Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 33
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Gestir frá vinstri: Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Her-
borg Eðvaldsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, María
Valsdóttir, Edda Skúladóttir og Hanna Hlíf
Bjarnadóttir fyrir endann.
Bollakökur með
límónu og bláberjum
6 egg
2 límónur
100 g 70% súkkulaði
100 g heslihnetuflögur
2,5 dl rjómi
1 tsk. kókóspálmasykur
1 tsk. sykur
1 msk. spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
1 bolli bláber, ný eða frosin
Aðskiljið rauður og eggjahvítur, raspið börkinn
af límónunum og kreistið safann úr þeim. Geymið
1 msk. af berkinum til skreytingar.
Skerið súkkulaðið smátt.
Þeytið rjómann í sér skál og stífþeytið svo eggja-
hvíturnar í annarri skál. Blandið kókospálmasykr-
inum saman við eggjahvítuþeytinginn í lokin.
Í eggjahvítuþeytinginn setjið þið súkkulaði, 75 g
heslihnetuflögur, msk. af spelti og bætið lyftidufti
saman við og setjið í bollakökuform. Bakið í ofni í
60 mínútur við 200°C. Látið kökurnar kólna í ofn-
inum.
Hitið þá eggjarauður, límónusafa, raspaðan lím-
ónubörkinn og sykur í potti þar til kremið þykkn-
ar. Hrærið stöðugt í á meðan og kælið svo krem-
ið.
Setjið að lokum ofan á kökurnar í þessari röð;
þeyttan rjóma, límónukremið, bláber, 1 msk.
heslihnetukurl og afganginn af límónuberkinum.
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna
hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi
að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma.
Þær hafa verið handsmíðaðar í tæp 70 ár og hvert
einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það
hlýtur að vera öfundsvert starf að sjá um gæða-
eftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Brauðristar-
gæðaeftirlit
KJÖTBOLLUR
1 bakki nautahakk
½ krukka fetaostur
1 lúka basilíka, fersk
1-2 egg
salt og pipar eftir smekk, meira þó en minna
¼-½ chilipipar, fræhreinsaður, má sleppa
1 lúka hnetur eða salthnetur
parmesanostur eftir smekk
Blandið öllu nemi kjöti og parmesanosti saman í mat-
vinnsluvél. Setjið kjötið síðast saman við. Ef bollurnar eru
of þurrar, bætið þá við einu eggi, ef þær eru of klístraðar,
bætið ristuðu brauði saman við. Mótið litlar bollur með
skeið og steikið á pönnu. Setjið bollurnar í eldfast móti, ríf-
ið parmesanostinn yfir og hitið í ofni í 175° í 10 mínútur.
GRÆNMETISBOLLUR
1 ½ bolli soðin grjón, má nota kúskús
3 gulrætur
½ lítill haus hnúðkál
1-2 egg
1 bolli rósakál, má nota frosið
½ krukka fetaostur
1 lúka basilíka, fersk
¼-½ chilipipar, má sleppa
1 lúka hnetur eða salthnetur
kókosolía til steikingar
Skerið grænmetið niður og steikið á pönnu. Blandið saman
hnetum, eggjum, chilipipar, basilíku og fetaosti í mat-
vinnsluvél. Bætið soðnu grjónunum og grænmetinu saman
við. Ef blandan er of klístruð, bætið ristuðu brauði saman
við eða eggi ef hún er of þurr. Mótið litlar bollur með skeið
og setjið á plötu með bökunarpappír. Bakið við 180°C í 20
mín. Setjið bollurnar þá á pönnu og steikið við vægan hita
upp úr kókosolíu.
Berið fram með gráðostsósu sem er útbúin úr 1 dós af
sýrðum rjóma með graslauk, 1 lítilli dós af majónesi, gráð-
osti eftir smekk og salti og pipar eftir smekk.
Tvær gerðir af bollum
Morgunblaðið/Þórður