Morgunblaðið - 29.11.2014, Page 39
hraða. Sem dæmi um
þetta má nefna fyr-
irætlanir sænska
sveitarstjórnarstigsins
um að hætta þjónustu
yfir borðið og í síma og
veita samræmda þjón-
ustu á vef. Þar er
bókasöfnum ætlað að
þjóna þeim sem ekki
geta notað tölvur. Hér
á landi virðast bank-
arnir ryðja brautina í
þessu tilliti. Hins veg-
ar að vélasölunum er
lokað og eigin kerfi stofnana fara út
á ský þaðan sem almenn kerfi á
markaði eru líka rekin. Flutningur
bakþjónustu frá vélasölum og stað-
arnetum er mjög hagkvæmur fyrir
opinbert vald, eykur fagmennsku og
skýin gera mögulegt að veita þjón-
ustu og vinna við öll kerfi hvar sem
er á jörðinni.
Aðstaða aðila
Staðsetningu opinberrar þjónustu
má meta út frá þrenns konar að-
stöðu:
Kjarnastarfsemi stofnana þarf að
vera til staðar á ákveðnum stað. Þá
er átt við miðlæga þjónustu svo sem
fjarfundabúnað í fullbúnum rýmum
með myndavélum, aðra sameigin-
lega aðstöðu, sérhæfða aðstöðu fyrir
starfsemi sem ekki fer á netið eða fer
á netið og bása fyrir þá starfsmenn
sem koma til að sinna verkefnum
þar. Þessi kjarnastarfsemi getur
Stofnun
Vélrænt skipulag
Fagstofnanir og aðrar
stofnanir
Starfsfólk Notendur
Hversu háð eru starfsemi og aðilar stað?
Óháðir Að hluta óháðir Alveg háðirUpplýsingatæknin
hefur gefið fyrirheit um
að staður og/eða stund
missi gildi sitt við veit-
ingu margháttaðrar
þjónustu og m.a. op-
inberrar þjónustu.
Þrátt fyrir áhuga á fjar-
vinnslu hér á landi í
upphafi þróunarinnar,
meðan tæknin var lítið
þróuð, hefur lítið orðið
úr raunverulegri fram-
kvæmd. Hér er samt að nokkru leyti
rætt um orðinn hlut í þeim ríkjum
sem fremst fara, einkum Bandaríkj-
unum.
Ný markmið
Heimurinn minnkar og óskir um
búsetu eru margvíslegar. Ungt fólk
vill hafa val t.d. um að búa á Borg-
arfirði eystri eða í London. Engu að
síður ætti það að geta unnið hjá ís-
lenskum stofnunum og fyrirtækjum
og sótt nám við íslenska skóla.
Þessi nýju markmið kalla á
breytta innviði hjá hinu opinbera.
Tækniþróuninni fylgir aukin mið-
stýring og samvinna, það að allir
gangi í takt í þeim atriðum sem
skipta meginmáli. Þá þurfa stofnanir
að vera af ákveðinni lágmarksstærð
til þess að uppbygging nútíma stoð-
þjónustu verði hagkvæm.
Ef öll þjóðin á að hafa sömu mögu-
leika til lífsgæða og stofnanir og fyr-
irtæki eiga að geta valið sér stað-
setningu þarf ríkið líka að eiga og
reka ljósleiðara á samfélagslegum
forsendum um allt land.
Tækifærin framundan
Framundan eru tvær mikilvægar
breytingar á aðstöðu stofnana. Ann-
ars vegar er þjónusta smám saman
að flytjast frá staðbundinni af-
greiðslu til netsins. Þeirri þróun má
haft útibú úti á landi eða á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem einhverjir
af þjónustuþáttum hennar eru til
staðar.
Aðstaða starfsfólks. Starfsfólk
mun í framtíðinni geta búið víðs
fjarri vinnustað og þeim sem þiggja
þjónustuna. Þetta á þó ekki við um
alla, en sumir munu enn um sinn
þurfa að vera þar sem miðlæg þjón-
usta er veitt hvort sem það er út á
netið eða ekki og vafalítið eru und-
antekningarnar margar. Þá eru sum
störf enn alveg bundin við stað.
Aðstaða þeirra sem
þiggja þjónustuna
Þeir sem þiggja opinbera þjónustu
nota tölvubúnað með myndavélum
og „client“-búnaði til samskipta sér
að kostnaðarlausu. Þjónustuna geta
þeir sótt hvaðan sem er á jörðinni,
heima eða heiman. Á þessu eru þó
vissulega margar undantekningar.
Mismunandi starfsemi
Starfsemi stofnana má flokka eftir
flokkunarkerfi Mintzberg þegar
metið er hversu vel starfsemi þeirra
hentar til tölvuvæðingar. Þessi
flokkun er til viðmiðunar, margar
stofnanir falla undir fleiri en einn
flokk, t.d. geta eftirlitsstofnanir bæði
verið fagstofnanir og með vélrænu
skipulagi. Og mjög litlar stofnanir
hafa mismunandi skipulag og verk-
efni.
Vélrænt skipulag. Slíkar stofnanir
framkvæma markmið starfsemi
sinnar einkum í ákveðnum ferlum.
Þær henta best allra stofnana til
hagnýtingar tölvutækni og starfsemi
þeirra getur að mestu leyti farið
fram á vefkerfum þeirra, opnum eða
lokuðum. Dæmi eru Hagstofan,
Íbúðalánsjóður, Þjóðskrá og Sjúkra-
tryggingar.
Fagstofnanir. Meirihluti opin-
berra stofnana tilheyrir þessum
flokki. Þær byggja á fagsjónar-
miðum a.m.k. til jafns við stjórn-
unarleg markmið. Dæmi eru skólar
og heilbrigðisstofnanir. Mjög mis-
munandi er hversu auðvelt er að
flytja starfsemi fagstofnana út á net-
ið, en háskólakennsla og heilbrigð-
isþjónusta er víða veitt í fjarþjón-
ustu.
Fljótandi skipulag. Þá er átt við
nýjar stofnanir og ómótaðar og þær
sem fást við sköpun, t.d. leikhús og
fjölmiðla. Þær byggja oft á skapandi
störfum og geta verið bundnar stað
vegna veiks skipulags og breytilegra
verkefna, t.d. vegna samstillingar.
Aðstaða aðila er sýnd í töflu.
Tímabær tilraun
Það má hugsa sér mikinn ávinning
af uppbyggingu fjarþjónustu, ekki
síst með minni húsnæðiskostnaði, en
einnig aukna sátt um að þjónusta sé
fyrir landið allt og að stofnanir geti
verið hvar sem er á landinu. Þá
liggja fyrir ábendingar um að ímynd
stofnana sem hagnýta sér nýja tækni
batni, að starfsánægja starfsfólks
aukist, að kostnaður minnki og að
ánægja þeirra sem njóta þjónust-
unnar aukist. Vel má hugsa sér að
forstjórar ríkisstofnana og starfs-
menn þeirra séu áhugasamir um að
taka þátt í tilraun í þessu efni.
Tímabært er að gera metnaðar-
fulla tilraun með fjarþjónustu hjá
stofnun með vélrænu skipulagi.
Staðsetning stofnana
Eftir Hauk
Arnþórsson
Haukur
Arnþórsson
Höfundur er stjórnsýslufræðingur.
»Með notkun upplýs-
ingatækni getur
hluti af starfsemi stofn-
ana flust á vefinn. Þá
skapast aðstæður sem
gerbreyta frelsi allra að-
ila til staðsetningar.
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Fyrir rúmum
tveimur árum varð
ég fyrir því óláni að
fótbrotna. Gerðist
það í byrjun nóv-
ember 2012 en þá
gekk skammvinnt
ofsaveður yfir landið
suðvestanvert. Munu
um 50 manns hafa
beinbrotnað í því
veðri. Þannig var að
ég var að koma af
fundi við Borgartún í Reykjavík
þegar allsnörp vindhviða greip
mig þar sem ég var að fara yfir
Katrínartún við Höfðatorg. Var
engu líkara en ég tækist á loft og
skall annar fóturinn á kantsteini
handan götunnar. Við það hrökk
hægri sköflungur í sundur. Svo
heppilega vildi til að þá bar að
þrjá borgarstarfsmenn, þeir komu
mér inn í bíl og héldu hið snarasta
á Landspítalann í Fossvogi. Er
þangað kom var okkur sagt að í
tilvikum sem þessum ætti um-
svifalaust að kalla á sjúkrabíl og
hreyfa hinn slasaða sem minnst.
Hefði ég raunar getað bent þeim
á þetta því ég hafði sótt skyndi-
hjálparnámskeið þar sem hamrað
var á þessu. En við aðstæður sem
þessar hugsar maður ekki alltaf af
skynsemi. Manni er bara efst í
huga að komast á sjúkrahús. Ég
var í nokkra daga á spítalanum og
naut frábærrar umönnunar og vil
ég sérstaklega þakka læknunum,
þeim Súsönnu Björgu Ástvalds-
dóttur og Svavari Haraldssyni, og
aðstoðarfólki þeirra sem ég kann
ekki að nafngreina. Hin virka alúð
og umhyggja sem einkenndi þetta
fólk yljar manni um hjartarætur
um ókomna tíð. Hvílíkur mann-
auður. Þetta var göld-
um líkast. Nú skilur
maður trú margra
fyrr á öldum að lækn-
ingar hlytu að tengj-
ast göldrum. Svo
ótrúlegar eru þær
fyrir leikmönnum og
stórfenglegar. Þetta
fólk er verðugir arf-
takar Hrafns Svein-
bjarnarsonar frá Eyri
í Arnarfirði sem
fyrstur Íslendinga
svo vitað sé nam
læknisfræði á 12. öld við Miðjarð-
arhaf. Vissulega er töluverður
munur á tækni og allri aðstöðu
þá og nú en fegurðin söm og
ljóminn jafn skær yfir störfum
þessa fólks. Eftir leguna í Foss-
vogi fór ég á sjúkrahótelið við
Ármúla. Er sömu sögu að segja
af starfsfólkinu þar. Það var ein-
stakt. Minningin lifir um allt
þetta góða fólk sem starfar á
sjúkrahúsum, borgarstarfsmenn-
ina sem fluttu mig í bílnum, að
ógleymdum þeim sem vinna á
sjúkrahótelinu í Ármúlanum. Nú
þegar ég hef svo gott sem náð
mér að fullu get ég bara ekki
orða bundizt og verð að þakka
fyrir. Kærar þakkir fyrir allt.
Guð blessi ykkur öll.
Þakkir
Eftir Hallgrím
Helgason.
»Er þangað kom var
okkur sagt að í til-
vikum sem þessum ætti
umsvifalaust að kalla á
sjúkrabíl og hreyfa hinn
slasaða sem minnst.
Höfundur er flokksstjóri hjá Garð-
yrkjudeild Reykjavíkurborgar.
Hallgrímur
Helgason
Aukablað
um bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is