Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014 * Ég skal viðurkenna það að ég hlakkaði tilþegar ég fór að sofa í gærkvöldi og vaknaðikátur í morgun. Þetta er mikill gleðidagur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í samtali við mbl.is Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is Eysteinn Aðalsteinsson hefurstaðið vaktina í FiskbúðSiglufjarðar við Ráðhústorgið í áratugi og eiginkonan, Arnfinna Björnsdóttir, alltaf kölluð Abbý, verið honum til aðstoðar síðustu ell- efu ár. Boðið er upp á spriklandi ferskan fisk alla daga í búðinni og heitan mat í hádeginu. Sumir taka hann með sér í bakka en aðrir borða með hjónunum. Reyndar er gestkvæmt allan daginn. „Karlarnir koma mikið til að hitta Eystein en konurnar líta frekar við á vinnustofunni hjá mér. Það er stutt á milli, bara fjögur hús: ég er við Aðalgötu 13 og hann 27,“ segir listakonan Abbý. „Þetta er bara dútl núna miðað við það sem var þegar við vorum hér þrír og verkuðum meira að segja og fluttum út saltfisk,“ segir Eysteinn. Hann fór að vinna í Fiskbúð Jósa og Bödda árið 1977 með eigend- unum, Jósafat Sigurðssyni og Birni Þórðarsyni. Þeir seldu honum þriðj- ung 1981 en fluttu báðir suður tveimur árum síðar og nafni fyr- irtækisins var breytt. Þá eignuðust hlut Guðfinnur bróðir Eysteins og Salman Kristjánsson, sem giftur er frænku Abbýjar, en hjónin keyptu þá út fyrir margt löngu. Abbý vann á skrifstofum bæj- arins í 37 ár, „en þegar ég stóð á sextugu ákvað ég að hætta þótt ég mætti vinna til sjötugs og færði mig yfir í fiskbúðina til að hjálpa Ey- steini“. Hann bauð á þessum árum alltaf upp á plokkfisk á fimmtudögum og svið með rófustöppu á föstudögum. „Karlar sem voru einir á báti og nenntu ekki að elda komu margir og keyptu mat,“ segir Abbý. „Versl- un í nágrenninu seldi heitan mat í hádeginu alla daga en þegar henni var lokað komu karlarnir til Ey- steins og spurðu hvort hann gæti ekki selt hádegismat oftar, og eftir að ég hætti hjá bænum, 2003, elda ég alltaf í hádeginu virka daga: venjulegan heimilismat sem karl- arnir vildu.“ Pláss er fyrir tíu í eldhús- króknum inn af fiskbúðinni auk hjónanna: „Karlarnir segja að stemningin sé öðru vísi en á veit- ingastöðum. Þeim finnst þetta eins og í káetunum á sjónum í gamla daga!“ Abbý segist passa sig á að elda ekki of mikið. „Ég geri ráð fyr- ir 15 manns á dag. Okkur finnst við vera að gera körlunum greiða. Fastagestirnir eru færri en áður því þeir hafa auðvitað týnt tölunni en alla daga kemur einhver.“ Síðustu misseri koma afkomendur hjónanna og annað skyldfólk reglu- lega í mat. „Eftir að [listakonan] Aðalheiður dóttir okkar keypti Al- þýðuhúsið og flutti vinnustofuna sína hingað til Siglufjarðar er fjöl- skyldan hér reglulega og borðar þá auðvitað með okkur.“ Abbý er orðin 72 ára og Eysteinn árinu eldri en þau halda ótrauð áfram. „Það er gaman að halda þessu gangandi. Einhvern tíma kemur að því að við drögum í land en ég ýti ekki á minn mann að hætta því hann hefur svo mikinn fé- lagsskap af þessu. Það er rennerí allan daginn af mönnum sem koma og fá sér kaffibolla og kjafta. Það er gott að geta farið þarna niður eftir á morgnana og verið kominn heim klukkan hálfsjö á kvöldin. Við erum með lokað á milli eitt og tvö, þá erindast maður í bænum og ég fer svo á vinnustofuna klukkan tvö og Eysteinn sækir mig klukkan sex.“ Þegar fólki fækkaði í bænum varð minna að gera í fiskbúðinni en undanfarin ár hefur leiðin legið upp á við á ný, ekki síst vegna fjölgunar ferðamanna. „Fólk þyrpist hingað, sérstaklega á sumrin, og útlend- ingar kaupa til dæmis mjög mikið af ferskum fiski, fara suður á tjald- stæði og elda. Það er ekki amalegt,“ segir Eysteinn. SIGLUFJÖRÐUR Fiskur og félagsskapur AUK ÞESS AÐ GEGNA ÞVÍ AUGLJÓSA HLUTVERKI SEM NAFNIÐ GEFUR TIL KYNNA ER FISKBÚÐ SIGLUFJARÐAR ÓFORMLEG FÉLAGSMIÐSTÖÐ. ÞAR KOMA MARGIR DAGLEGA TIL AÐ FÁ SÉR KAFFISOPA OG RÆÐA MÁLIN. Hjónin Arnfinna Björnsdóttir, Abbý, og Eysteinn Aðalsteinsson standa vaktina í Fiskbúð Siglufjarðar. Eysteinn kaupir fisk beint af bátunum, sækir hann þegar sjóararnir koma í land og verkar sjálfur. „Hér er enginn milliliður og ekki keyptur auka starfskraftur. Matreiðslu- meistarinn er meira að segja launalaus – en fær reyndar fæði og húsnæði!“ segir Abbý og hlær. Hún sér um að elda. „Við höfðum gaman af því að sjá frétt í Akureyr- arblaðinu í vikunni þar sem sagt var frá því að fisk- verð í Fiskbúð Siglu- fjarðar væri það lægsta á landinu.“ SAMSTARF Kokkurinn launalaus! Abbý býður upp á hversdags- legan heimilismat í hádeginu. UM ALLT LAND FJARÐABYGGÐ Bæjarráð Fjarðabyggðar telur að lítið húsnæði heilsugæslu sveitarfélagsins á Reyðarfirði sé farið að há starfseminni og við verði að bregðast sem fyrst. Með vísan til viljayfirlýsingar HSA og Fjarðabyggðar frá 28. júní 2013 skorar bæjarráð á ðherra að stækkun húsnæðisiheilbrigðisrá ns verði flýtt sem kostur er. HORNAFJ Áform eru u Á NNAEYJAR enn sé ár eftir af mannaeyjabæjar fyrir áramót. Fjölskyldu- o tekist vel en vegna álits sa EYJAFJARÐARSVEIT Kvenfélagið Hjálpin varð 100 ára á dögunum. Af því tilefni er sveitungum og velunnurum, sérstaklega íbúum Saurbæjarhrepps hins forna og fyrrverandi l unaborg sum 100 árum eins og í s eða á hestum. Boð vo með ákveðnu skipulagi á milli bæja og voru kirk ðtil að koma bo um áleiðis og ræða tiltekin mál,“ segir DALABYGGÐ amhljóða að selja é Dalabyggðar ðuriðjunni fsdal ehf. í Búðardal til Daða Einarss rir hluthafar hafa fengið sambærilegt ti og setti Daði það skilyrði fyrir kaupum að a hluthafar samþykktu sölu hlutabréfanna. Félagið framleiðir húsdýrafóður. Rekstur þess hefur stefnt en kaupan fyrirhugar töluverða uppb

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.