Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 52
Ummæli álitsgjafa um Vigdísi Finnbogadóttur „Svo fróð og gagnmenntuð og það endurspeglast í miklum orðaforða og blæbrigðaríkri tjáningu.“ Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum „Með sitt sérstaka og mjúka „err-hljóð“ sem minnir mig alltaf á mömmu mína. Mér hefur alltaf þótt hún Vigdís tala framúrskarandi íslensku. Ef það hefur verið til yfirstéttaríslenska þá er það íslenskan hennar!“ Gunnar Helgason, leikari og rithöfundur „Vigdís er í sérflokki.“ Lárus H. Bjarnason, rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð „Velur lýsingarorð af kost- gæfni og því verður mál henn- ar mjög myndríkt og áheyrilegt.“ María Björk Kristjánsdóttir, fagstjóri ís- lensku við Menntaskólann í Reykjavík „Fáir hafa sýnt íslensku máli jafn mikinn áhuga og virðingu.“ Þorgrímur Þráinsson rithöfundur Ummæli álitsgjafa um Þórarin Eldjárn „Hann veitir manni trú á mannkynið, eða að minnsta kosti framtíð íslenskrar tungu, og skyndilega hellist yfir mann þörfin til að taka internetið úr sambandi, og setjast niður með skinnhandrit af Njálu.“ Ísold Uggadóttir kvikmyndagerðarkona „Einn af þeim sem geta komið hlutum frá sér á ein- staklega skemmtilegan hátt.“ Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur „Beitir tungumálinu á einstaklega ferskan og lifandi hátt. Hann á auðvelt með að setja orðin í skemmtilegt samhengi og sjá þau í nýju ljósi.“ Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leikhús- ráðunautur hjá Þjóðleikhúsinu „Frumlegur stílsnillingur sem stendur þó föstum fótum í hefð- inni.“ Benóný Ægisson rithöf- undur „Mjög skapandi og bregður á leik með málið af svo mikilli andagift að fáir leika það eftir.“ Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í ís- lenskri málfræði ÞAU ALLRA BEST MÆLTU Vigdís og Þórarinn báru af FYRRVERANDI FORSETI ÍSLANDS, FRÚ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR, OG ÞÓRARINN ELDJÁRN RITHÖFUNDUR FENGU FLESTAR TILNEFNINGAR SEM „BEST MÆLTU ÍSLENDINGARNIR“ HJÁ ÁLITSGJÖFUM SUNNUDAGSBLAÐS MORGUNBLAÐSINS OG VORU HNÍFJÖFN AÐ ATKVÆÐUM. Úttekt 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014 D agur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur um helgina, sunnu- daginn 16. nóvember, en árið 1995 ákvað ríkisstjórn Íslands að fæðingardagur Jónasar Hall- grímssonar yrði dagur íslenskrar tungu. Af því tilefni setti Sunnudagsblað Morgunblaðsins sig í samband við rúmlega fimmtíu álitsgjafa sem inntir voru eftir því hvaða Íslendinga þeir teldu sérstaklega vel mælta á móður- málið. Álitsgjafar eiga það sameiginlegt að vinna mikið, á einn eða annan hátt, með tungumálið og voru þeir því meðal annars úr rithöfunda- stéttinni, prófessorar í íslensku og bók- menntum, íslenskukennarar og leikhúsfólk. Spurningin sem borin var undir álitsgjafa var eftirfarandi: „Hvaða Íslendingar finnst þér tala eftirtektarvert gott mál eða hvaða Íslend- ingar eru „best“ mæltir að þínu mati?“ Vissulega er slíkt huglægt mat hvers og eins, hvað er að vera vel máli farinn eða tala fallega íslensku, og var fólk beðið um að meta það sjálft, hvort það væri vegna þess að mál viðkomandi væri skapandi, hreint, fal- legt eða hvaða þættir það væru sem gerðu mál viðkomandi betra en annarra. Um leið og Íslendingum er óskað til ham- ingju með daginn eru álitsgjöfum færðar kær- ar þakkir fyrir góðar undirtektir við beiðninni en á næstu blaðsíðum má skoða helstu niður- stöður úttektarinnar. Best mæltu Íslendingarnir Í TILEFNI DAGS ÍSLENSKRAR TUNGU VAR ÞESS FARIÐ Á LEIT VIÐ MÁLSMETANDI MENN OG KONUR AÐ ÞAU SEGÐU HVAÐA ÍS- LENDINGAR VÆRU AÐ ÞEIRRA MATI VEL MÆLTIR. SÁ HÓPUR ER FJÖLBREYTILEGUR EN ÞÓ BÁRU NOKKRIR AF OG URÐU FYRR- VERANDI FORSETI ÍSLANDS, FRÚ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR, OG ÞÓRARINN ELDJÁRN RITHÖFUNDUR HLUTSKÖRPUST. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.