Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 42
Sigmundur Davíð
er Jóhann prins
200%
150%
100%
50%
0%
-50%
Júl.
94
Júl.
04
Júl.
95
Des.
04
Júl.
96
Jan.
05
Júl.
97
Júl.
05
Júl.
98
Júl.
06
Júl.
09
Júl.
99
Júl.
07
Júl.
10
Júl.
00
Júl.
08
Júl.
11
Júl.
01
Jan.
09
Júl.
12
Júl.
02
Apr.
09
Júl.
13
Júl.
03
Mar.
09
Sep.
14
Heimildir: Hagstofa Íslands/Þjóðskrá Íslands
Breyting á raunverði fasteigna frá 1994-2014
Frá árinu 1994 hef-
ur fasteignaverð á Ís-
landi margfaldast að
raunvirði og nafnvirði.
Samhliða því hefur
kaupmáttur launa vax-
ið um 120%. Fyrir
stærstan hluta fast-
eignaeigenda með
verðtryggð lán var
verðbólguskotið árin
2008 og 2009 samhliða
lækkandi raunvirði fasteigna frá ár-
unum 2006 til 2009 því aðeins lítið
brot til að mæta hlutfallslegri raun-
hækkun eigna áranna eða áratug-
anna á undan. Þannig hefur ein-
staklingur sem keypti fasteign sína í
júlí 1995 séð hana hækka um 310%
að nafnvirði eða 172% að raunvirði
samhliða 96% aukningu kaupmáttar
frá þeim tíma. Hann á því bæði auð-
veldara með að greiða af lánum sam-
hliða því að eignarhluti hans hefur
hækkað gríðarlega vegna hækkandi
raunvirðis fasteigna. Þessi ein-
staklingur fær samt sem áður leið-
réttingu frá ríkissjóði. Gagnvart
þeim sem keyptu eign frá janúar
2005 til mars 2009 gildir öðru máli en
eingöngu þeim hópi. Hjá öllum öðr-
um hefur fasteignaverð hækkað um-
fram verðtryggingu. Jafnframt hefur
kaupmáttur í landinu vaxið um 120%
frá árinu 1994 og hefur aldrei verið
hærri ef undanskilið er árið 2007 sem
þýðir að mikill meirihluti fasteigna-
eigenda ætti að eyða hlutfallslega
minna í afborgun fasteignalána í dag
en hann gerði þegar eignin var keypt
og stofnað var til láns. Þannig hafa
fasteignir þessara ein-
staklinga hækkað meira
en lán og hlutfallslega
greiða þeir minna af
tekjum sínum í afborg-
anir af húsnæði. Þá hef-
ur fólk sem t.d. er með
námslán, á leigumark-
aði, með búseturétt eða
aðrir sambærilegri hóp-
ar, sem margir eru í
neðri lögum samfélags-
ins, ekki fengið neinar
leiðréttingar og aldrei
haft neinar eignir til að
hækka á móti. Þrátt fyrir þessar
staðreyndir stendur til að afhenda
eignafólki, sem hefur eingöngu orðið
fyrir þeim forsendubresti að eignir
þeirra hafa hækkað umfram skuldir
og það eyðir hlutfallslega minna af
ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði
en það gerði þegar það keypti sér
eign og tók lán, á bilinu 77.000 til
100.000 milljónir íslenskra króna.
Þetta gera 236.435 til 307.058 þúsund
krónur á hvert einasta mannsbarn
auk vaxta enda verður gjafagjörn-
ingurinn tekinn að láni þar sem ís-
lenska ríkið er stórskuldugt.
Í gærkvöldi lagðist ég upp í rúm
með drengnum mínum og hóf að lesa
fyrir hann bókina um Hróa Hött.
Hrói stelur af Jóhanni prins og flytur
þannig peninga frá þeim ríku til
þeirra fátæku í Nottingham í Eng-
landi. Drengurinn minn er nýorðinn
sex ára og fannst honum það svo gott
að þeir fátæku gátu nú keypt sér að
borða og haft það aðeins betra. Þeg-
ar ég hugsaði um þessi orð drengsins
hugsaði ég til þess hvers eðlis
skuldaniðurfelling ríkisstjórnarinnar
er samkvæmt tölfræðilegri úttekt að
ofan. Hún jafngildir því að sögunni
sé snúið á haus þannig að Jóhann
prins fari um samfélagið, steli frá
þeim eignalausu og færi þeim ríku.
Þannig eru fjármunir teknir úr rík-
issjóði sem hefðu annars getað verið
notaðir til að greiða niður opinberar
skuldir og gefnir eignafólki. Sú hugs-
un læðist að mér hvort ég eigi að út-
skýra fyrir drengnum mínum næst
þegar við lesum bókina að Hrói Hött-
ur gerist í Bretlandi en á Íslandi sé
það þannig að þar fari Jóhann prins
um samfélagið og taki frá þeim
eignalausu og fátæku og gefi þeim
ríku.
Eftir Boga
Ragnarsson
» Frá árinu 1995 hefur
fasteignaverð á Ís-
landi hækkað um 172%
að raunvirði. Skuldaleið-
réttingin er gjöf tekin
að láni frá fátækum og
veitt ríkum.
Bogi Ragnarsson
Höfundur hefur lokið 200 ects ein-
ingum til doktorsgráðu í félagsfræði.
140%
120%
100%
80%
60%
40%
20%
0%
-20%
Júl.
94
Júl.
04
Júl.
95
Des.
04
Júl.
96
Jan.
05
Júl.
97
Júl.
05
Júl.
98
Júl.
06
Júl.
09
Júl.
99
Júl.
07
Júl.
10
Júl.
00
Júl.
08
Júl.
11
Júl.
01
Jan.
09
Júl.
12
Júl.
02
Apr.
09
Júl.
13
Júl.
03
Mar.
09
Sep.
14
Heimildir: Hagstofa Íslands/Þjóðskrá Íslands
Raunbreyting á kaupmætti frá júlí 1994 til september 2014
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Nú get ég ekki orða
bundist, bara að fólk
gerist nú ekki hug-
sjúkt og leggist veikt
hér í Reykjanesbæ og
kannski víðar í lækna-
verkfalli. Það væri
meira tjón en sem
nemur núverandi
skuldum Reykjanes-
bæjar.
Reykjanesbær er/
var bær í sókn. Það
tekur áratugi að greiða niður skuldir
sem hafa safnast upp vegna bygg-
ingaátaks stórhuga stjórnvalda. Per-
sónulega er ég mjög þakklát þessu
átaki. Uni hag mínum vel í Njarðvík
og segi öllum sem hlýða vilja kosti
þess að búa fjarri ys borgarinnar,
hlýða á sjávarsöng og beita sér fyrir
því að framkvæma allt það sem gert
er á höfuðborgarsvæðinu hér líka.
Reykjanesbær er einn af stærri bæj-
um landsins og menningarhlutverk
hans mikið. Því er maður feginn þeg-
ar fagurfræðileg viðmið og stöð-
ugleiki fremur en freistingar frjáls
fjármálamarkaðar eru látin ráða
ferðinni. Auðvitað á ekki að reka bæ
með halla á fjárlögum en þegar átak
er gert í byggðamálum er talað um
aðlögunartíma (að skuldum), jafn-
vægispunkt (þetta er eins slæmt og
það getur verið) og bata (borga nið-
ur). Slíkt ferli tekur marga áratugi.
Draumsýnir ráðamanna að niðurlög
skuldadraugsins sé upphaf betri
tíma eru bara alls ekki
réttar. Einstaklingar
sem vaxa úr grasi á slík-
um tímum eru sterkir,
ábyrgir og úthalds-
góðir, engar skamm-
tímalausnir hjá slíku
fólki né pípudraumar,
heldur litið til framtíðar
með skynsemi í huga. Í
Reykjanesbæ gerist
efnahagsundur ef það
tekst að nálgast 150%
skuldaviðmiðin á næstu
fimm árum. Það er ekki
fallega gert af leiðurum dagblaða að
rýra verðmæti uppbyggingar
Reykjanesbæjar frá 2000.
Einhver sagði mér varðandi
skuldasöfnun að þumalputtareglan
væri að um leið og afborgun skulda
væri meiri en sem næmi fjórðungi
tekna manns skyldi hætta fram-
kvæmdum og fjárfestingum og ein-
beita sér að því að borga niður skuld-
ir. Skuldaviðmið Sambands ísl.
sveitarfélaga eru því háleit því af-
borganir af skuldum innan þeirra
viðmiða yrðu því um 10% heild-
artekna en ekki fjórðungur. Mér
skilst að afborganir skulda í Reykja-
nesbæ nú séu skv. þumalputtaregl-
unni og áætlanir um minni yfirvinnu
í samræmi við þá framtíðarsýn Evr-
ópulanda að minnka vinnuviku í
fjóra daga því lífaldur lengist og
fleira fólk verður um störfin. Því er
um að gera að hefjast handa með þá
fjölskylduvænu framtíðarsýn að fá
foreldra heim kl. 16 að skokka úti
með börnum fyrir kvöldmat og hafa
hjálparkokka við að undirbúa hinn
undirstöðugóða og næringarríka
fjölskyldusameinandi kvöldverð.
Mín viðmið, sem háskólamennt-
aðrar manneskju, eru þau að það hafi
verið hlunnindi menntuðu manneskj-
unnar að komast í lífeyrissjóðslán til
40 ára. Slíkt feli í sér hægfara og
örugga þróun fram á við. Að ég tali nú
ekki um ef verðbætur falla niður þar
að auki. Að borga af láni er eins og að
borga inn á líftrygginguna sína mán-
aðarlega. Skuldir eru eins og grá, hlý
kápa sem hafa bjargað manni á ögur-
stundum þegar mikið lá við að koma
draumum sínum í framkvæmd og
fjárfesting í sjálfum sér inn í framtíð-
ina. Fyrst er hún þykk og hlý og svo
smám saman breytist hún í léttari yf-
irhöfn eftir því sem skuldin minnkar.
Maður vill ekki sjá að þessi kápa sé
tekin af manni of snöggt. Það truflar
þessa hægfara og öruggu þróun hjá
manni og gerir mann ráðvilltan um
stund. Flestir eru langt fram eftir
aldri að vinna úr því sem ávannst með
skuldunum að ég tala nú ekki um fjöl-
greindar háskólamenntaðar mann-
eskjur. Gæði felast oftast í tímalengd
þróunarinnar.
Þannig er nú margt ekki svo með
öllu illt að ekki boði nokkuð gott.
Alltaf hægt að finna hina hliðina á
málunum sem er kannski alveg jafn-
góð, aðalatriðið er að fólk haldi
heilsu og láti ekki ákveðna hug-
myndafræði frjálsrar peningastefnu
vaða yfir sig eða leiða sig til veik-
inda. Má ég þá heldur biðja um
heimspekina fyrir hönd okkar Suð-
urnesjanýbúa, hinn stóíska frið þess
að hafa leyst sín vandamál í ró og
næði þó tugi ára taki til.
Hugvekja til heilsueflingar
Eftir Veru Steinsen
Vera Ósk Steinsen
»Reykjanesbær er
einn af stærri bæjum
landsins og menningar-
hlutverk hans mikið.
Höfundur er tónlistarkennari.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Birgir Ísleifsson
og Jóhann Ólafsson unnu
Guðmundarmótið
Fimmtudaginn 27. nóvember lauk
Minningarmótinu um Guðmund
Pálsson. Sigurvegarar mótsins urðu
Birgir Ísleifsson og Jóhann Ólafs-
son.
Röð efstu para:
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 812
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannes. 799
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 786
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 774
Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmss.n 760
Spilað var á 13 borðum sl. fimmtu-
dag.Úrslit í N/S:
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 314
Gróa Jónatansd. - Kristm. Halldórsson 294
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannesson 292
Samúel Guðmundss. - Jón Hannesson 291
A/V
Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmss. 325
Jón Ingi Ragnarss. - Ragnar Jónsson 314
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 297
Gunnar M.Hanss. - Hjörtur Hanness. 290
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 21. nóvember var
spilaður Mitchell-tvímenningur á 16
borðum.
Efstu pör í N/S:
Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 61,7
Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgeirsd. 59,7
Bjarni Þórarinss. – Sæmundur Björnss. 56,9
A-V
Guðjón Eyjólfsson – Sigurður Tómass. 63,5
Skafti Þórisson – Birkir Jónsson 58,7
Guðm. Sigursteinsson – Auðunn Guðmss.
57,9
Föstudaginn 25. nóvember var
spilaður tvímenningur með þátttöku
28 para.
Efstu pör í N/S:
Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimarsss 57,6
Friðrik Hermannss. – Sveinn Snorrason
56,3
Örn Einarsson – Guðlaugur Ellertsson 56,3
A-V
Eðvarð Hallgrímsson – Björn Árnason 62,7
Óskar Ólafsson – Viðar Valdimarsson 58,9
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 54,5
Hauststigakeppni félagsins er bú-
in að vera í gangi síðan í ágúst.
Henni lýkur síðasta spiladag fyrir
jól. Efstir eru:
Bragi Björnsson 216 stig
Tómas Sigurjónsson 210,5 stig
Guðmundur Sigursteinsson 193 stig
Bjarnar Ingimarsson 181 stig
BFEH spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni
3. Spilamennska byrjar kl. 13.00.
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks-
son og hjálpar hann til við myndun
para ef spilarar mæta stakir.
Súgfirðingaskálin
Þriðja lota um Súgfirðingaskálina
var spiluð á mildu kvöldi í upphafi
ýlis. Fimmtán pör mættu til leiks og
styrktu félagsauðinn.
Úrslit kvöldsins, meðalskor 156.
Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnss. 198
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 192
Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson 177
Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 170
Finnbogi Finnbogas. - Magnús Jónss. 170
Eftir þrjátíu þrautir stóðu Hafliði
og Árni á efsta palli eftir mikla bar-
áttu við Kristján og Ólaf. Réðust úr-
slit í síðasta spili.
Staðan eftir þrjár lotur:
Hafliði Baldurss. - Árni Guðbjörnsson 539
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 527
Sturla G. Eðvarðss. - Björn Guðbjörnss.
512
Flemming Jessen - Kristján H. Björnss.
511
Friðgerður Friðgeirsdóttir - Friðgerður
Benediktsdóttir 502
Næsta lota, sú fjórða í röðinni,
verður spiluð á nýju ári og hefst í
byrjun þorra.
Brids á Suðurnesjum
Karl G. Karlsson og Svala Páls-
dóttir unnu tvímenning sl. miðviku-
dag nokkuð örugglega með 60,7%
skor. Oddur Hannesson og Sigurjón
Ingibjörnsson urðu í öðru sæti og
Jón Gíslason og Ævar Jónasson
þriðju.
Spilað er á miðvikudögum í fé-
lagsheimilinu og hefst keppnin kl.
19.