Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 43
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Ónáttúruleg fegurð
F
egurðarstuðull samfélagsins hefur hækkað svo um
munar með tilkomu myndvinnsluforritsins Photo-
shop. Í nánast hverju einasta tímariti og auglýsingu
eru ljósmyndir unnar og oft í svo miklum mæli að
manneskjan verður óþekkjanleg.
Með Photoshop er mittið grennt, fætur lengdir, húðin
slétt, tennur hvíttaðar og svo framvegis. Við getum því mörg
sammælst um að þetta sé farið svolítið úr böndunum og feg-
urðarviðmiðin nánast ekki af þessum heimi, eða eins og ljós-
myndarinn Peter Lindberg orðaði það, að fyrirsætur litu út
eins og eins konar Marsbúar. Það er ómögulegt fyrir með-
almanninn, sama hversu fullkominn hann er, að keppa við
óeðlilega ásýnd unnu myndanna
Gagnrýna ofunnar myndir
Nokkrar af helstu stórstjörnum heims hafa mótmælt þess-
ari þróun, bæði með því að gagnrýna opinberlega mynd-
vinnslu á forsíðum tímarita eða neita því alfarið að myndir
af þeim verði unnar með Photoshop.
sigurborg@mbl.is
L
ady Gaga prýddi forsíðu tímaritsins Glam-
our 2013. Í ræðu sinni á verðlaunaafhend-
ingu Glamour-konu ársins gagnrýndi
Lady Gaga myndirnar af sér og sagði for-
síðumyndir tímarita, eins og myndina sem birtist
af henni, hafa skaðleg áhrif á lesendur tímarits-
ins. Hún sagði meðal annars að hún liti ekki svona
út í raunveruleikanum, húðin væri of fullkomin og
hárið of mjúkt. „Það telst til góðra frétta þegar
þið skrifið um breytingar í tímaritum ykkar. En
það sem ég vil sjá er breytingar á forsíðumynd-
unum … Þegar forsíðurnar breytast, þá loks fer
viðhorfið að breytast.“
L
eikkonan Keira Knightley vakti athygli í vikunni
þegar myndir af henni berbrjósta birtust í tímarit-
inu Interview, en leikkonan samþykkti myndirnar
með því skilyrði að þær yrðu ekki unnar eftir á.
Knightley hefur áður gagnrýnt of-unnar myndir og
greindi frá gremju sinni yfir því hvernig líkama hennar
hefði gjarnan verið breytt í gegnum ferilinn, í myndaþátt-
um og kynningarefni kvikmynda við tímaritið The Times.
„Kvenlíkaminn er vígvöllur og tel ég að það sé að hluta til
ljósmyndurum að kenna. Samfélagið tekur mikið mið af
ljósmyndum, og því er erfiðara að gera sér grein fyrir ólíkri
líkamslögun,“ sagði Knightley meðal annars.
B
rad Pitt var for-
síðufyrirsæta
febrúarheftis
tímaritsins W
árið 2009, þá 45 ára
gamall. Brad vildi ekki
að myndirnar af sér
yrðu unnar því honum
þótti það óeðlilegt.
Chuck Close, ljósmynd-
arinn sem myndaði Brad
fyrir forsíðuna, sagði í
yfirlýsingu: „Þú getur
ekki verið ljóshærður
lítill strákur að eilífu.“
O
furfyrirsætan Lara Stone sem er eitt af andlitum
tískuhússins Calvin Klein greindi frá því í viðtali við
breska tímaritið Evening Standard í júní að henni
hefði verið sagt upp fyrirsætustarfi, þá komin þrjá
mánuði á leið með son sinn, vegna þess að kúnnanum þótti hún
hafa bætt á sig. Lara, sem átti son sinn í desember á síðasta ári,
birtist í vikunni á forsíðu og í myndaþætti tímaritsins System
bæði í undirfötum og nakin. Ljósmyndarinn Juergen Teller tók
myndirnar af Löru, sem eru algerlega óunnar.
Þ
að var árið 2003 sem ein frægasta photoshop-
deilan kviknaði þegar Titanic-leikkonan Kate
Winslet gagnrýndi opinberlega forsíðumynd af
sér á breskri útgáfu tímaritsins GQ, þar sem lík-
ama leikonunnar var breytt og hann grenntur. Kate hef-
ur oft rætt um líkamsvirðingu í viðtölum og haldið því
fram að konur þurfi ekki að vera grannar til þess að vera
aðlaðandi.
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
•100%
NÁTTÚRUL
EG
T
•
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt ámarga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki ámorgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn