Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 47
heilsaði upp á okkur, þáði kaffi og spáði og spekúleraði í ræktun og byggingaframkvæmdir sem við kunnum svo sem ekki of mik- ið í. En það var ekki sísta sport- ið, að bauka við eitthvað nýtt. Og ekki spilltu sögurnar. Þorkell var sagnamaður af Guðs náð og einstaklega skemmtilegur. Jafn- framt fræddi hann okkur um Hvítána og veiðiskapinn þar og safnið hans í Ferjukoti með gömlu áhöldunum einstakt. Ræðan hans í fimmtugsafmæli Didda þegar hann var sæmdur hreppstjóranafnbót með viðeig- andi embættishúfu gleymist seint. Síðari ár urðu samfundir strjálli af ýmsum orsökum en alltaf hélst vinskapurinn. Síð- ustu árin einkenndust af baráttu hans við alvarlegan sjúkdóm sem að lokum lagði hann að velli. Þá baráttu háði hann af æðru- leysi. Við undirrituð sendum Hebu og börnum þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, en þökk- um um leið samskiptin og vin- skapinn öll árin okkar í Trönuhöfðanum. Þau voru okkur afar dýrmæt. Diðrik, Björn Úlfar, Ósk, Haraldur og Auður. „Mínir vinir fara fjöld,“ sagði Bólu-Hjálmar forðum. Og nú er Keli í Ferjukoti allur. Borgar- fjörður fátækari en áður. Sér- staklega Ferjukot, þetta ættar- setur Fjeldstedanna, síðan Andrés forfaðir Þorkels fluttist þangað fyrir löngu síðan. Þessi ættbogi allur er svo samofinn sögu veiðimála í héraðinu fyrr og síðar, að ekki verður um annað málefnið fjallað án þess að gera hinu skil. Verðugt verkefni fyrir góðan sagnfræðing. Og helst sem fyrst. Já, Borgarfjörður er fátækari. Hver mun framvegis halda uppi þeim sjónarmiðum sem Keli var málsvari fyrir á fundum um veiðimál? Einatt fann hann sjón- arhorn sem fáir aðrir komu auga á. Oftast með nokkurri kímni og alltaf með einhverjum gildum rökum. Og hver mun nú fagna gestum í Ferjukoti, bjóða upp á kaffi og skemmtilegt spjall. Ásamt ferð um Veiðiminjasafnið góða, sem Keli kom þar á fót, og tengt verður nafni hans um ókomna tíð. Safn, sem á engan sinn líka á landinu. Safn, sem okkur, þeim sem enn lifum, ber nú skylda til að varðveita svo að sómi sé að. Eins og bæjarnafnið bendir til var þarna ferjustaður um aldir. Og nú hefur Keli lagt í hinstu för sína út á móðuna miklu. Mér finnst að ég sjái hann fyrir mér, þar sem hann stendur aftarlega í bátnum – með aðra hönd á stýr- issveifinni en skyggnir fyrir augu með hinni. Það er nefnilega þokubirta í lofti og smátt og smátt hverfur báturinn inn í mistrið. Ég sé ekki ströndina hinumegin. En veit að þegar Keli lendir – þá bíða hans góðir vinir á bakkanum. Og fagna hon- um. Því enginn staður er svo góður fyrir, að hann ekki batni þegar Keli kemur þar. Vertu sæll, vinur. Ég sendi fjölskyldu Þorkels innilegar kveðjur og samhrygg- ist þeim vegna fráfalls hans. Megi góðar minningar hjálpa til að draga úr sorginni. Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpastöðum. Fallinn er frá einn af höfðingj- um Borgarfjarðar. Í Norðurárdal liðast um ein fallegasta laxveiðiá landsins. Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðfélag Norðurár áttu í löngu og góðu samstarfi um áratuga- skeið. Þorkell Fjeldsted sat í stjórn Veiðifélags Norðurár í hartnær 30 ár, hafði tekið við stjórnarsetu af föður sínum. Stjórnir félaganna þurftu eðli- lega að hittast reglulega til að fara yfir málin og endurnýja samninga. Í stjórnarstarfinu og öllum samskiptum við Stanga- veiðifélag Reykjavíkur lét hann svo sannarlega mikið til sín kveða. Við minnumst hans þann- ig að hann var fastur fyrir en ávallt drengilegur í öllum sam- skiptum. Hann var svo sannar- lega af gamla skólanum þar sem handtak var ígildi samnings. Samskipti á fundum voru alltaf skemmtileg og jákvæð, alltaf vildi Þorkell leysa málin og oft voru lausnirnar byggðar á snjöll- um uppbyggilegum hugmyndum sem hann lagði fram. En aðal- lega minnumst við Þorkels sem einstaklega skemmtilegs manns, sem sá oft og tíðum spaugilegar hliðar á þeim málum sem hæst bar hverju sinni. það var alltaf líf og fjör í kringum Þorkel Fjeld- sted. Þorkell er nú kominn á nýjar veiðilendur þar sem þekking hans og reynsla af netaveiðum á laxfiski á eflaust eftir að nýtast vel. Við sendum eiginkonu hans, Hebu Magnúsardóttur, börnum þeirra og fjölskyldunni allri inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd stjórnar Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, Árni Friðleifsson. Minningarnar streyma fram þegar minnst er Þorkels Fjeld- sted bónda í Ferjukoti. Hann ólst upp við hina straumþungu Hvítá, sem Einar Benediktsson lýsir vel í kvæði sínu um siglingu inn Borgarfjörð, þegar hann var á leið til að hitta baróninn á Hvít- árvöllum, býlinu gegnt Ferju- koti. „Nú beygir farið af Faxasjó – inn fjörðinn. Burtu með svefn og drunga!“ Hvítáin, gjöful lax- veiðiá, var stór þáttur í tilveru Þorkels og fjölskyldu hans alla tíð. Á bökkum hennar reistu þau Heba sér fallegt hús ung að ár- um og þar hefur Heba ræktað hinn fegursta garð, sem gefur nýja sýn á ána. Við Þorkell kynntumst á vett- vangi Sjálfstæðisflokksins þegar við, þá ungir sjálfstæðismenn á Vesturlandi, fórum um kjör- dæmið til að tala máli frelsis og einstaklingsframtaks. Á þeim árum var gaman að takast á við pólitíska andstæðinga þegar hugmyndafræðin var skýr og baráttan gegn kommúnisman- um, sem hneppti þjóðir í fjötra, var í algleymingi. Þetta var á átt- unda áratug síðustu aldar þegar til dæmis enginn mátti reka út- varpsstöð nema ríkisvaldið. Þorkell var alltaf með skoð- anir sínar á tæru og talaði hreint út. Röddin hans, hrjúf og há, svipurinn kíminn og glettnis- glampi í augum. Hann var mála- fylgjumaður en um leið léttur í lund og átti auðvelt með að slá á létta strengi. Hann hafði alltaf sögur og frásagnir á takteinum og nýjar hugmyndir streymdu fram. Að loknum fundahöldum var oftar en ekki komið við í Ferjukoti. Þar tók Heba á móti mannskapnum, glæsileg og gest- risin, og töfraði fram veitingar. Ef langt var liðið á kvöld og allir þreyttir þá var heldur ekkert mál að draga fram dýnur og sofa til morguns. Í síðustu heimsókn okkar Geirs til Þorkels og Hebu var sögusafnið um laxveiðarnar skoðað rækilega. Þar gekk Þor- kell stoltur um og sýndi okkur og kunni vel á öllu skil. Í gamla bænum í Ferjukoti hefur ýmsum munum verið haldið til haga og í vinnsluhúsunum meðfram ánni er að finna tæki og tól sem notuð voru. Þarna hafa Þorkell og fjöl- skyldan hans komið upp merki- legu safni heimilda um sögu lax- veiða í héraðinu og vinnslu á laxi í nær heila öld. Safn sem vissu- lega verðskuldar að varðveitt sé og að því hlúð. Ég á þess því miður ekki kost að fylgja vini mínum síðasta spölinn, en honum fylgja hjart- ans blessunaróskir. Við Geir sendum Hebu og fjölskyldunni hlýjar samúðarkveðjur og biðj- um góðan Guð að styrkja þau og vernda. Guð blessi minningu Þorkels Fjeldsted. Inga Jóna Þórðardóttir. Það eru rúm 50 ár síðan ég hitti Þorkel í Ferjukoti fyrst, en það var þegar hann kom til náms í fyrsta bekk Reykjaskóla. Ég var þá í þriðja bekk en strax tók- ust með okkur góð kynni, sem héldust alla tíð. Um áratuga skeið höfum við m.a. hist hvert vor á aðalfundi Landssambands veiðifélaga. Þar lagði Keli jafnan gott til málanna og tekið var eft- ir því sem hann sagði. Öllum heilsaði hann brosandi og af alúð og það var gaman að vera í ná- vist hans. Keli var veiðimaður af lífi og sál og lét sér annt um allt sem að veiðimálum sneri. Skemmtilegir voru pistlar hans í útvarpi, en hann var lengi fréttaritari. Hann sagði jafnan frá þegar fyrstu lax- ar komu á land í Borgafirði eða þegar eitthvað annað fréttnæmt gerðist í héraði. Frábæru veiði- safni hafa þau hjón komið upp í Ferjukoti. Einstaklega var gam- an að ganga þar um að heyra lýs- ingar Kela á þeim búnaði sem þar er varðveittur og hvernig hann var notaður. Kært þykir mér að eiga myndbrot af honum taka á móti fulltrúum á aðalfundi Landssambands veiðifélaga í safnið árið 2005. Þar lýsir hann því sem fyrir augu ber og segir veiðisögur eins og honum einum var lagið. Keli var jafnan alúðlegur við hvern sem hann hitti og hann fór ekki í manngreinaálit. Hann hlustaði á skoðanir annarra og hafði gaman af rökræðum. Síð- asta sinn sem ég sá Kela var í haust þegar hann kom með hóp Borgfirðinga til að skoða ný- byggða og stórglæsilega að- stöðu, sem upp hefur verið byggð á Lækjamóti. Hann naut ferðarinnar og dáðist að upp- byggingunni. Keli var maður framfara og fagnaði jafnan þeg- ar framfaraspor voru stigin og uppbygging átti sér stað. Kela verður sárt saknað á að- alfundi Landssambands veiði- félaga næsta vor en söknuður og missir fjölskyldunnar er miklu stærri. Hans góðu konu, Hebu, og fjölskyldunni allri sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. En minningin um góðan dreng lifir. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Hjarta mitt fyllist alltaf sorg þegar einhver sem mér þykir vænt um fellur frá. Því fylltist það sorg þegar ég frétti af fráfall Þorkels Fjeldsted, en um leið rifjuðust upp allar þær minning- ar sem tengdar eru honum og fjölskyldu hans. Fyrst kynntist ég foreldrum hans, þeim Þórdísi og Kristjáni Fjeldsted, enda lá Ferjukot fyrir ekki svo margt löngu í þjóðbraut. Stundum var litið þar við til að fá fréttir af lax- veiðum í netin, því ef nýrunninn lax hafði veiðst þar voru líkur á að einhverjir hefðu sloppið upp í árnar ofar í Borgarfirðinum. Síðar kynntist ég Sigurði bróður hans og Guðrúnu systur hans í gegnum stangveiðina. Þau Siggi og Gunna sögðust eiga einn bróður, en hann væri svo ábyrgðarfullur og duglegur að á meðan þau væru á flandri um all- ar sveitir væri hann heima að gæta búsins og þar hitti ég hann einmitt fyrst. Rétt er það að Keli var ábyrgðarfullur og sinnti bú- rekstri af dugnaði og eljusemi bæði í Ferjukoti og á Ferju- bakka. Hann var líka mikill fé- lagsmálamaður, með margar hugmyndir sem sneru að ný- sköpun og ferðaþjónustu. Heim- ili hans bjó yfir ríkri sögu og Keli varðveitti mikið af minjum frá netaveiði Ferjukotsbænda og annarra í Hvítá í veiðisafni sem hann kom upp við ána, enda um merkilega atvinnuþróunarsögu að ræða. Og hvort sem hann var að fjalla um hana eða menn og málefni líðandi stundar var hann einstaklega skemmtilegur og orðheppinn sögumaður og hrók- ur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Laxveiði kom mikið við sögu í samskiptum okkar við Kela og eiginkonu hans Hebu. Í níu ár var maðurinn minn heitinn í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem þá hafði Norð- urá á leigu. Þá tíðkaðist að bjóða stjórnarmönnum í veiðifélagi ár- innar reglulega til samsætis með stjórn SVFR. Keli var einn af stjórnarmönnum veiðifélagsins og í þessum samsætum hittumst við því reglulega. Eftir að við Gulli heitinn flutt- umst á Snæfellsnes varð Borg- arnes að þjónustumiðstöð sem við nýttum oft og rákumst þá annaðhvort á Hebu eða Kela hvort í sínu lagi eða saman, á ferðum okkar vestur eða að vest- an, svo tengslin héldust þótt Norðurárveislum væri lokið. Fyrir nokkrum árum varð ég svo þeirrar ánægju aðnjótandi að vera fararstjóri í ferð á vegum Ferðaþjónustu bænda um vest- urströnd Bandaríkjanna. Það gladdi mig mjög að sjá nöfn þeirra hjóna á farþegalistanum. Keli hélt að venju uppi fjörinu í ferðinni með óþrjótandi sögum og gamanmálum og tók margar myndir fyrir Bændablaðið, enda vanur að senda blaðinu pistla. Ferðum mínum um Borgar- nes hefur fækkað en í sumar rakst ég þó á Kela þegar ég var þar á ferð. Hann tók sér tíma til að spjalla við mig og sagði mér frá veikindum sínum, sem væru að ágerast, en jafnframt að þau hjón hefðu verið dugleg að ferðast síðustu árin og gera skemmtilega hluti saman. Ferðalög heilluðu hann, en nú ferðast hann því miður ekki lengur um lendur jarðar. Ég sendi Hebu og öðrum ætt- ingjum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Borgarfjörðurinn hefur misst einn af máttarstólp- um sínum með fráfalli Þorkels Fjeldsted. Guðrún Bergmann. MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 Útfararþjónusta Hafnarfjarðar Sími: 565-9775 www.uth.is. uth@simnet.is. Við sjáum um alla þætti útfararinnar. Seljum kistur,krossa og duftker hvert á land sem er. Persónuleg þjónusta. Stapahrauni 5 Hafnarfirði. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR S. GUÐMANNSSON (NUNNI), Kleppsvegi 46, Reykjavík, lést 27. nóvember 2014. . Anna S. Guðmundsdóttir, Haukur Gunnarsson, Elín J. G. Hafsteinsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Bjarni Jóhannesson, Hildur Gunnarsdóttir, Hjalti Jensson, Þorgerður Gunnarsdóttir, Guðmundur Kjartansson, Magnús Gunnarsson, Monika Borgarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir minn, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON (Muggur), lést á Hrafnistu Hafnarfirði sunnudaginn 12. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðlaugur Guðmundsson. ✝ Yndiskær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og umfram allt vinur, RAGNHILDUR G. KVARAN, lést þriðjudaginn 18. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakklætiskveðjur sendum við starfsfólki á krabbameinsdeild 11E og líknardeildar Landspítalans. Starf ykkar er ómetanlegt. Synir, tengdadætur, barnabörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KRISTINS ARASONAR, Heimalind 1, Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Kröyer. ✝ Frænka okkar, JÓNA Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Bakka Seltjarnarnesi, síðast til heimilis að Skólabraut 5, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 2. desember kl. 13.00. Kristín Kjartansdóttir, Guðrún Kjartansdóttir, Auður Kjartansdóttir. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, SIGMARS HRÓBJARTSSONAR, f. 24. 5. 1919 - d. 5. 11. 2014, múrarameistara frá Hamri í Hegranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi fyrir góða umönnun, hlýju og virðingu. . Ingibjörg Guðmundsdóttir, Bergdís Ósk Sigmarsdóttir, Davíð W. Jack, Gunnlaugur Sigmarsson, Steinunn Friðriksdóttir, S. Heimir Sigmarsson, Þjóðbjörg H. Jónsdóttir, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Lea H. Björnsdóttir, Sigríður Sigurgeirsdóttir, Ragnar Jónasson, Hansína Sigurgeirsdóttir, Sveinbjörn S. Herbertsson, Þorkatla Sigurgeirsdóttir, Jón Sigurðsson, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og fjölskyldur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.