Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 25
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Minna unnar olíur eru yfirleitt dekkri á litinn og bragðmeiri en meira unnar olíur. Dökku olíurnar innihalda oftast meira af hollum efnum en þær sem eru meira unnar. Þær dökku njóta sín best út á salat eða annan mat en ljósu olíurnar henta betur til steikingar. Dökkar olíur hollari* Það þarf góða heilsu og lé-legt vit til að lifa heilsu-spillandi lífi. Guðbergur Bergsson – Missir Þó að heilsuveitingastaðir virðist njóta sívaxandi vinsælda gera aðrir staðir út á óhollustuna. Stundum virðist útgangspunkturinn vera að hneyksla sem mest. Eins og hjá Hungry Horse í Bretlandi sem býð- ur upp á tvöfaldan kleinuhringja- borgara en á borgurunum eru enn- fremur grillsósa, beikon og ostur. Kaloríurnar eru tæplega tvö þús- und, sem slagar upp í dagsþörfina hjá meðalmanneskju. Söluslagorð borgarans er: „Svo rangt að það verður rétt“ og hefur breskur næringarfræðingur gagn- rýnt þetta. „Þetta er ótrúlegt og óá- byrgt. Ég vil ekki spilla gamninu en af hverju er svona í boði? Þessi borgari er hjartaáfall á diski,“ sagði Mel Wa- keman hjá Háskólanum í Birm- ingham. Það eru 125 g af fitu í borgaranum og þar af eru 53 g mettuð fita sem er 267% af ráðlögðum dagskammti í Bretlandi. Ennfremur eru í honum 8,2 g af salti og 53 g af sykri. „Allar næringarupplýsingar fyrir matseðilinn okkar eru á vefsíðunni og á veitingastöðunum svo við- skiptavinir okkar geta tekið upplýsta ákvörðum um hvað þeir láti ofan í sig,“ sagði Steve Jebson, talsmaður Hungry Horse, í viðtali við Mas- hable. Fólk ætti að hugsa málið vel áður en það pantar þennan. Tvöfaldur kleinuhringja- borgari með beikoni Nýi borgarinn, hjartaáfall á diski? Drykkir sem markaðssettir eru fyrir börn innihalda oft meiri sykur en Coca Cola. Action on Sugar gerði könn- un á 203 ávaxtadrykkjum í breskum matvörubúðum og komst að því að 25% þeirra innihéldu meiri sykur en Coca Cola, sem er með fimm teskeiðar af sykri í 200 ml glasi. Sérfræðingar mæla með því að börnum sé gefið vatn að drekka og þau fái heldur heila ávexti en safa. Vatnið er betra en safinn. Sykraðir drykkir Gróft korn og græn- meti er holl fæða. LJósmyndir/Gunnar Sverrisson Sérmatur fyrir börn ýtir undir matvendni og einhæft mataræði, þar sem þau fá ekki að kynnast nýjum fæðutegundum og bragðeiginleikum, áferð og útliti ólíkra rétta við skemmtilegar aðstæður. Laufey segir Sykur „Agavesíróp er bæði bragðgott og heldur sætara en venjulegur sykur. Best er því að nota það á þeim for- sendum frekar en sem hollustuvöru. Hollustan er best tryggð með því að stilla sætindum í hóf en ekki með því að velja eina sykurtegund fram yfir aðra. Því miður verður súkkulaðikakan ekki hollari þótt við setjum í hana hrásykur í stað hvíta sykursins. Notum því hrá- sykur eða agavesíróp af því að okkur finnst það bragð- betra en ekki af hollustuástæðum.“ Grænmeti „Rófur, hvítkál, grænkál og tómatar eru t.d. afburða- hollar grænmetistegundir sem oft má fá á tiltölulega hagstæðu verði. Það skiptir máli að velja grænmeti eftir árstíð frekar en festast í sömu tegundunum allt árið um kring og eins velja grænmeti úr nærumhverfinu frekar en það sem hefur flogið til okkar yfir hálfan hnöttinn.“ Lágkolvetnamataræði „Kolvetnasnautt fæði getur vissulega verið ein leið til megrunar, sérstaklega fyrir fólk sem er mjög feitt eða á sér fáar aðrar lausnir við alvarlegum vanda. Hins vegar telst það síður en svo heilsufæði, síst af öllu fyrir börn. Heilsusamlega leiðin til að minnka kolvetni og fækka hitaeiningum er að borða sem allra minnst af sætind- um, kökum, hvítu hveiti, kexi og sætum drykkjum.“ Drykkir og búst „Þótt bústið sé uppfullt af hollustu er ef til vill meira um vert að kenna börnunum okkar að borða og þekkja grænmeti og ávexti, alls kyns mat sem þarf að tyggja, skera, bíta í og bragða, frekar en að koma sem flestum grænmetistegundum ofan í þau dulbúnum sem drykk.“ Barnamatseðlar „Börnin þurfa fyrst og fremst minni skammta og aðeins minna kryddaðan mat en fullorðnir. Að öðru leyti ættu þau svo sannarlega að geta fengið fína matinn þegar þau fara á veitingahús, rétt eins og aðrir. Sérmatur fyrir börn ýtir undir matvendni og einhæft mataræði, þar sem þau fá ekki að kynnast nýjum fæðutegundum og bragðeiginleikum, áferð og útliti ólíkra rétta við skemmtilegar aðstæður, eins og til dæmis á veitinga- húsi.“ 100% hreinar Eggjahvítur Þú þekkir okkur á hananum Án allra aukaefna! Gerilsneyddu eggjahvíturnar frá Nesbú eru frábær valkostur í jólabaksturinn. Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbú. Ís le ns k framleiðsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.