Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 29.11.2014, Qupperneq 57
var lánaður til Kongsvinger í Noregi þar sem hann lék mikið og liðið hélt sæti sínu í efstu deild eftir mikla fall- baráttu. Hann var síðan aftur hjá Örebro, kom heim vorið 1999, lék með meistaraflokki ÍA og varð bik- armeistari 2000 og fyrirliði liðsins 2001 þegar liðið varð Íslandsmeist- ari. Þá var hann valinn besti leik- maður mótsins. Veturinn á undan hafði hann dvalið í Þýskalandi og spilað með fornfrægu liði KFC Uerdingen. Skagamenn náðu ekki að fylgja eftir frábærum árangri 2001 en 2003 urðu þeir bikarmeistarar. Gunnlaugur gekk til liðs við KR 2005, lék þrjú tímabil í Vestur- bænum og varð fyrirliði liðsins. Haustið 2008 varð hann spilandi þjálfari hjá Selfossi í næstefstu deild og endaði sitt fyrsta þjálfaratímabil með því að koma liðinu í efstu deild í fyrsta sinn. Hann þjálfaði síðan Val eitt tímabil, því næst KA á Akureyr- ar í tvö ár en kom aftur suður haust- ið 2011 og tók við liði HK í 2. deild. Sumarið 2013 fagnaði HK svo sigri í 2. deild: „Þá kom kallið sem mig hafði alltaf dreymt um; að taka við stjórninni á uppeldisfélaginu mínu, ÍA á Akranesi. Markmiðið var að komast upp í efstu deild að nýju og það náðist hjá okkur Skagamönnum nú í haust.“ Gunnlaugur lék með öllum lands- liðum Íslands, þar af lék hann 12 A-landsleiki. Dægurlagasagan í tónlist „Mig hafði alltaf dreymt um að vinna á fjölmiðlum og fyrsta alvöru- tækifærið kom þegar ég gerði fimm þætti fyrir Rás 2 um hljómsveitina Nýdönsk vorið 2008. Í kjölfarið lagði ég inn hugmynd að mjög stórri þáttaröð.“ Eftir að hugmyndin hafði verið á borði stjórnenda rásarinnnar í fimm ár kom stóra kallið: Gunn- laugur hóf störf hjá RÚV í desember 2012 við að undirbúa þáttaröðina Ár- ið er – íslensk dægurlagasaga í tali og tónum en tilefnið var 30 ára af- mæli Rásar 2 árið 2013. Fyrsti þátt- urinn – Árið er 1983 – fór í loftið í byrjun maí 2013 en önnur þáttaröð hófst 1. nóvember nú í haust þegar byrjað var að telja niður frá árinu 2006. „Þessi upptalning sýnir að ég hef fengið að starfa við þrjú helstu áhugamál mín sem eru fótbolti, fjöl- miðlar og tónlist. Það eru ekki allir svo heppnir. En þrátt fyrir þetta allt er það þó fjölskyldan sem á hug minn allan og ég tel mig heppinn að hafa hitt Kristínu mína í Brussel haustið 2003. Börnin okkar tvö kóróna svo gæfuna í einkalífinu.“ Fjölskylda Kona Gunnlaugs er Kristín Hall- dórsdóttir, f. 30. 6. 1980, sérfræð- ingur í Landsbankanum. Foreldrar hennar eru Halldór Þorsteinsson, f. 29.9. 1944, grafískur hönnuður og myndlistarkennari, og Björg Guð- mundsdóttir, f. 1.10. 1949, matráður í leikskóla. Þau búa í Reykjavík. Kjörbörn Gunnlaugs og Kristínar eru Jón Breki, f. 4.3. 2006, nemi í Melaskóla, og Katrín Björk, f. 29.12. 2011, í leikskólanum Hagaborg. Bróðir Gunnlaugs er Stefán Jóns- son, f. 26.11. 1981, nemi í Reykjavík. Foreldrar Gunnlaugs eru Jón Gunnlaugsson, f. 19.12. 1949, um- dæmisstjóri VÍS, og Elín Einars- dóttir, f. 5.2. 1951, hjúkrunarfræð- ingur. Þau búa á Akranesi. Úr frændgarði Gunnlaugs Jónssonar Gunnlaugur Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Halldór Teitsson sjóm. í Hafnarfirði Guðrún Halldórsdóttir húsfr. í Reykjanesbæ Gunnlaugur Jónsson húsasmíðameistari í Reykjanesbæ Jón Gunnlaugsson umdæmisstj. á Akranesi Guðrún Samúelsdóttir húsfr. á Akranesi Jón Gunnlaugsson verkam. á Akranesi Guðrún Jónsdóttir saumakona Halldór Einarsson í Henson Þórunn Gísladóttir húsfr. í Rvík Bjarni Bjarnason verkam. í Rvík Sigrún Bjarnadóttir húsfr. í Rvík Einar Halldórsson skrifstofustj. í Rvík Elín Einarsdóttir hjúkrunarfr. á Akranesi Elín Sigurðardóttir húsfr. í Eyjum Halldór Einarsson verkstj. í Eyjum Anna Emilsdóttir blaðamaður Árni Emilsson tónlistarmaður Morgunblaðið/Ásdís Knattspyrnumenn ársins 2001 Gunnlaugur og Olga Færseth. ÍSLENDINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 Eiríkur Ketilsson stór-kaupmaður fæddist í Kaup-mannahöfn 29.11. 1924. Móðir hans var Guðrún Eiríksdóttir, veitingakona í Reykjavík og hót- eleigandi í Hafnarfirði, frá Járn- gerðarstöðum í Grindavík, dóttir Eiríks Ketilssonar, útvegsbónda, hreppstjóra og sýslunefndarmanns á Járngerðarsstöðum, og k.h., Jóhönnu Einarsdóttur húsfreyju. Eiginkona Eiríks var Hólmfríður Mekkinósdóttir, yfirflugfreyja hjá Loftleiðum, og eru dætur þeirra Guðrún Birna og Dagmar Jóhanna, en áður átti Eiríkur soninn Ásgeir Hannes með Sigríði Ásgeirsdóttur lögfræðingi. Eiríkur ólst fyrst upp í Hafnar- firði þar sem móðir hans rak veit- ingastofu í Flygenringshúsi. Þau fluttu til Reykjavíkur 1937 en hún starfrækti síðan matstofu í Thorvaldsensstræti 6 um árabil. Eiríkur var í Flensborgarskóla, var einn vetur í MA en söðlaði um og fór í Verslunarskóla Íslands og út- skrifaðist þaðan vorið 1945. Í Reykjavík var Eiríkur fyrst sendisveinn hjá Garðari Gíslasyni. Hann var sölumaður um skeið hjá Stefáni Thorarensen lyfsala en stofnaði fljótlega innflutningsversl- unina Landís og var stórkaupmaður eftir það. Fyrirtæki hans var fyrst til húsa í Thorvaldsensstræti, flutti brátt í hornhús Garðastrætis og Vesturgötu og var síðan á Vatnsstíg um langt árabil. Heildverslun sína rak Eiríkur með góðum árangri fram yfir sextugt, í liðlega hálfa öld og kenndi þar margra grasa. Þegar Eiríkur var kominn á þrí- tugsaldurinn taldi hann sig vera orð- inn vínhneigðari en góðu hófi gegndi. Hann gekk þá í nýstofnuð AA-samtökin hér á landi og starfaði þar ötullega æ síðan: „Tíu dögum eftir að AA-samtökin voru stofnuð gekk ég í þau, og kalla ég mig elsta AA-manninn í Evrópu,“ sagði hann. Eiríkur var ríflega meðalmaður á hæð, lengst af þéttvaxinn, hressileg- ur í viðmóti, hnyttinn í tilsvörum og bráðskemmtilegur sögumaður. Hann var löngum vinsæll fastagest- ur á kaffihúsum í Miðbænum. Eiríkur lést 16.11. 1999. Merkir Íslendingar Eiríkur Ketilsson Laugardagur 95 ára Eiríkur Ágústsson Unnur Guðmundsdóttir 90 ára Jón Runólfsson Magnús Helgason 85 ára Helga Guðbrandsdóttir Sigurlaug Sigurfinnsdóttir Valdís Erlendsdóttir Þórmundur Guðlaugsson 80 ára Guðlaugur Konráðsson Jón Viðar Guðlaugsson Þórður Jónsson 75 ára Bjarni Sveinsson Hannes Dagbjartsson Ingibjörg Dagbjartsdóttir Jón Friðrik Möller Þorsteinn Sigjónsson 70 ára Ása Gústafsdóttir Guðmundur Jónsson Magnús Guðmundsson Margrét Hjálmarsdóttir Minný Kristbjörg Eggertsdóttir Ragnar H. Olsen Viktoría Kristjánsdóttir 60 ára Brigitte Simon Eiríkur Þór Magnússon Erla Gerður Matthíasdóttir Guðjón Erling Friðriksson Guðríður Guðjónsdóttir Gunnar Hlöðver Tyrfingsson Hafdís Austfjörð Harðardóttir Helga Stolzenwald Helgi Friðberg Jónsson Kristín Tómasdóttir Sigríður Jóna Gísladóttir Sigurður Valur Jónasson Þórhalla K.H. Grétarsdóttir Þuríður Þorbjarnardóttir 50 ára Ásgeir Magnús Sæmundsson Finnur J. Malmquist Guðmundur B. Theódórsson Guðrún Halldóra Sigurðardóttir Hörður Davíð Harðarson Jóhanna Gunnlaugsdóttir Ragna Björk Georgsdóttir Rósa Jónsdóttir Sigurlaug Didda Jónsdóttir Steina Þórey Ragnarsdóttir Zdravko Velikov Demirev 40 ára Ásdís Þorgilsdóttir Björk Arnbjörnsdóttir Helga Tryggvadóttir Hrefna Ósk Núpdal Leifsdóttir Marcin Andrzej Zroslak Markús Hörður Hauksson Runólfur Sveinbjörnsson Þórunn Sif Sigurjónsdóttir 30 ára Anna Sif Hjaltested Björn Elías Halldórsson Erling Þór Jónsson Gísli Már Gíslason Hannes Kristinn Sigurðsson Helga Guðmundsdóttir Hildur Axelsdóttir Ívar Örn Jörundsson Kjartan Hrafn Matthíasson Marcin Michal Kosmowski Óskar Jónsson Páll Ingi Ævarsson Sandra Oddsdóttir Sigfús Steingrímsson Unnur Karlsdóttir Sunnudagur 90 ára Nikolay Chernyshev Torfi Þorkell Ólafsson 85 ára Guðbjörg Ólína Þórarinsdóttir Málfríður Anna Guðmundsdóttir 80 ára Aðalbergur Þórarinsson Birgir Alfreðsson Einar Þór Jónsson Jónas Frímannsson Sigurður Albertsson Sigurður Jónsson Victor M. Strange 75 ára Ásta Bjarnadóttir Gunnþór Eiríksson María Kristín Haraldsdóttir 70 ára Guðný Ósk Agnarsdóttir Hannes Stígsson Iðunn Haraldsdóttir Ingiberg Magnússon Lárus Pétursson Ragnar Gunnarsson Þráinn Bertelsson 60 ára Anna Ólafsdóttir Halla Kristín Þorsteinsdóttir Hallgrímur Bogason Hildur Eggertsdóttir Hulda Halldórsdóttir Jón Magnús Jónsson Kristín Árnadóttir 50 ára Ágústa Jóhanna Jóhannesdóttir Berglind H. Guðmundsdóttir Eiríkur Einarsson Guðbjörg Daníelsdóttir Hafþór Kjartansson Inga Dóra Sverrisdóttir Ingibergur Jóhannsson Kristín Agla Einarsdóttir Linda Björk Bentsdóttir Ólafía Daníelsdóttir Pálína Vagnsdóttir Viðar Jónsson 40 ára Ágnes Katona Ernesto Ortiz Alvarez Hrefna Sigurgeirsdóttir Hrefna Valdimarsdóttir María Karólína Höskuldsson Sigrún Kristjana Gylfadóttir Sjöfn Elísa Albertsdóttir 30 ára Atli Sigurðsson Brynja Guðrún Eiríksdóttir Einar Guðmundsson Freydís Guðný Hjálmarsdóttir Haukur Sigurðsson Irina Timchenko Kristinn Ingólfsson Snæbjörn Brynjarsson Yingyu Zong Þorkell Jóhannes Traustason Þórunn Helga Þórðardóttir Til hamingju með daginn Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.