Morgunblaðið - 29.11.2014, Page 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ing-
ólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíu-
fræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 12. Ræðumaður: Birgir
Óskarsson. Skemmtilegt barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á
ensku.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmanna-
eyjum | Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akur-
eyri | Eiðsvallagötu 14, Gamli Lundur.
Biblíurannsókn laugardag kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suður-
nesjum | Blikabraut 2, Keflavík. Bibl-
íufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 12. Ræðumaður: Stefán Rafn
Stefánsson.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi |
Eyravegi 67, Selfossi. Biblíufræðsla
laugardag kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson.
Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnar-
firði | Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðs-
þjónusta laugardag kl. 11. Biblíu-
fræðsla kl. 11.50. Ræðumaður:
Björgvin Snorrason. Skemmtilegt
barna- og unglingastarf. Umræðuhóp-
ur á ensku. Súpa og brauð eftir sam-
komu.
AKURINN kristið samfélag | Sam-
koma kl. 14 í Núpalind 1, Kópavogi.
Biblíufræðsla, söngur og bæn. Gestir
frá Færeyjum taka þátt í samkomunni.
ÁRBÆJARKIRKJA | Kirkjudagur Ár-
bæjarsafnaðar. Sunnudagaskólinn kl.
11. Spádómskertið tendrað, skóla-
hópur úr leikskólanum Heiðaborg sýn-
ir helgileik. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Ath. breyttur messutími. Félagar
úr Harmonikkufélagi Reykjavíkur leika
hálftíma fyrir messu. Prestar safn-
aðarins þjóna fyrir altari og prédika.
Kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Organisti Krisztina K.
Szklenár. Hlöðver Sigurðsson syngur
einsöng. Líknarsjóðshappdrætti Kven-
félags Árbæjarsóknar. Kaffihlaðborð
kvenfélagsins.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 í umsjá séra Sigurðar, Lindu
djákna og Magnúsar organista. Fyrsta
kerti aðventukransins tendrað. Söng-
ur og sögur, brúður og bænir. Aðventu-
hátíð Áskirkju kl. 16. Kammerkór Ás-
kirkju syngur ásamt söfnuðinum
sjálfum, fermingarbörn flytja helgileik
og Hafþór Jónsson gengur í ljóða-
smiðju. Ræðumaður Herdís Þorgeirs-
dóttir prófessor. Sóknarnefndin og
Safnaðarfélagið bjóða rjómasúkkulaði
og smákökur á eftir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir
stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tón-
listarstjóra. Meðhjálpari er Sigurður
Þórisson. Prestur er sr. Kjartan Jóns-
son. Jólaföndur í sunnudaga-
skólanum undir stjórn Hólmfríðar.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um-
sjón með stundinni hafa Fjóla, Helga,
Jón, Guðmundur og Hans Guðberg.
Aðventuhátíð í Bessastaðakirkju kl.
17. sr. Hans Guðberg og Margrét
djákni leiða stundina. Álftaneskórinn
flytur jólatónlist undir stjórn Bjarts
Loga Guðnasonar og Jóhanna Ósk
Valsdóttir syngur einsöng.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Kór eldri borgara syngur. Organisti
Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn
Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Stoppleikhóp-
urinn sýnir „Ósýnilegi vinurinn“. Kveikt
verður á fyrsta aðventukertinu, Betle-
hemsfjárhúsið sett upp og sungin
nokkur jólalög. Kaffi, djús og pip-
arkökur á eftir. Aðventukvöld kl. 20.
Kirkjukórinn mun flytja aðventu- og
jólasöngva og fermingarbörnin sýna
táknrænan helgileik um ljósið sem
skín í myrkrinu. Þórey Dögg Jónsdóttir
djákni flytur hugleiðingu. Að stundinni
lokinni verður boðið upp á heitt súkku-
laði og smákökur í safnaðarheimilinu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Afmælis- og fjöl-
skyldumessa kl. 11. Glaðvær og gef-
andi tónlist. Minnumst vígsludags
kirkjunnar okkar. Karlar úr sóknar-
nefnd bjóða kirkjugestum í vöfflukaffi
eftir messu. Ein messa þennan dag.
Aðventukvöld kl. 20. Fjölbreytt tónlist.
Kirkjukór Bústaðakirkju, Glæðurnar
og allir barna- og unglingakórar kirkj-
unnar undir stjórn Jónasar Þóris og
Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Ræðu-
maður er Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri. Ljósin tendruð.
DIGRANESKIRKJA | Messa og
sunnudagskóli kl. 11. Prestur sr. Úr-
súla Árnadóttir. Organisti Sólveig Sig-
ríður Einarsdóttir. Kammerkór Digra-
neskirkju sér um söng. Súpa í
safnaðarsal að athöfn lokinni.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13
á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga
kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn og organisti er
Kári Þormar. Barnastarfið á kirkjuloft-
inu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns
og Sigurðar Jóns. Aðventukvöld kl.
20. Ræðumaður Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra, dómkirkjuprestarnir
séra Hjálmar Jónsson og séra Sveinn
Valgeirsson. Arngunnur Árnadóttir
leikur á klarinett og Laufey Jensdóttir
á fiðlu. Dómkórinn og organisti er Kári
Þormar. Smákökur og kaffi í safnaðar-
heimilinu.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólöf Margrét
Snorradóttir leiðir stundina ásamt
leiðtogum. Organisti: Torvald Gjerde.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11 og aðventukvöld kl. 20.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Svavar
Stefánsson þjónar fyrir altari. Gerðu-
bergskórinn syngur undir stjórn Kára
Friðrikssonar. Organisti er Eyþór
Franzson Wechner. Aðventukvöld kl.
20. Fjölbreytt dagskrá á aðventukvöldi
kirkjunnar, falleg tónlist í anda aðvent-
unnar. Kristín Jóhannesdóttir skóla-
stjóri Fellaskóla flytur hugvekju. Al-
mennur söngur. Heitt súkkulaði og
smákökur eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Fríkirkjubandið leiðir
sönginn. Aðventustund með
fermingarbörnum og foreldrum kl. 13.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, kemur í heimsókn. Örn Arnar-
son, Erna Blöndal og Guðmundur
Pálsson sjá um tónlistina.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skóli kl. 11 með fræðslu, söng, brúðu-
leikriti og fleira. Létt hressing í lok
stundar. Almenn samkoma kl. 13.30
þar sem Birkir Már Kristinsson
prédikar. Tónlistarhópur kirkjunnar
leiðir lofgjörð. Aðstaða fyrir börn en
engin gæsla. Kaffi og samvera í lok
samkomu.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Aðventu-
guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur
Magni predikar og þjónar fyrir altari.
Tendrað verður ljós á fyrsta kerti í að-
ventukransi, Spádómskerti. Söng-
hópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir
tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista. Fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Kvenfélags-
guðsþjónusta kl. 14 og Ljósastund kl.
15.30. Árleg guðsþjónusta með þátt-
töku Kvenfélags Garðabæjar kl. 14.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar. Lilja
Hallgrímsdóttir djákni flytur hugleið-
ingu. Félagar úr Kór Vídalínskirkju
leiða söng og lofgjörð. Ljósastundin er
kl. 15.30. Þórunn Clausen flytur hug-
leiðingu. Fyrirbæn flytja sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir og sr. Friðrik J. Hjart-
ar. Ljóstendrun. Gerður Bolladóttir
syngur og Viktoria Tarveskaia leikur á
selló. Sjá www.gardasokn.is
GLERÁRKIRKJA | Kl. 11: sunnu-
dagskóli og messa sameiginlegt upp-
haf. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjón-
ar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan
söng. Aðventukvöld kl. 20.30. Ræðu-
maður kvöldsins er Sigrún Stef-
ánsdóttir. Kór Glerárkirkju syngur
ásamt Barna- og æskulýðskór kirkj-
unnar. Fermingarbörn taka þátt í ljósa-
athöfn.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Séra Guðrún
Karls Helgudóttir þjónar. Umsjón hef-
ur Ásthildur Guðmundsdóttir. Nem-
endur úr Tónlistarskóla Grafarvogs.
Aðventuhátíð kl. 20. Prestar safnaðar-
ins flytja aðventubæn. Steinunn Jó-
hannesdóttir rithöfundur les kafla úr
bókinni „Jólin hans Hallgríms“. Kórar
kirkjunnar syngja. Stjórnendur: Hákon
Leifsson, Hilmar Örn Agnarsson og
Margrét Pálmadóttir. Fiðlusveit úr Tón-
listarskóla Grafarvogs. Stjórnandi:
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10. Bænastund kl. 10.15. Barna-
starf kl. 11, í umsjá Lellu. Messa kl.
11. Altarisganga. Samskot til Hjálpar-
starfsins. Messuhópur þjónar. Kór frá
Domus vox syngur. Aðventukvöld kl.
20. Regína Ósk syngur. Sigurbjörn
Þorkelsson flytur hugvekju. Ragn-
hildur Þórhallsdóttir og Ólöf Sigurðar-
dóttir syngja tvísöng. Englatréð kynnt,
jólagjafir til barna fanga. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Ásta
Haraldsdóttir og prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson í báðum athöfnum. Kaffi og
smákökur.
GRUND dvalar- og hjúkrunar-
heimili | Aðventumessa í hátíðasal
Grundar. Séra Auður Inga Einarsdóttir
heimilisprestur þjónar og Örnólfur
Thorlacius heimilismaður flytur hug-
vekju. Grundarkórinn leiðir söng undir
stjórn Kristínar Waage organista.
Sungnir verða aðventusálmar- og
söngvar.
Orð dagsins:
Innreið Krists í
Jerúsalem.
(Matt. 21)
Amma Steinunn
var ættmóðir stórrar
fjölskyldu og hafði
einstaklega gaman
af því að hafa alla saman í Tungu-
selinu. Þessar samkomur ein-
kenndust af gleði, söng og
skemmtun sem lifa í minningunni.
Amma eldaði heimsins besta mat
og rétt áður en við fjölskyldan
komum suður var amma búin að
hringja og athuga hvaða mat hún
ætti að hafa á matseðlinum. Hótel
„amma Tungó“ var best.
Amma var einstaklega
hjartahlý og ráðagóð. Þegar ég
var tvítug gerði ég, sveitastelpan,
tilraun til að flytja í borgina. Það
var einstaklega erfitt að vera
svona fjarri heimahögunum en
amma var ótrúlega dugleg að
hjálpa mér og stappa í mig stálinu
þetta ár sem ég entist í borginni.
Fyrir það eitt fæ ég henni aldrei
fullþakkað.
Eitt árið komstu austur og
passaðir okkur Frey þegar
mamma og pabbi skelltu sér til út-
landa. Þér fannst ótrúlegt að við
systkinin borðuðum ekki kartöflur
og í stað þess að hafa engar kart-
öflur með matnum vorum við send
í sjoppuna að kaupa franskar með
hverri kvöldmáltíð. Úrræðagóð,
það var einn af kostum þínum,
elsku amma.
Í öllum fríum og ferðum suður
hafa það verið forréttindi að koma
í heimsókn til þín, fá ömmuspjall
og ömmuknús.
Einnig var mjög gaman að
koma til þín með börnin mín tvö og
sjá hvað þér fannst yndislegt að
fylgjast með langömmubörnunum
Steinunn
Þorsteinsdóttir
✝ Steinunn Þor-steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
23. september
1934. Hún lést 19.
nóvember 2014. Út-
för Steinunnar fór
fram 27. nóvember
2014.
þínum leika sér,
syngja og púsla. Þá
fyllist maður stolti.
Það verður skrítið
að koma suður og fá
ekki að hitta þig og
knúsa. Í stað þess er
ég að kveðja þig í
seinasta skipti, en
minning þín lifir.
Takk fyrir allt,
elsku amma mín.
Hvíldu í friði, þín
Jóhanna.
Amma mín var amma með
stóru A-i, um það er engum blöð-
um að fletta. Tunguselið var
veisluhöll þar sem safnast var
saman, borðin svignuðu undan
kræsingum og það var sungið,
spilað og glaðst. Amma var
drottningin sem leið um sali og sá
til þess að allir fengju sitt.
Allir voru velkomnir, fjöl-
skylda, vinir og allir vinir þeirra.
Það var fullt út úr dyrum. Hlátur
og sprell.
Amma var samt svo margt
fleira. Hún var miðborgarmær,
allt frá fyrstu æviárunum þekkti
hún hverja þúfu í litla bænum sem
var að undirbúa sig undir að verða
miðborg. Hún var glæsileg dans-
mær. Verslunarskólastúlka.
Síðar atvinnurekandi, kjark-
mikill frumkvöðull í ferðaþjón-
ustu. Snillingur með prjónana.
Amma var sjálfstæð kona, hún
lagði mikið á sig til að öðlast sjálf-
stæði sitt og í það hélt hún stolt.
Amma var samt fyrst og fremst
góður og fordómalaus vinur. Við
eldhúsborðið í Tunguselinu var
alltaf til tími. Tími til að spjalla um
heima og geima, fíflast og hlæja.
Tími til að leyfa langömmubörn-
unum að sulla eða horfa á bílana,
eins lengi og þau vildu. Tími til að
segja sögur og gefa ráð, grípa í
spil. Fyrst og fremst var þar tími
til að hlusta og taka þátt.
Það er fáránlegt að lífið geti
haldið áfram, að jörðin haldi
áfram að snúast, að það komi jól.
Án ömmu. En kannski er það
ekkert án ömmu. Hún heldur
áfram að vera. Mér varð hugsað til
þess í Fossvoginum í síðustu viku
þar sem við söfnuðumst saman við
dánarbeð hennar.
Allt þetta fólk sem tengist í
gegnum þessa stóru konu. Geir,
Börnin, barnabörnin, langömmu-
börnin, systkinin úr báðum áttum,
frænkur, frændur, vinir.
Risastór fjölskylda sem teygir
anga sína um allt land og jafnvel
víða veröld en kemur svo saman
eftir langan aðskilnað og verður
eitt, í Tunguselinu.
Lísa Ólafsdóttir.
Það er skrítin tilfinning að hún
elsku amma mín sé farin frá okk-
ur. Amma Steinunn, amma Tungó
eins og ég kallaði hana alltaf, var
einstök persóna. Það eru margar
stundirnar sem við áttum saman.
Ég man þegar ég fór upp í Tungu-
sel, þar sem hún átti heima, til að
heimsækja ömmu Steinunni og
afa Geir. Alltaf var nóg af girnileg-
um mat á borðum og þar sem ég
er mikill matmaður þá leiddist
mér það nú ekki. Það var nú líka
þannig að amma vildi aldrei að
neinn færi heim frá sér svangur.
Þá sá hún einnig til þess að eng-
um væri kalt. Hún amma var rosa-
lega fær í því að prjóna ullarpeys-
ur og fengu allir fjölskyldu-
meðlimir, hvort sem það voru
börnin hennar eða barnabörn,
gjafir í formi lopaklæðnaðar.
Ég man alltaf eftir ömmu sem
ótrúlega duglegri og sanngjarnri
konu, sem kom fram við alla af
mikilli virðingu og leit hún á alla
sömu augum. Dugnaður ömmu
kom m.a. berlega í ljós í störfum
hennar í Skíðaskálanum og Hótel
Akranesi. Þar stýrði hún farsæl-
um rekstri og sá til þess að allt
færi vel fram.
Amma var ótrúlega barngóð og
elskuðum við barnabörnin að fá að
koma í heimsókn til ömmu í pöss-
un, enda var amma vanaföst kona
og vissi að við treystum því að á
hennar borðum væru alltaf fullt af
kræsingum að hætti ömmu.
Þar sem ég var mjög smámælt-
ur var erfitt fyrir ömmu að skilja
mig á þeim tíma og til að ná mínu
fram um að fá að horfa á eftirlætis
myndina okkar, Nonna og Manna,
skírðum við myndina nýju nafni,
Home Alone, svo auðveldara væri
að fylgja eftir kröfu barnabarns-
ins. Það lýsir ömmu ótrúlega vel,
þar sem hún gerði allt til að börn-
unum sínum liði vel.
Eftirminnilegasti tími með
ömmu Steinunni var þegar afi
Geir og amma voru að skipta um
húsnæði. Ég fékk þá þau forrétt-
indi að lána ömmu herbergið mitt
og njóta margra stunda með
henni. Við spjölluðum mikið sam-
an og var hún dugleg að elda mat
fyrir okkur, meðal annars uppá-
haldið mitt á þeim tíma sem var
steiktur fiskur, kartöflur, tómatar,
gúrkur og heimagerða kokteil-
sósu. Það verður seint hægt að
toppa eldamennsku ömmu.
Veikindi ömmu byrjuðu árið
2008. Amma náði aldrei sér full-
komlega á strik eftir það. Þó gekk
hún alltaf í gegnum þessi veikindi
með jákvæðu hugafari. Þessarar
hjartahlýju konu sem ég var svo
heppinn að fá að eyða síðustu 24
árum með er sárt saknað. Nú er
hún farin frá okkur og sitja marg-
ar minningar eftir í hjarta mínu og
þær stundir sem við áttum saman
munu aldrei gleymast. Nú vakir
þú yfir okkur og glottir við tönn og
vonandi orðin frísk.
Innilegar samúðarkveðjur til
þín, elsku Geir afi, sem hefur nú
misst ástina sína og blómið í lífinu.
Einnig til barnanna hennar og
sérstakar samúðarkveðjur til
móður minnar, sem hefur þurft að
horfa upp á bestu vinkonu sína og
móður kveðja þennan heim.
Tíminn flýgur áfram og hann
teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það
hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi
svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
(Megas)
Takk, elsku amma, fyrir allt.
Þinn ömmustrákur,
Heimir Óli Heimisson.
✝ RagnhildurGuðrún Guð-
mundardóttir,
Ragna, fæddist á
Brjánslæk, Barða-
strönd 5. júlí 1943.
Hún lést á LSH 18.
nóvember 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Kristín
Theodóra Guð-
mundsdóttir, f. í
Eyrarsveit á Snæ-
fellsnesi 27. ágúst 1914, d. 6.
febrúar 1988, og Guðmundur
Jóhann Einarsson, f. á
Skjaldvararfossi, Barðaströnd,
3. apríl 1893, d. 14. nóvember
1980. Þau voru bændur á
Brjánslæk Barðaströnd. Systk-
ini Rögnu: a) Jón Kristinn, f.
þau bændur á Auðkúlu í Arn-
arfirði, ásamt Hildigunni systur
Rögnu og Hreini bróður Sig-
urðar. Þau Ragnhildur Guðrún
og Sigurður Júlíus, eignuðust
dótturina Jónínu Guðrúnu 9.
mars 1969. Hún fóst í bílslysi í
Hraunsfirði á Snæfellsnesi 22.
janúar 1988, ásamt unnusta
sínum, Sigurði Steinari Sig-
urðssyni, f. 1. janúar 1963. Þau
voru til heimilis í Ólafsvík.
Hinn 14. júlí 1994 giftist Ragna
seinni manni sínum, Kristjáni
Sigurðssyni, f. 1942, d. 2012.
Börn Kristjáns frá fyrra hjóna-
bandi eru a) Sigurður, f. 1961,
b) Bryndís, f. 1964, d. 1996, c)
Kristjana, f. 1969, og d) Páll
Þór, f. 1972.
Ragnhildur Guðrún bjó með-
al annars á Barðaströnd,
Blönduósi, Borgarnesi, Akur-
eyri og síðan á Hvanneyri í
Borgarfirði, til síðasta dags.
Útför Ragnhildar fer fram
frá Brjánslækjarkirkju í dag,
29. nóvember 2014, kl. 12.30.
1918, d. 1991, b)
Kristján, f. og d.
1922, c) Jar-
þrúður, f. 1925, d)
Svanhildur, f.
1929, d. 1993, e)
Einar, f. 1931, d.
2013, f) Guðlaug,
f. 1932, g) óskírð-
ur drengur. f. og
d. 1935, h) Ragnar
Guðmundur, f.
1935, i) Hrafn, f.
1946, j) Hildigunnur, f. 1947,
k) Hildur Inga f. 1949, og
Guðmundur Jóhann, f. 1951.
Ragna giftist 8. desember
1968, Sigurði Júlíusi Þórðar-
syni, f. 4. desember 1943. Hann
fórst í snjóflóði í Hrafnseyrar-
heiði 22. mars 1971, þá voru
Elsku systir, nú þegar komið er
að kveðjustund, koma mér í huga
þessar ljóðlínur:
Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.
Myrkur dauðans megnar ekki að hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
– eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.
Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna –
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst að fegurð þeirra bjó.
Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.
Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
– athvarfið var stórt og bjart hjá þér.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum)
Hef í raun litlu við að bæta, en
þakka fyrir allar okkar samveru-
stundir, vona og veit að nú ert þú
komin til þeirra sem á undan voru
farin. Vona að góður guð fari um
þig mýkri höndum en lífið gerði,
þar var mörg raunin, sem mörgum
hefði orðið ofviða. Þú varst öllum
fyrirmynd, hvað æðruleysi varðar
og þrátt fyrir allt fylgdi glaðværðin
og prakkaraskapurinn alla tíð.
Guð blessi þig og varðveiti.
Þinn bróðir, „strákur“ eins og
þú hafðir alltaf sem kveðju er við
ræddum saman á tölvuspjallinu.
Guðmundur.
Ég hef aldrei velt því neitt sér-
staklega fyrir mér áður hversu
stór partur af mér er röddin mín,
hvernig hún hljómar þegar ég segi
eða skrifa eitthvað og hvað hún er
þá að túlka til þeirra sem hlusta.
Og hver væri ég ef ég missti rödd-
ina mína? Ég hugsa að ég myndi
líklega vilja kveðja.
Hún Ragna okkar var búin að
missa röddina sína. Þessa hlýju,
þægilegu rödd sem við höfum
þekkt alla okkar ævi. Þessa rödd
sem í gegnum súrt og sætt, þykkt
og þunnt hljómaði alltaf upp á við
þó svo sannarlega væri oft ástæða
til þess að tóna niður á við.
Það sem Ragna gekk í gegnum
frá a-ö í sínu lífi væri nóg til að
þagga niður í sterkustu karakter-
um fyrir löngu, löngu síðan. Alls-
konar ástir, frá þeim smáu og upp
í þær allra sterkustu og stærstu,
voru teknar frá henni án þess að
nokkur væri spurður álits. Yfir-
valdið var einhvern veginn ákveð-
ið í að á hana yrði lagt allt það sem
bugar og beygir mannkynið, og
allt stóð hún af sér af aðdáunar-
verðu æðruleysi sem fáum er gef-
ið. Hún bara gerði sitt besta.
Og hún hló, og hún hafði gam-
an. Hún hafði gaman af fólki og
fjölskyldu. Hún hafði gaman af
söng og sögnum. Hún hafði gam-
an af spennusögum og spilum.
Hún hafði gaman af fíflagangi og
saklausri stríðni. Hún hafði gam-
an af sveitinni sinni og öllu sem
hún bauð upp á. Og á meðan
mögulegt var þá hafði hún svo
sannarlega gaman af góðgæti og
ekta íslenskum mat.
Við erum heppin að hafa átt og
elskað Rögnu. Við erum heppin að
hafa oft haft hana í kringum okkur
síðustu árin, á hátíðis- og tyllidög-
um sem og virkum og venjulegum
dögum. Við erum heppin að hafa
talað við hana, hlegið með henni,
sungið og trallað í gríni og glensi.
Það er notalegt til þess að vita
að hún Ragna okkar hefur fengið
röddina sína aftur. Við erum sann-
færð um að hún er örugglega akk-
úrat núna að hlæja að einhverju
bulli með ástvinum sínum, ætt-
ingjum, kunningjum og sveitung-
um. Og hér eftir verður ekki meira
frá henni tekið.
Með ástar- og vinakveðjum,
Fyrir hönd foreldra minna,
systkina og fjölskyldna þeirra.
Sigrún Berglind Ragnars-
dóttir frá Brjánslæk.
Ragnhildur Guðrún
Guðmundardóttir