Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 49
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
lega í fremstu víglínu í þessu stríði
í öll þessi 40 ár, nánast á hverjum
einasta degi.
Þetta er kjarni málsins og að-
gerðirnar sem ég lýsi í þessari bók
voru partur af þessu stríði. Ég tel
að þær hafi verið fullkomlega rétt-
lætanlegar út frá hvaða sjónarmiði
sem litið er á málið, vegna þess að
það skipti höfuðmáli að lýðræðis-
ríkin á Vesturlöndum ynnu þetta
stríð, en ekki einræðisríkin sem
ráku kúgunarsamfélag í Austur-
Evrópu og Sovétríkjunum.“
Tvær fylkingar
- Mörg undanfarin ár hefur þú ver-
ið einn helsti talsmaður opinnar
umræðu og opins samfélags þar
sem allt er uppi á borðum. Áttu
ekki von á því, eftir að bók þín
kemur út og þú upplýsir allt þetta
laumuspil, þar sem þú og Morg-
unblaðið voruð í svo stóru hlut-
verki svona lengi, að bókin kalli
fram hörð viðbrögð og gagnrýni?
„Það getur vel verið að ég verði
gagnrýndur og ég geri engar at-
hugasemdir við það. Ég sé ekkert
athugavert við það að menn gagn-
rýni mig fyrir það sem ég geri,
segi eða skrifa. Það sem mér finnst
skipta máli, hvað þetta varðar, af
því að þú vísar til þeirra skoðana
minna á seinni árum að við eigum
að reka hér opið samfélag, er að ég
er auðvitað með þessari bók að
stuðla að því að þetta verði opið
samfélag. Ég er að segja frá hlut-
um sem gerðust hér fyrir hálfri öld
í þessu litla þjóðfélagi okkar, sem
sumir vinir mínir telja að ég eigi
alls ekki að segja frá og hafi alls
ekkert leyfi til þess að segja frá.
En ég er segja frá þessu vegna
þess að mér finnst það vera partur
af því að skapa hér opið samfélag,
að við gerum upp mál eins og
kalda stríðið. Kalda stríðið hefur
aldrei verið gert upp á Íslandi.
Kalda stríðið skipti þessari þjóð
upp í tvær gersamlega andstæðar
fylkingar; það litaði allt samfélagið;
það hafði áhrif á allt andrúmsloft í
samfélaginu; það var ekkert skáld,
enginn rithöfundur, enginn listmál-
ari sem ekki var dæmdur frá sjón-
arhorni kalda stríðsins, áratugum
saman. Ég segi m.a. í þessari bók
að ég telji að það geti vel komið til
greina að það þurfi að endurskrifa
bókmenntasögu okkar tíma vegna
þess að skáld og rithöfundar sér-
staklega fengu ekki að njóta sann-
mælis vegna skoðana sinna, og það
á við á báða bóga. Ég lít svo á að
með þessari bók sé ég að leggja
mitt af mörkum til þess að græða
þau sár sem enn eru ógróin eftir
þessi miklu átök.“
Morgunblaðið hafði á
réttu að standa
„Ég er að leggja spilin á borðið að
svo miklu leyti sem ég þekki til
mála, sem var auðvitað bara tak-
markaður þáttur þessara átaka hér
á Íslandi. Ég vona að það komi
sambærilegt framlag hinum megin
frá. Vegna þess að þó að það sé
búið að sanna það að Morgunblaðið
hafði rétt fyrir sér á þeim tíma um
tengsl Sósíalistaflokksins við Sov-
étríkin og Austur-Þýskaland, þá er
ekki búið að segja frá því sem
raunverulega gerðist. Það er mikil
ósögð saga. Það er hins vegar
spurning hvort þeir sem enn lifa úr
þessum hópum sósíalista og komm-
únista hafi nægilega þekkingu til
þess að upplýsa það sem raunveru-
lega gerðist.“
Styrmir vísar til þess í bók sinni
að svona uppgjör hafi að hluta til
farið fram í löndum eins og Noregi
og Danmörku án þess að hafa vald-
ið nokkru uppnámi. Í Noregi hafi
þingkjörin nefnd verið skipuð til
þess að fara yfir það sem gerðist
þar í landi í kalda stríðinu. „M.a. af
því tagi sem þú kallar laumuspil,
sem ég tel nú ekki að sé það orð
sem á að nota um þá starfsemi
sem ég er að lýsa í þessari bók.
Í danska þinginu var ákveðið að
setja upp ákveðið rannsóknasetur
um kalda stríðið í Danmörku. Í
bók sem kom út á þessu ári og er
afrakstur starfsemi þessa rann-
sóknaseturs kemur fram að mjög
sambærileg starfsemi fór fram í
Danmörku í kalda stríðinu og ég er
að lýsa í bók minni. Andófshópar
sem starfað höfðu í Danmörku í
heimsstyrjöldinni síðari komu til
sögunnar í kalda stríðinu og fóru
að fylgjast með starfsemi komm-
únista í Danmörku. Þar var áber-
andi hversu mikið ritstjórar
danskra blaða komu við sögu hvað
þetta „laumuspil“ varðar, eins og
þú kýst að orða það.“
Morgunblaðið/Kristinn
* Við erum orðnir svo gamlir og þrosk-aðir, að þótt það séu einhverjir vinaminna þeirrar skoðunar að ég eigi ekki að
gefa þessa bók út og ég eigi ekki að segja
frá þessu máli, þá hefur það engin áhrif á
vináttu sem staðið hefur nánast alla ævi.
Styrmir Gunnarsson, fyrr-
verandi ritstjóri Morgun-
blaðsins, er höfundur nýrrar
bókar, Í köldu stríði.
Eykon átti upptökin
Það var Eyjólfur Konráð Jónsson,
þá ritstjóri Morgunblaðsins, sem
fékk Styrmi Gunnarsson, 23ja ára
laganema, til þess að vera tengilið-
ur við uppljóstrara sem var innan-
búðar maður hjá Sósíalistafélagi
Reykjavíkur og Æskulýðsfylking-
unni, haustið 1961. Styrmir skrifaði
leyniskýrslur um átökin hjá sósíal-
ístum og kommúnistum í sjö ár, frá
1961 til 1968. Fjórum árum eftir að
hann hóf að hitta uppljóstrarann
reglulega var Styrmir ráðinn blaða-
maður á Morgunblaðinu. Hér
skrafa þeir Styrmir og Eykon saman
í prentsmiðju Morgunblaðsins,
Styrmir löngu orðinn ritstjóri og
Eykon löngu hættur sem slíkur.