Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 22
*Járn og D-vítamín eru þau næringarefni sem helst þarfað huga að þegar ungbörnin fara að fá fasta fæðu. Móð-urmjólkin, sú fullkomna næring fyrir ungbarnið fyrstumánuðina, inniheldur ekki það mikið af þessum tveimurnæringarefnum að það dugi barninu eftir sex mánaðaaldur. Þess vegna er lögð áhersla á að barnið fái D-vítamíndropa frá tveggja vikna aldri og eins að það fái nægilega járnríka fæðu þegar það byrjar að fá viðbót við móðurmjólkina. Járn og D-vítamín fyrir ungbörn Mynd frá hefðbundnum tækjasal á líkamsræktarstöð. Rannsóknin var gerð í Portúgal en ekki á Íslandi en stöðvarnar þar eru svipað uppbyggðar og hérlendis. Morgunblaðið/Styrmir Kári Þ egar fer að kólna í veðri og dimma úti fara fleiri inn í líkamsræktar- stöðvarnar til að hreyfa sig og hlaupa á hlaupabrettum frekar en á gangstígum. Fyrir kuldaskræfur er það auðvitað miklu betra en að hætta sprikl- inu alveg. Ný rannsókn á loftinu á lík- amsræktarstöðvum leiðir hinsvegar í ljós að loftgæðin inni á hefðbundinni stöð eru ekki alveg eins mikil og þau gætu verið, segir í grein á vef New York Times. Niðurstöður rannsóknarinnar verða birt- ar í næsta mánuði í ritinu Building and Environment en rannsóknina gerðu vís- indamenn við Háskólann í Lissabon í Portúgal og Tækniháskólann í Delft í Hol- landi. Þeir fylgdust með loftgæðum á lík- amsræktarstöðvum á nokkrum stöðum í Lissabon. Þar eru flestar stöðvarnar þannig upp byggðar að það er einn tækja- og lyft- ingasalur og svo til hliðar margir minni salir sem eru fyrir ýmsa leikfimitíma og jóga. Þetta er einmitt algengasta upp- bygging stöðva hérlendis. Loftið á ellefu líkamsræktarstöðvum var skoðað Carla Ramos, nemi í framhaldsnámi við Háskólann í Lissabon, fékk leyfi til að setja loftgæðamæla í lyftingasali og nokkra minni sali á ellefu líkamsræktar- stöðvum. Mælingarnar fóru fram síðdegis og fram á kvöld þegar stöðvarnar voru hvað best sóttar. Mælt var í um tvær klukkustundir á hverjum stað og var verið að mæla al- genga innimengun en kolsýringur, koltví- sýringur, óson, ryk og ýmis efnasambönd sem teppi, hreinsivörur, húsgögn eða málning getur gefið frá sér, þar með talið formaldehýð, var á meðal þess sem mælt var. Ennfremur var fleiri mælum komið fyrir í þremur af stöðvunum sem mældu loft- gæðin yfir allan daginn og á fleiri stöðum. Niðurstöðurnar eru ekki uppörvandi. Í heildina þá var mikið af ryki, formalde- hýði og koltvísýringi í loftinu. Magnið fór oftast yfir staðla sem eiga við loft innan- dyra. Rykagnirnar og efnasambönd á borð við formaldehýð eru mesti mögulegi ógnvald- urinn, segir Ramos. Þegar mikið er af þessum efnum getur það ýtt undir astma og önnur öndunarfæravandamál. Koltvísýringur, þó hann sé ekki eitr- aður, getur einnig valdið áhyggjum. Í miklu magni getur hann valdið líkamlegri þreytu og heilaþoku, sem er hvorugt æskilegt í líkamsræktartíma þar sem fólk er að taka vel á því. Við æfingu fer loftið dýpra í lung- un en í hvíld Mikið magn koltvísýrings gefur líka til kynna að loftræstingu sé ábótavant, sér- staklega þegar gildin eru há yfir lengri tíma, eins og gerðist í rannsókninni. „Rannsóknin leiðir í ljós að það er slæmt loft inni á líkamsræktarstöðvum,“ segir Ramos. Ástæðan fyrir því að það er vont að það sé slæmt loft þar inni er að fólk er þar oftast að anda mjög djúpt og mik- ið. „Þegar við æfum öndum við meira magni í hverjum andardrætti og mest af loftinu fer í gegnum munninn og því ekki í gegnum náttúrulegu loftsíuna í nösunum. Mengunarvaldarnir fara því dýpra inni í lungun en þegar hvílt er,“ segir Ramos. Hún segir þó að niðurstöðurnar ættu ekki að letja neinn í að heimsækja lík- amsræktarstöð. Engin stöðvanna í rann- sókninni var með mælanleg gildi kolsýr- ings sem er eitt hættulegasta efnið. Niðurstöðurnar ættu samt að hvetja meðvitaða iðkendur til að nota nefið. Ef loftið á líkamsræktarstöðinni þinni lyktar af efnum og er staðið, hugleiddu að ræða við framkvæmdastjórann, segir Ramos. Spyrðu um loftræstinguna og hvort búið sé að mæla loftgæðin á stöðinni nýlega. Líka getur verið vert að spyrja hvernig hreinsiefni séu notuð á stöðinni og hvort gólfin séu sópuð eða moppuð, en hið síð- arnefnda minnkar meira ryk í loftinu, seg- ir hún. Sjálf mældi hún loftið á stöðinni sem hún sækir, þó ótengt rannsókninni, og bauð framkvæmdastjóranum nokkur góð ráð til þess að minnka mengunarefnin sem mældust. „Ég kýs að hreyfa mig inn- andyra,“ segir hún og þá er eins gott að loftið sé jafn heilnæmt og hreyfingin sjálf. Á INNIÆFINGU LOSNAR FÓLK VIÐ KULDANN EN FÆR ÓVÆNTA GESTI Í STAÐINN Slæmt loft á líkamsræktarstöðvum PORTÚGÖLSK RANNSÓKN LEIÐIR Í LJÓS AÐ LOFTGÆÐUM ER OFTAR EN EKKI ÁBÓTAVANT Á HEFÐBUNDNUM LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVUM. FÓLK ÞARF AÐ VERA VAKANDI FYRIR ÞESSU VANDAMÁLI, SEM ER ÞÓ EKKI NÓGU MIKIÐ TIL AÐ FÓLK EIGI AÐ HÆTTA INNIÆFINGUM. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Þegar fólk er að æfa andar það yfirleitt djúpt niður í lungun í gegnum munninn en ekki nefið og því fer loftið ekki í gegnum náttúrulegu síuna í nösunum. Morgunblaðið/Kristinn Margir lyfta lóðum inni. * Niðurstöðurnar ættusamt að hvetja með-vitaða iðkendur til að nota nefið. Ef loftið á lík- amsræktarstöðinni þinni lyktar af efnum og er staðið, hugleiddu að ræða við framkvæmdastjórann. Heilsa og hreyfing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.