innflutningskvótann til Nígeríu fyrir áramót. Þá hefur verkfall í níg- erískum höfnum tafið afgreiðslu og sendingar á makríl til landsins. Þetta hefur svo leitt til verðlækk- unar á makríl í landinu, sem gerir mörgum nýjum innflytjendum í Níg- eríu erfitt fyrir, því oft hafa þeir keypt makrílinn fyrirfram. brynja@mbl.is Verðlækk- un á makríl til Nígeríu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.