Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014
HEIMURINN
KÍ
E G naBlöð í Kí
a enna man u að draga
uróttækki skuli búist við
Kínnndi áðame
0r muni ná há
kmfram skilgreind
Eitt kínversku bla
rm kemur út á en
gstindi
geteg
íu en Johns kunni
.ústvegna ebólu-faraldursins síðan í ág
u væ
að
ri
u
u fu v
NAÚKRAÍ
UGARÐIKÆN u til að flytja lík fallintalið erRússneskir h
Öryggis- on aftur heim. Fulltrúarfara yfir landamærsáust
líkflutningabíll. Rússareinn bíll hafi verið merktur seminnstunar Evrópu, Ösamvinnus
na í Austur-Úkraínuergögn til héraða aðskilnaðarsinn og hafi sega að þeir hstaðfas
bardagar hafa verið ándalagið segja að svo sé. Harðirntshðöld íæði stjó afsba
ð vo að nafninu til í gildi.nahlé sé
N
EMPHIS
hljómplatan
Elvis Presleys
íd á uppboði ja
Árið 1953 var Pre
18 ára gamall og lét ta
hesHappiness og Thats W
Begin, til að t.heyra hve
Platan var
er til þetta
rokksöngv ékk
1954 og va
rokktónlist
Gjörspillt samtök, löðrandi íklíkuskap, mútum og öðr-um óhroða? Nei, segir Al-
þjóðaknattspyrnusambandið (FIFA)
og bendir á að fáir forystumenn í
110 ára sögu þess hafi verið dæmdir
fyrir spillingu. Í tvö ár hefur FIFA
látið rannsaka ásakanir um misferli í
tengslum við úthlutun heimsmeist-
aramótanna 2018 og 2022 en þau
verða haldin í Rússlandi og Katar.
Inn í þessi mál blandast að sjálf-
sögðu heimspólitík, framferði Rússa
í Úkraínu og stuðningur margra
áhrifamanna í Katar við hryðju-
verkamenn. Og peningahagsmunir.
Milljarðar á milljarða ofan.
Birt var á fimmtudag skýrsla sem
FIFA lét gera þar sem bæði ríkin
voru lýst saklaus, þau hefðu ekki
tryggt sér mótin með mútum. Mál-
inu væri lokið. Á hinn bóginn voru
bæði Bretar og Ástralar sagðir hafa
„skaðað ímynd FIFA“ með því að
beita óbeinum mútum, m.a. dýrum
kvöldverði og aðstoð við atvinnuleit,
til að tryggja sér atkvæði. Mútum
sem ekki báru árangur. Bauð ein-
hver betur?
Ástralar og Bretar voru meðal
þeirra sem vildu fá mótið 2018, þeir
afhentu öll tölvuskeyti og fleiri gögn
sem máli skiptu. En Rússar segjast
hafa leigt tölvurnar sem notaðar
voru og þeim sé nú búið að eyða!
Rússland er talið eitt af spilltustu
ríkjum heims og valdaklíkan í
Kreml vílar fátt fyrir sér. Katar er
einræðisríki þar sem fámenn fursta-
ætt gín yfir öllu. Bresk blöð og álits-
gjafar segja að málið allt sé fárán-
legur kattarþvottur, sýknun Rússa
er líkt við að maður mæti ekki fyrir
rétt vegna sakamáls og sé þá sýkn-
aður.
Þing FIFA er æðsta vald samtak-
anna og tekjurnar í fyrra voru um
1,3 milljarðar dollara, 160 milljarðar
ísl. kr., aðallega frá kosturum og
vegna sjónvarpsréttinda. Nettóhagn-
aður var um 72 milljónir dollara.
Þrjátíu manns sitja í fram-
kvæmdastjórn og voru árslaun
þeirra tvöfölduð á árinu, eru nú 200
þúsund dollarar, nær 15 milljónir kr.
Forsetinn, Sepp Blatter, er með um
155 milljónir kr. fyrir utan ýmsa
bónusa. Gamla knattspyrnuhetjan
Diego Maradona segir að í stjórn
FIFA sitji fyrir á fleti „risaeðlur“
sem hafi það eitt í huga að láta ekki
hrófla við sér.
FIFA-menn segja stundum að
menn eigi ekki að vera alltaf að vera
að velta sér upp úr ásökunum um
spillingu og öðrum leiðindum heldur
bara njóta knattspyrnu, vinsælustu
íþróttar í heimi. Að sjálfsögðu væri
það langbest fyrir þá. En samtökin
eru nú í vanda og eru jafnvel sögð
hafa skotið sig í fótinn vegna þess
að þau birtu aðeins samantekt,
innan við 10% af skýrslunni um-
deildu sem alls er um 430 blaðsíður.
Var því borið við að um viðkvæmar
upplýsingar væri að ræða, eins og
Rússar lögðu að sögn áherslu á.
Garcia hyggst áfrýja
Bandarískur lögfræðingur og þekkt-
ur, fyrrverandi saksóknari í New
York, Michael Garcia, annaðist
sjálfa rannsóknina fyrir FIFA.
Hann er afar ósáttur, segir að í
samantektinni séu bæði rangfærslur
og ónákvæmni. Birta verði alla
skýrsluna, þótt að sjálfsögðu megi
ekki birta nöfn uppljóstrara (sem
fullyrt er að hafi sumir notast við
leynilegar upptökur af klíkufundum
hjá FIFA.) Sama segir stofnunin
Transparency International sem
fylgist með spillingu um allan heim:
birta verði skýrsluna í heild.
Þjóðverjinn Hans Joachim Eckert
er formaður úrskurðarráðs siða-
nefndar FIFA og hann hefur varið
samantekt sína. En Garcia hyggst
áfrýja niðurstöðu Eckerts til
FIFA og segja menn erfitt að
spá um árangurinn. Hins vegar mun
bandaríska alríkislögreglan, FBI,
vera að rannsaka mútumálið og þá
gæti ýmislegt komið í ljós.
Furðu vakti þegar Katar fékk út-
hlutað HM 2022, land sem er þannig
staðsett að ekki er hægt að halda
mótið að sumri til. Eitt af því sem
varpar skugga á væntanlegt mót er
að Katarar nýta sér ódýrt vinnuafl
frá ýmsum Asíulöndum við að reisa
íþróttamannvirkin fyrir HM. Mikið
hefur verið um vinnuslys og traðkað
er á réttindum verkamanna.
Blaðið Guardian skýrði nýlega frá
því að Norður Kórea, sem gerir út
tugþúsundir verkamanna til að
vinna í Síberíu og víðar um heim,
hafi sent nokkur þúsund verkamenn
til Katar. Þeir hefja störf klukkan
sex á morgnana og eru að nær óslit-
ið fram á miðnætti. Og þeir fá að-
eins peninga fyrir nauðþurftum.
Einn þeirra sagði flóttalega að hann
vonaðist eftir því að fá laun þegar
hann kæmi heim. En útlægir N-
Kóreumenn segja að launin renni til
ríkisins.
Sádinn Saud Khariri (aftar) berst um boltann við Katarann Abdulaziz Hatem í opnunarleik Persaflóamótsins í knatt-
spyrnu sem hófst í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, á fimmtudag. Átta þjóðir taka þátt í mótinu.
AFP
Óvenju léleg
boltameð-
ferð FIFA
* Ég tel að FIFA sé ekki heiðarleg samtök og hafi ekkiverið það í mörg ár.Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
Forseti FIFA, Svisslendingurinn
Sepp Blatter, er 78 ára, hann
hefur gegnt embættinu síðan
1998. Hann hefur oft verið sak-
aður um spillingu en var endur-
kjörinn með miklum meirihluta
atkvæða 2011.
Blatter nýtur þess að margar
þjóðir utan Vesturlanda líta
spillingu mildum augum, hún sé
ekki mikið verri en þjórfé. Og
þeim finnst að vestrænar þjóðir
hafi lengi ginið yfir öllu í íþrótta-
heiminum. Nú sé kominn tími til
að gömlu nýlenduveldin hleypi
öðrum að, t.d. Katar sem á líka
nóga pen-
inga.
Sepp Blatter
OFT GAGNRÝNDUR
ÁSAKANIR UM SPILLINGU Í ÍÞRÓTTAHREYFINGUNNI
HAFA OFT REYNST RÉTTMÆTAR. NÚ VIRÐIST AL-
ÞJÓÐAKNATTSPYRNUSAMBANDIÐ, FIFA, REYNA MARK-
VISST AÐ GRAFA SÍNA EIGIN GRÖF.