Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 59
Glæpasagnahátíðin Iceland Noir hefst
í næstu viku, byrjar fimmtudaginn 20.
nóvember og stendur til sunnudagsins
23. nóvember. Breska blaðið Guardi-
an segir þessa hátíð vera með bestu
glæpasagnahátíðum í heimi. Margir er-
lendir glæpasagnahöfundar mæta á há-
tíðina og þar á meðal eru breski met-
söluhöfundurinn Peter James, landi
hans David Hewson og norrænir höf-
undar sem íslenskir lesendur þekkja að
góðu einu, en bækur þeirra hafa verið
þýddar á íslensku; Johan Theorin frá
Svíþjóð, Vidar Sundstol frá Noregi og
hinn finnski Antti Tuomainen. Pall-
borðsumræður verða á föstudag og
laugardag í Norræna húsinu og þar
ræðast við íslenskir og erlendir glæpa-
sagnahöfundar og fræðimenn á sviði
glæpasagna. Hátíðin í fyrra var afar vel
sótt og þannig verður örugglega einnig
þetta árið.
Hinn breski Peter James mætir á Ice-
land Noir, en glæpasögur hans njóta
gríðarlegra vinsælda.
GLÆPASAGNAHÁTÍÐ Í NÆSTU VIKU
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Drón er ný skáldsaga eftir Hall-
dór Armand, en hann hefur áð-
ur sent frá sér bókina Vince
Vaughn í skýjunum, sem fékk
góða dóma.
Líkami Heiðrúnar Sólnes,
efnilegustu knattspyrnukonu
landsins, virðist geta sagt fyrir
um árásir dróna víða um heim.
Síðan verður Ísland fyrir árás.
Önnur vandamál steðja einnig
að þessari ungu knattspyrnu-
konu því faðir hennar óttast
Kötlugos og að það leggi sam-
félagið á hliðina og við það
bætist að neyðarlegt mynd-
band á netinu gæti eyðilagt
framtíð Heiðrúnar sem er
skotin í manni sem reykir
mentólsígarettur og elskar
verslunarmiðstöðvar.
Vandamál og
árás dróna
Það telst ætíð til tíðinda þegar
ný skáldsaga kemur frá Guð-
bergi Bergssyni. Þrír sneru aft-
ur nefnist ný skáldsaga hans og
söguþráðurinn hljómar ansi
spennandi og býður upp á til-
þrif. Á einangraðan stað suður
með sjó, þar sem aldrei gerist
neitt, berast fregnir af átökum
heimsstyrjaldarinnar. Fyrr en
varir hefur atburðarásin teygt
anga sína þangað og nútíminn
heldur innreið sína með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum.
Ný skáldsaga
frá Guðbergi
Bergssyni
Guðbergur og
fleira forvitni-
legt
NÝJAR BÆKUR
NÝ SKÁLDSAGA EFTIR GUÐBERG BERGSSON VEK-
UR FORVITNI. ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON
FJALLAR UM FJÖGUR ÁSTSÆL SKÁLD. SPENNA
EINKENNIR BÓK UM RÖKKURHÆÐIR OG ÞAÐ
SAMA MÁ SEGJA UM NÝJA BÓK SEM SEGIR FRÁ
ÆVINTÝRUM FREYJU. UNGUR HÖFUNDUR SEND-
IR FRÁ SÉR SKÁLDSÖGU.
Þorsteinn Þorsteinsson er höf-
undur bókarinnar Fjögur skáld -
Upphaf nútímaljóðlistar á íslensku.
Skáldin sem hann fjallar um eru
þjóðþekkt: Jóhann Sigurjónsson,
Jóhann Jónsson, Halldór Kiljan
Laxness og Steinn Steinarr. Nið-
urstöður Þorsteins eru um margt
frábrugðnar fyrri skýringum á ís-
lenskri ljóðlistarsögu á fyrri hluta
síðustu aldar.
Ný sýn á fjögur
skáld
Brynja Þorgeirsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason
eru höfundar bókarinnar Orðbragð, en þau eru
umsjónarmenn samnefnds sjónvarpsþáttar sem
hefur hlotið mikið lof og vinsældir. Orðbragðs-
bókin er fróðleiks- og skemmtirit með alls kyns
uppljóstrunum og staðreyndum sem varða ís-
lenskt mál. Bókin er sérlega skemmtilega upp sett,
með fjölda mynda. Afar áhugaverð bók.
Skemmtileg
Orðbragðsbók
* Lífið er fallegt og við fögnum því aldrei nógsamlega. Milan Kundera BÓKSALA 5.-11. NÓV
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 TreflaprjónGuðrún S.Magnúsdóttir
3 Ekki á vísan að róaEgill Eðvarðsson
4 OrðbragðBrynja Þorgeirsdóttir/
Bragi Valdimar Skúlason
5 HjálpÞorgrímur Þráinsson
6 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
7 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson
8 Hugrækt og hamingjaAnnaValdimarsdóttir
9 NáðarstundHannah Kent
10 Yahya Hassan ljóðYahya Hassan
Innbundin skáldverk &
hljóðbækur
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 NáðarstundHannah Kent
3 TáningabókSigurður Pálsson
4 GæðakonurSteinunn Sigurðardóttir
5 KoparakurGyrðir Elíasson
6 Hálfsnert stúlkaBjarni Bjarnason
7 VonarlandiðKristín Steinsdóttir
8 KataSteinar Bragi
9 Illur fengurFinnbogi Hermannsson
10 EnglarykGuðrún Eva Mínervudóttir
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Batnandi manni er best að lifa.
Rökkurhæðir - Vökumaðurinn er ný bók í vinsælum
bókaflokki þeirra Mörtu Hlínar Magnadóttur og
Birgittu Elínar Hassell. Pétur Kristinn er nýfluttur í
gamalt hús við Kirkjulund en nokkrum vikum fyrr
áttu sér þar stað hræðilegir atburðir. Hann er þó
sannfærður um að ekkert illt sé á sveimi en svo rek-
ur hann augun í dularfullar verur sem eru að baksa í
garðinum hans. Krakkarnir í Rökkurhæðum snúa
bökum saman og hjálp berst út óvæntri átt.
Dularfullar verur
Freyju saga - Djásn er framtíðartryllir eftir
Sif Sigmarsdóttur, framhald bókarinnar
Freyju saga - Múrinn og hér er sagan leidd
til lykta. Freyja er komin til Vanheima þar
sem íbúarnir lifa við allsnægtir en þar eru
hlutirnir ekki eins sléttir og felldir og virðist
á yfirborðinu. Fyrri bókin var tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
Lok Freyju sögu