Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 13
Unnið að uppsetningu smáhýsa í jólaþorpinu í miðbænum á Selfossi.
Ljósmynd/Bragi Bjarnason
Fjölbreytt dagskrá verður á næst-
unni fyrir austan fjall undir merk-
inu Jól í Árborg 2014. Gefið hefur
verið út sérstakt viðburðadagatal
sem dreift verður í hús á Árborg-
arsvæðinu og er þar að finna upp-
lýsingar um þá fjölmörgu viðburði
sem í boði verða næstu vikur. Tónn-
inn var sleginn á fimmtudag þegar
kveikt var á jólaljósunum við bók-
safnið í hjarta Selfossbæjar. Jóla-
torgið í Sigtúnsgarðinum á móts við
Ölfusárbrú verður opnað í dag,
laugardag, og þar er útimarkaður
og fleira skemmtilegt. Jólasveinar
Selfossbæjar koma til byggða 13.
desember, en þá verður fyrir
nokkru hafið verkefnið Jólaglugg-
arnir; sem er stafratleikur fyrir
krakka.
„Jólaglugginn er verkefni sem
hefur tekist afar vel og mér finnst
ánægjulegt hvað forsvarsmenn fyr-
irtækja og stofnana hér í bænum
hafa verið opnir
fyrir þátttöku. Í
raun má segja að
þetta styrki börnin
í samfélaginu,
krakkarnir koma
eftir vísbendingar í
gegnum stafleikinn
í heimsóknir á
ýmsa staði, sem
aftur kynnir þeim margt áhuga-
vert,“ segir Bragi Bjarnason, menn-
ingar- og frístundafulltrúi í Árborg.
Hann bætir við að jóladagskráin í
bænum byggist á ákveðnum póstum
sem fest hafi í sessi yfir langan
tíma. Hins vegar hafi ýmsar nýjar
breytur komið inn á síðustu árum.
Þegar byggingar í miðbænum voru
rifnar hafi Sigtúnsgarðurinn orðið
til. Hann sé nú orðinn vettvangur
ýmissa skemmtilegra viðburða í
bænum, sem haldnir eru jafnt sum-
ar, vetur, vor og haust. sbs@mbl.is
ÁRBORG
Markaður í Sigtúnsgarði
Bragi
Bjarnason
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Á dögunum afhenti Haraldur Stur-
laugsson Ljósmyndasafni Akraness
veglegt safn ljósmynda, sögusýninga
og myndskeiða. Safnið er að stærst-
um hluta á vefsíðu sem Haraldur hef-
ur haldið úti í nokkur ár og er á vef-
slóðinni www.haraldarhus.is. Það var
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
sem tók á móti safninu fyrir hönd
Akraneskaupstaðar, að því er fram
kemur á vef sveitarfélagsins.
Haraldur hefur unnið markvisst að
því að veita aðgang að ljósmyndum
sem tengjast sögu atvinnurekstrar á
Akranesi og þá sérstaklega sögu
Haraldar Böðvarssonar frá árinu
1906. Einnig hefur Haraldur haldið til
haga myndum af byggingum, íþrótta-
viðburðum, fólki og viðburðum.
Hvað varðar atvinnulífið á Akra-
nesi sem svo margar myndir eru af þá
sagði Haraldur Sturlaugsson í viðtali
við Morgunblaðið fyrir um tveimur
árum að framfarir á Akranesi hefðu
stundum komið í stökkum. Minnti
þar á að miklu hefði munað þegar Ak-
urnesingaslóð fannst á þriðja áratug
síðustu aldar úti á Faxaflóa. Það voru
gjöful fiskimið. Með þeim fluttist út-
gerð Skagamanna af Suðurnesjum á
Akraness og úr varð myndræn upp-
bygging. sbs@mbl.is
AKRANES
Haraldur Sturlaugsson við heimili sitt, Haraldarhús við Vesturgötu á Skaganum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Myndir frá Haraldi
Svona bækur skrifa menn tæp-lega nema þeir hafi ofurlítinnhúmor fyrir sjálfum sér og
skynji líka sögurnar í umhverfi
sínu,“ segir Jóhannes Sigmundsson,
bóndi og fyrrverandi kennari í
Syðra-Langholti í Hrunamanna-
hreppi. Á dögunum kom út hjá for-
laginu Sæmundi á Selfossi bókin
Gamansögur úr Árnesþingi. Titill-
inn skýrir efnið að nokkru leyti, það
er skemmtilegar sögur af fólki á
Suðurlandi. Taktar, tilsvör og
óheppni í dagsins brasi geta alltaf
leitt af sér sögur og þær hefur Jó-
hannes skráð.
„Þetta er nokkuð sem hefur safn-
ast upp á löngum tíma. Ég hef
punktað þetta niður á laus blöð og
átt í handraðanum. Fyrir þremur til
fjórum árum byrjaði ég að slá þetta
inn á tölvu og sá þá að þetta væri
efniviður í bók sem Bjarni Harð-
arson á Selfossi var fús til að gefa
út. Áður en ég skilaði honum hand-
ritinu var ég þó búinn að liggja
mikið yfir þessu, lagfæra og fín-
pússa. Ég vona að útkoman sé
góð,“ segir Jóhannes.
Þótt Árnesþing allt sé undir í titli
bókarinnar segir Jóhannes sög-
urnar einkum og helst úr upp-
sveitum Árnessýslu, svo sem
Hrunamannahreppi, Biskups-
tungum og Laugardalnum. „Ég var
sex vetur í skóla að Laugarvatni og
kynntist þar skemmtilegu fólki,
samnemendum og kennurum. Þarna
segir til dæmis frá skólamönnunum
Þórði Kristleifssyni, Guðmundi
Ólafssyni og Ólafi Briem. Og Ólafi
Ketilssyni, þeim eftirminnilega
rútubílstjóra,“ segir Jóhannes sem í
bók sinni segir af því þegar Ólafur
var á leiðinni frá Laugarvatni til
Reykjavíkur og tók ungt par upp í
rútu sína í Grímsnesinu og ók með
þau til Reykjavíkur. Á leiðinni
þangað undu þau sér vel í ástarleik
í öfustu sætaröð – og þegar í borg-
ina kom sagði bílstjórinn að ekkert
væri fargjaldið, enda hefði þau
skötuhjúin komið ríðandi í bæinn.
Ráðherra sprautaði bónda
Þá segir af einum ráðherra ríkis-
stjórnarinnar, Sigurði Ingi Jóhanns-
syni, ráðherra og dýralækni sem
býr í Syðra-Langholti og er þar
næsti nágranni Jóhannesar. Af Sig-
urði Inga er til sú saga að hann
heimsótti bónda í Hrunamanna-
hreppi og fór með honum í fjárhús
að sprauta lömb við garnaveiki.
Læknisverkin gengu svona og
svona, að minnsta kosti lenti
sprautunálin ekki í kind, heldur í
bóndanum. Og af því spratt vísa –
og hér eru birtar upphafslínur
hennar: „Við garnaveiki í sauðfé
menn gjarnan sprauta lömb / og
gefa skammt í læri en alls ekki í
vömb.“
HRUNAMANNAHREPPUR
Sögur í umhverfinu
JÓHANNES SIGMUNDSSON
MEÐ SÖGUR ÚR ÁRNES-
ÞINGI. HÚMOR Í HREPP-
UNUM OG LAUGVETN-
INGAR KOMA VIÐ SÖGU
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Jóhannes Sigmundsson með bókina, efni sem hefur lagst til á löngum tíma.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Á næstu dögum kemur út 7. bindi Byggðasögu
Skagafjarðar. Fjallar bókin, sem Hjalti Pálsson rit-
stýrir, um Hofshrepp hinn gamla, Höfðaströnd,
Unadal, Deildardal og Óslandshlíð og er 480 bls.
Byggðasaga Skagafjarðar
Í tilefni af bókahátíðinni Bókavík, sem verður á Hólmavík í
Strandabyggð 17. til 23. nóvember, er efnt til smásagna-
og ljóðakeppni í þremur aldursflokkum. Efni skal skila til
tómstundafulltrúa sveitarfélagsins fyrir 19. nóvember.
Bókavík á Hólmavík
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Gaurarnir sem sjá til fless a›
ekki sjó›i upp úr pottunum
2 í pakka, hvítur og rauður aðeins kr. 1.790,-
LID SID
Bjargvættirnir á brúninni