Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Jólagjafirnar fást í Krumma
Gylfaflöt 7 • 112 Reykjavík • 587 8700
Opið virka daga 8:30-18:00, laugard. 11:00-16:00 www.krumma.is
24.700 kr.
22.552 kr.
15.800 kr.
12.500 kr.
15.660 kr.
8.900 kr.
5.800 kr.
Huepetuhe. AFP. | Stór hluti regn-
skóga á svæði sem nefnist „Móðir
Guðs“ hefur verið eyðilagður með
ólöglegu gullnámi á Amazon-
svæðinu í Perú. Í stað regnskóganna
safnast eiturefni, kvikasilfur og aðr-
ir þungmálmar á svæðinu og berast
þaðan í jarðveginn og árnar.
Tugir þúsunda gullgrafara hafast
við í „Villta vestri hitabeltisins“, eins
og heimamenn kalla svæðið, og
vinna þar allan sólarhringinn við
námugröftinn. Stórvirkar vinnu-
vélar eru notaðar til að ryðja skóg-
lendið.
Perú er nú í sviðsljósinu vegna
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna sem haldin verður þar í landi 1.
til 12. desember. Þá verður reynt að
ná samkomulagi um að ríki heims
dragi úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda til að stemma stigu við lofts-
lagsbreytingum í heiminum. Stefnt
er að því að undirrita samkomulagið
á næsta ári.
Gestgjafarnir hafa sætt gagnrýni
umhverfisverndarsinna vegna
spjalla á regnskógum á Madre de
Dios, „Móður Guðs,“ landsvæði við
landamærin að Brasilíu sem er eitt
af stærstu samfelldu regn-
skógasvæðum heimsins.
Um 50.000 hektarar
hafa eyðilagst
Áætlað er að um 50.000 hektarar
af skóglendi hafi nú þegar eyðilagst
vegna gullnámsins, skv. upplýs-
ingum frá umhverfisráðuneytinu í
Perú. Það tekur „að minnsta kosti 40
ár“ að endurheimta skóglendið, að
sögn Ronalds Corvera, yfirmanns
IIAP, perúskrar stofnunar sem ann-
ast rannsóknir á Amazon-svæðinu.
„Hér er ógrynni af gulli,“ segir
hann. „Fátækt fólk flykkist hingað
hvaðanæva til að grafa eftir gullinu.“
Ólöglegt gullnám er mikil tekju-
lind í Perú. Námurnar eru starf-
ræktar allan sólarhringinn og sumar
þeirra gefa um það bil 400 grömm af
gulli á dag. Eigendur námanna sjá
sjálfir um að flytja gullið út og fá um
það bil 25.000 dali, jafnvirði 3,1 millj-
ónar króna, fyrir hvert kíló af málm-
inum.
Metið á 62.000 milljarða
Námurnar eru á um 400 kílómetra
löngu vatnasvæði ánna Madre de
Dios og Inambari. Áætlað er að á
svæðinu sé gull að andvirði 500 millj-
arða dala, jafnvirði 62.000 milljarða
króna, samkvæmt rannsókn ESAN-
háskóla. Það er um fimmtán sinnum
meiri fjárhæð en allar erlendar
skuldir Perú.
Á ári hverju eru um 164 tonn af
gulli unnin í Perú sem er í fimmta
sæti á lista yfir þau lönd sem fram-
leiða mest af góðmálminum. Um
20% af gullinu koma úr ólöglegum
námum.
Um 50.000 gullgrafarar
Um 50.000 manns hafa flust bú-
ferlum á svæðið og hafast við í risa-
stórum vinnubúðum. Algengt er að
átök blossi upp í La Pampa, stærstu
búðunum, og deilur eru oft útkljáðar
með byssum.
„Í hverri viku liggja nokkrir menn
í valnum hérna. Stundum liggja lík
dögum saman á götunum eftir skot-
bardaga. Stundum hverfa menn,
þeir eru þá drepnir og grafnir ein-
hvers staðar þar sem líkin finnast
aldrei,“ segir einn námumannanna á
svæðinu.
Lögreglumenn fá borgað í gulli
fyrir að láta sem þeir viti ekki af
morðunum og öðrum lögbrotum á
svæðinu, að sögn námumannanna.
Ríkisstjórnin í Perú hefur heitið
því að binda enda á ólöglega gull-
námið. Lögreglan og herinn hafa
nokkrum sinnum gert áhlaup til að
eyðileggja tæki sem notuð eru í
námunum og handtaka þá sem
standa fyrir gullnáminu. „Það verð-
ur ekkert vopnahlé í baráttunni
gegn ólöglegu námunum. Aðgerð-
unum verður haldið áfram þar til
gullnámið hefur verið upprætt,“ seg-
ir Aldo Soto, sem stjórnar aðgerðum
hersins og lögreglunnar.
Talið er að á ári hverju berist um
30 til 40 tonn af kvikasilfri í árnar úr
ólöglegu gullnámunum. Samkvæmt
rannsókn vísindamanna við Stand-
ford-háskóla mælist kvikasilfrið í
líkama íbúanna á svæðinu langt yfir
hættumörkum.
Þrátt fyrir skógareyðinguna koma
ár hvert um 100.000 erlendir ferða-
menn á Amazon-svæðið í Perú til að
skoða náttúrulífið í regnskógunum.
Gullæði í Villtu
vestri regn-
skóganna í Perú
Eiturefni og þungmálmar úr ólög-
legum gullnámum berast í árnar
200 km
Heimild: Umhverfisráðuneyti Perú *Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
Þróun ólöglegs gullnáms
í Madre de Dios
Svæði þar sem ólöglegt gullnám er stundað
Ólöglegur gullgröftur í Perú
1987
842 hektarar
2000
6.254 hektarar
2011
32.750 hektarar
2013
50.000 hektarar
eða eins og 100.000
fótboltavellir
EKVADOR
BRASILÍA
KÓLUMBÍA
Kyrrahaf
PERÚ
LIMA
Cusco
Madre
de Dios
Puno
Ólöglegt gullnám hefur verið mikil gróðalind:
Gullið úr ólöglegu námunum er einkum selt til:
$
- hagnaður á ári 125 milljarðar króna
- skattaundanskot 38 milljarðar króna
Sviss KínaBanda-
ríkjanna
Vinnan:
Námumennirnir þurfa
að vinna í sólarhring
samfleytt og fá síðan
tólf stunda hvíld. Fólkið
vinnur án ráðningar-
samninga og nýtur engrar
verndar, er t.d. ekki með
neinar sjúkratryggingar. Er
oft án hreins drykkjarvatns
og sýkingarhætta er mikil
Umhverfisspjöll:
·Meira en 50.000 hektarar
af skóglendi hafa eyðilagst
· Margar dýrategundir hafa
misst búsvæði
· Eiturefnaleifar hafa
valdið mengun í lofti,
jarðvegi og ám
(blásýrusalt og
kvikasilfur)
Heilsuspjöll:
Mannslíkaminn tekur
í sig kvikasilfur og aðra
þungmálma eins og
blý og arsenik.
Kvikasilfrið í líkama
starfsmanna, sem búa
nálægt námunum,
er áttfalt yfir
hættumörkumWHO*
Félagsleg vandamál:
· Barnaþrælkun
· Ofdrykkja
· Vændi
· Brot á lögum um
vinnuvernd og
atvinnustarfsemi
Á Amazon-svæðinu hefur skóglendi verið eyðilagt og ár mengast vegna gullnámsins
Perú er í fimmta
sæti á lista yfir
lönd sem flytja út
mest af gulli
AFP
Móðir Guðs Ein af gullnámunum
í Villtu vestri regnskóganna.
Þótt liðsmenn vígasveita Ríkis íslams
vilji stofna kalífadæmi í Írak og Sýr-
landi og framfylgja strangri túlkun
leiðtoga samtakanna á sjaría-lögum
ganga þeir ekki svo langt að neita sér
um kartöfluflögur og annað góðgæti
frá vestrænu ríkjunum sem þeir
fyrirlíta.
Þúsundir erlendra liðsmanna eru á
yfirráðasvæðum samtaka íslamist-
anna í Sýrlandi og halda lífinu í versl-
unum á svæðinu, að því er fram kem-
ur í frétt á vef breska blaðsins The
Financial Times. Sala á áfengi hefur
verið bönnuð en kaupmenn á svæðinu
hafa haft dágóðar tekjur af við-
skiptum við erlendu íslamistana sem
kaupa einkum skyndibita, sælgæti,
farsíma og fatnað. Þeir eru meðal
annars sólgnir í kartöfluflögur, vest-
rænt súkkulaði, óáfengan bjór og
orkudrykki.
Margir af kaupmönnunum höfðu
aldrei heyrt um sumt af snakkinu og
sælgætinu, hvað þá um orkudrykk-
ina, áður en útlendingarnir komu á
svæðið. Varningnum er smyglað frá
Tyrklandi og yfirráðasvæði Sýrlands-
stjórnar.
Að sögn The Financial Times kost-
ar dós af orkudrykk um það bil 250
sýrlenskar lírur, jafnvirði 185 króna
og dolla af Pringles-kartöfluflögum
jafnvirði 680 króna. Að meðaltali
þurfa íbúar svæðisins að lifa á sem
svarar rúmum 370 krónum, þannig að
þeir hafa ekki efni á slíkum varningi.
Föst mánaðarlaun erlendu víga-
mannanna nema að minnsta kosti
jafnvirði 27.000 króna og þau eru um
tvöfalt hærri en meðaltekjur íbúanna
á svæðinu. Þar að auki fá þeir jafn-
virði 370 króna á dag í fæðispeninga,
auk þess sem þeir fá skerf af her-
fangi, að því er The Financial Times
hefur eftir íbúum í austanverðu Sýr-
landi. bogi@mbl.is
Íslamistarnir
sólgnir í snakk
Halda lífi í verslunum í A-Sýrlandi
AFP
Íslamisti Einn erlendu vígamann-
anna, líklega franskur ríkisborgari.