Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 39
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Raunverulega vandamálið er ekki hvort vélargeta hugsað heldur hvort menn geta það.
B.F. Skinner
„Hún hefur knúið hjól atvinnulífsins …
ímyndaðu þér hvað hún getur gert fyrir þig!“
Tímarnir eru breyttir og ólíklegt er að HP
Vectra-borðtölvan gæti uppfyllt drauma les-
enda Morgunblaðsins í dag, hvað þá knúið
hjól atvinnulífsins. Árið 1997 hóf Hewlett-
Packard stórsókn inn á íslenska borðtölvu-
markaðinn þegar HP Vectra var kynnt til sög-
unnar. Í auglýsingu fyrir tölvuna sagði að há-
tækni sú sem fælist í hönnun og smíði
hennar hefði fært HP „ótvírætt forystu-
hlutverk“ á einhverju sem kallað var „stórtöl-
vusviðið“. Þá var staðhæft að stutt kynni við
HP gerðu að verkum að allt annað virtist
sem afturför.
GAMLA GRÆJAN
Nýr risi á
„stórtölvu-
sviðinu“
Google Glass-gleraugun eru nú notuð til
þess að þjálfa læknanema í að framkvæma
flóknar skurðaðgerðir. Starfsemin er hluti
af verkefni sem Google hleypti af stokk-
unum í fyrra og nefnist Glass í vinnunni (e.
Glass at Work) þar sem netrisinn tekur
þátt í samstarfi með fyrirtækjum sem vilja
nota Glass til þess að auka hagræði og
skilvirkni. Tíu vinnustaðir taka nú þátt í
verkefninu. Tvö ár eru liðin frá því að gler-
augnatölvan Glass leit fyrst dagsins ljós en
varan er þó ennþá á þróunarstigi. Upp-
haflega var ætlunin að Glass yrði hefð-
bundin neytendavara en erfiðlega hefur
gengið að koma gleraugunum á almennan
markað í ljósi öryggis- og persónuvernd-
arsjónarmiða.
Slík tækni þykir hafa mikla möguleika
innan heilbrigðisgeirans þar sem starfs-
menn þurfa að dauðhreinsa hendur sínar.
Þá auðveldar hún einnig til muna faglega
ráðgjöf úr fjarlægð þegar sérfræðingur er
ekki til taks á staðnum, en getur fylgst
með því sem fram fer fyrir atbeina Glass.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Glass í heilbrigðisgeiranum
AFP
Erfiðlega hefur geng-
ið að koma Google
Glass-gleraugunum á
almennan markað.
Nýlega kynnti Amazon snjallhátalarann Echo til sögunnar og talið er að
með framleiðslu hans taki fyrirtækið stórt skref að því að snjallvæða
heimili fólks. Echo er nettengdur sívalningur sem bregst við raddskip-
unum. Að sögn Amazon mun þetta nýja tæki heita „Alexa“ og aðeins
leggja við hlustir sé nafn þess kallað. Kynningarmyndband á heimasíðu
Amazon kallar óneitanlega fram hugrenningatengsl við HAL9000-
tölvuna í 2001: A Space Odyssey.
Heyrir vel úr öllum áttum
Í nýju kynningarmyndbandi frá Amazon sést lífsglöð fjölskylda biðja
Alexu um hvers kyns upplýsingar og þá mun hún einnig geta spilað tón-
list, þulið upp yfirlit frétta, lagt á minnið og svo framvegis. Hugsunin er
án efa sú að þegar fram líða stundir verði hægt að biðja hátalarann um
að festa kaup á tiltekinni vöru og hann gangi skilmerkilega og sam-
viskusamlega frá viðskiptunum í gegnum heimasíðu Amazon. Hátalarinn
verður búinn sjö litlum hljóðnemum og mun geta heyrt raddir úr hvaða
átt sem er. Til að byrja með verður einungis hægt
að óska eftir að fá að kaupa þetta nýja tæki sem
mun kosta um 199 dollara, eða rúmlega 20 þúsund
krónur.
NÝJASTA NÝTT
Hátalarinn verður búinn
sjö hátölurum og mun
svara nafninu Alexa.
Snjallhátalari
frá Amazon
iPad Air 2
Verð frá89.990.-
Hæð: 24 cm | Breidd 16.95 cm
Þykkt: 6.1 mm | Þyngd frá: 437 g
Silfur - Gull - Dökkgrár