Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 62

Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bitter, resentful, eða Bitur, gram- ur, nefnist nýútkomin fyrsta sóló- skífa Sindra Eldons sem gefin er út af Smekkleysu. Blaðamaður sló á þráðinn til Sindra í vikunni og spurði, í ljósi titilsins, hvort platan einkenndist af e.k. uppgjöri eða sjálfsháði. „Ég veit ekki, ég hef lent í ákveðnum erf- iðleikum sem fylgja því að reyna að koma sér áfram sem tónlistarmaður sem margir hafa væntanlega lent í. Mér finnst það mjög skrítið að maður heyrir aldrei um annan tónlistarmann sem er að lenda í öllu þessu „skull“-i sem ég er allt- af að lenda í. Ég veit að það hlýt- ur að koma fyrir þá, það getur bara ekki annað verið og kannski kominn tími til að segja það. Kannski er þetta líka svolítið breiðara „statement“ sem fylgir minni kynslóð. Ef nánar er rýnt í textann má lesa út úr honum að ég hef eiginlega ekkert til að vera bitur yfir. Ég hef það voðalega fínt á alheimsmælikvarða og þess vegna finnst mér það svolítið fyndið að maður sé bitur yfir ákveðnum hlutum eða allir af minni kynslóð … eða ekki, ég veit það ekki. Þetta er ágætislýsing á mér. Mér fannst þetta fínn titill á mína fyrstu sólóplötu. Þetta var lag fyrst og svo fannst mér það virka vel sem titillag því það er einföld mantra í því,“ segir Sindri. Leiddist lýðræðið Sindri samdi nær öll lög og texta á plötunni og á henni leika með honum sömu hljóðfæraleik- arar og hafa komið fram með hon- um á tónleikum í hljómsveitinni Sindri Eldon and the Ways. Þeir eru Friðrik Sigurbjörn Friðriks- son á bassa, Ásmundur Jóhanns- son sem leikur á slagverk o.fl., Sævar Árnason á gítar og auk þeirra syngur Andrea Björk Andr- ésdóttir dúett með Sindra á plöt- unni. Sindri segist leiða þennan hóp, ráða ferðinni enda sé hann orðinn fullsaddur á því að vera í hjóm- sveitum þar sem lýðræði ræður ríkjum. Í slíkum hljómsveitum þurfi allir að samþykkja allt, allt frá lagasmíðum yfir í hönnun á plötuumslagi. „Þetta er rosalega leiðinlegt og asnalegt ferli og ég var kominn með nóg af því. Mér fannst besta leiðin til að koma í veg fyrir að þetta gerðist aftur að kalla næsta verkefni mitt sóló- verkefni,“ segir Sindri. – Einræðið virkar þá betur? „Já, algjörlega.“ Þrjár og hálf stjarna Sindri skrifaði lengi vel um tón- list og gagnrýndi fyrir götublaðið Grapevine og segist aldrei hafa flokkað tónlist eftir tegundum, að beiðni ritstjóra, og kunnað vel við það fyrirkomulag. Hann er því lít- ið gefinn fyrir að flokka eigin tón- list, setja hana í ákveðna skúffu eða flokk. „Ég stefni að því að hafa tónlistina mína eins vandaða og sjálfsmeðvitaða og gítarpopp var um aldamótin,“ segir hann. „Það væri mikill hroki í mér að geta sagt til um hvernig tónlist þetta er, tónlist er fyrir hitt fólkið, ekki mitt að dæma.“ – Talandi um að dæma, nú gagnrýndir þú plötur fyrir Grape- vine. Ertu til í að gagnrýna plöt- una þína fyrir lesendur, í stuttu máli? „Þetta er plata sem er hægt að týna sér í, sándlega séð, og gott að hlusta á hana með heyrnartól í strætó. Lagasmíðin er frumstæð en melódíurnar stundum grípandi, gítarvinnan mætti vera harðari og söngurinn er fullflatur. Á heildina litið er þetta áhugaverð plata en samt glappaskotin ákveðnum feil- sporum sem tónlistarmanninum tekst kannski að endurtaka ekki á næstu plötu,“ svarar Sindri án mikillar umhugsunar, blaðamanni til kæti. – Stjörnur, af fimm mögu- legum? „Þrjár og hálf.“ Líkt við Bolan – David Fricke, hinn frægi tón- listarrýnir Rolling Stone, var af- skaplega ánægður með tónleika ykkar, Sindra Eldon and the Wa- ys, á Iceland Airwaves í byrjun mánaðar og nefndi þá í upptaln- ingu sinni á þeim tíu viðburðum sem heilluðu hann mest á hátíð- inni. Skiptir svona klapp á bakið þig miklu máli? „Já og nei. Fricke er almennt talinn úreltur, að hann viti ekkert hvað hann er að tala um lengur. Ég er ekkert endilega hlynntur þeirri skoðun, ég er svolítið hlut- laus gagnvart honum og hef ekk- ert lesið eftir hann, þannig séð, veit eiginlega ekkert hver þetta er. Ég kann vel að meta að hann líki mér við Marc Bolan, einn af mínum uppáhaldstónlistarmönn- um. Mér finnst músíkin hans frá- bær. Að hann tali vel um sönginn hjá mér og líki við Bolan, það fannst mér skemmtilegt,“ svarar Sindri og snýr sér að því sem er ekki eins jákvætt, að Fricke skuli nefna í inngangi greinar sinnar að Sindri sé sonur Bjarkar Guð- mundsdóttur. Sindri segir að svo virðist sem Fricke hafi sótt tónleikana af þeirri ástæðu. „Það er borðleggj- andi að hann hefði ekkert verið á þessum tónleikum væri ég ekki sonur Bjarkar en punkturinn er sá að hann var á þeim og skemmti sér. Ég held að hann myndi ekk- ert ljúga því, bara af því ég er sonur Bjarkar,“ segir Sindri. Það hafi því sína kosti og galla að rata á topp-tíu-lista Frickes. „Þetta er ágætislýsing á mér“  „Lagasmíðin er frumstæð en melódíurnar stundum grípandi, gítarvinnan mætti vera harðari og söngurinn er fullflatur,“ segir Sindri Eldon í gagnrýni um eigin sólóplötu, Bitter, resentful Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson Sindri „Ég hef það voðalega fínt á alheimsmælikvarða og þess vegna finnst mér það svolítið fyndið að maður sé bitur yfir ákveðnum hlutum.“ Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju hefst á morgun og stendur til 31. desember. Hátíðin hefst með hátíð- armessu kl. 11 sem flutt verður í beinni útsendingu á Rás 1. Schola cantorum flytur kantötuna Nun komm der Heiden Heiland BWV 61 eftir J.S. Bach ásamt hljóðfæraleik- urum og einsöngvurunum Braga Bergþórssyni tenór, Thelmu Hrönn Sigurdórsdóttur sópran og Fjölni Ólafssyni bassa. Stjórnandi er Hörður Áskelsson og orgelleikari Björn Steinar Sólbergsson. Kl. 17 verða haldnir orgel- tónleikar undir yfiskriftinni „Nú kemur heimsins hjálparráð“. Á þeim leikur Björn Steinar Sólbergs- son aðventu- og jólatónlist eftir J.S. Bach, Andrew Carter, César Franck og Max Reger. Mótettukór Hallgrímskirkju heldur þrenna tón- leika á hátíðinni, 6., 7. og 9. desem- ber, flytur fjölradda kórverk endurreisnartímans fyrir tvo kóra í bland við enska og ameríska jóla- tónlist frá 20. öld, auk þekktra jóla- laga. Schola cantorum heldur tvenna hádegistónleika miðviku- dagana 3. og 17. desember kl. 12 og hátíðartónleika 28. desember kl. 17 þar sem Fjölnir Ólafsson barítón og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran verða meðal einsöngvara. Á efnisskránni verður bæði ný og þekkt jólatónlist og einnig verða frumfluttir nýir enskir jólasöngvar eftir Hafliða Hallgrímsson. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á vef Listvinafélags Hall- grímskirkju sem stendur að hátíð- inni, listvinafelag.is. Hátíð Mótettukór Hallgrímskirkju með stjórnanda sínum, Herði Áskelssyni. Jólatónlistarhátíð hefst í Hallgrímskirkju á morgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.