Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 44
Stjörnukortið
GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON
www.islenskstjornuspeki.is
Jarðbundinn og hógvær
Gylfi Þór er innhverfur og jarðbundinn í grunneðli sínu. Hann
er duglegur en jafnframt hógvær. Hógværðin er eitt af aðal-
einkennum hans. Að baki henni liggur að Gylfi er sjálfs-
gagnrýninn og með sterka fullkomnunarþörf. Hann leitar
veikleika sem hann getur lagað, í þeim tilgangi að verða
betri í sínu fagi. Þessi eiginleiki gerir það að verkum að hann ofmetnast
ekki.
Gylfi er eirðarlaus og iðjusamur. Íþróttir eiga því sérstaklega vel við hann,
augljóslega. Það sem stendur uppúr er hversu samkvæmur sjálfum sér hann
er. Einbeitingin er mikil. Það eru engin innri átök og engin spurning hvort
hann eigi að leika knattspyrnu eða fást við eitthvað annað. Lífsorkan og bar-
áttuorkan í persónuleika hans starfa í einingu, sól og Mars eru í sama merki,
hinni jarðbundnu Meyju.
Rýmisgreind
Gylfi Þór er varkár og yfirvegaður í hugsun og tali. Hann er
jarðbundinn og rökfastur en samt sem áður næmur. Hann
hefur sterkt ímyndunarafl og gott innsæi. Hann hefur ágæta
„rýmisgreind“, þ.e.a.s. getur starfað á leikvelli á miklum hraða
en séð um leið hreyfingar meðspilara sinna. Fyrir vikið leggur
hann upp mörg mörk. Segja má að þar birtist einnig hjálpsemi og þjónustulund
Meyjarmerkisins. Gylfi Þór er hæstánægður ef hann getur hjálpað öðrum að
blómstra. Hann er ósérhlífinn og laus við eigingirni.
Jákvæður og kurteis
Gylfi er jákvæður tilfinningalega og kurteis og málefnalegur í
samskiptum. Hann er í góðu jafnvægi hvað varðar tilfinn-
ingar. Þessi þáttur tilverunnar er ekkert að þvælast fyrir
honum. Fyrir vikið er hann vinsæll og vel liðinn hvar sem
hann kemur. Áðurnefnd hógværð vinnur síðan vel með
honum á samskiptasviðinu. Þó að hann sé vissulega stjarnan, til dæmis í ís-
lenska landsliðshópnum, þá hreykir hann sér ekki, né setur sjálfan sig á háan
hest. Hann lætur aðra um slíkt.
Ráðleggingar til Gylfa
Gylfi, þú ert stórstjarna í einni vinsælustu íþróttagrein heims.
Um leið ert þú hógvær og með fæturna pikkfasta á jörðinni.
Það er gott. En til að ná ennþá lengra, verða sífellt betri,
sem er markmið þitt, þá tel ég að þú megir íhuga tvennt.
1. Þú mátt láta vita meira af þér. Það tengist ekki monti, heldur því að
brjóta sjálfan þig aðeins út úr skelinni. Og í kjölfarið taka meira völd á
vellinum og í hópnum. Hógværð er kostur, en til dæmis hjá Tottenham,
þá varð hún þér að vissu leyti að falli, þ.e.a.s. menn sem eru slakari en
þú í fótbolta, en meira „hér er ég“, fengu að taka stöðu þína.
2. Fótbolti er íþrótt, en um leið hluti af „skemmtanabransanum“.
Áhorfendur hafa gaman af sjónarspili. Þar koma fríspörkin þín og
stórkostlegar sendingar sér vel. Þar blómstrar þú. En leikurinn sjálf-
ur er einnig sálfræðibarátta. Ég tel að þú megir setja kassann
aðeins meira út – inni á vellinum – þ.e.a.s. láta vita meira af
þér, tala meira inni á vellinum og segja hinum hvað þú sérð
og þar með hvað þurfi að gera. Vera meiri leiðtogi en þú
þegar ert. Það er ekki gott ef besti leikmaðurinn týnist
(stundum) í hita leiksins. Jafnvægis þarf að gæta á milli
þess að vera hógvær og hafa sjálfstraustið í botni.
Að baki þessu síðastnefnda liggur að Gylfi Þór er
haldinn ákveðinni fullkomnunaráráttu. Það getur
bitnað á sjálfstrausti hans og getur leitt til þess
að hann þegir ef hann telur sig ekki hafa neitt
pottþétt að segja. Fyrir vikið er til staðar sú
hætta að hann beiti sér ekki nægilega mikið á
vellinum, ekki í tali og í samskiptum við meðspil-
ara sína.
Meyjan 23. ágúst - 23. september
Árstími Meyjunnar er í lok sumars. Þá hefur gróðurinn náð blóma og ávextir jarðarinnar þroska.
Meyjan er því fædd á frjósömum uppskerutíma, tíma athafnasemi, vinnu og undirbúnings fyrir komandi
haust og vetur. Verkefni hennar er að koma uppskerunni í hús og búa í haginn fyrir komandi haust og
vetur. Hún þarf að vinna. Hún er þjónustu- og vinnumaur dýrahringsins.
r
Hógvær og með fæturna
pikkfasta á jörðinni
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON ER FÆDDUR 8. SEPTEMBER 1989. SÓLIN (GRUNNEÐLI OG
LÍFSORKA) OG MARS (BARÁTTUORKA) ERU Í HINU JARÐBUNDNA MEYJARMERKI,
TUNGLIÐ (TILFINNINGAR OG VANAHEGÐUN) Í HINUM JÁKVÆÐA BOGMANNI, MERK-
ÚR (HUGSUN) OG VENUS (SAMSKIPTI) Í HINNI FÉLAGSLYNDU OG KURTEISU VOG.
Ráðleggingar
Y
Tilfinningar
]
Vitsmundir
ÕGrunneðli
M
or
gu
nb
lað
ið
/Ó
m
ar
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON
KNATTSPYRNUMAÐUR
Fæddur 8. september 1989. Uppalinn í
Hafnarfirði og lék með FH og Breiðabliki í
yngri aldursflokkum. Fór ungur utan í
atvinnumennsku og hefur aldrei leikið í
meistaraflokki á Íslandi.
Spilar með Swansea City í ensku úrvals-
deildinni. Þekktur fyrir sendingar sem
skapa mörk og föst skot utan af velli. Fyrri
félög: Reading og Tottenham Hotspur í
Englandi og Hoffenheim í Þýskalandi. Gylfi
var líka í láni hjá Shrewsbury Town, Crewe
Alexandra og Swansea og hefur verið í
miklum metum hjá stuðningsmönnum
síðastnefnda félagsins síðan.
Gylfi sló fyrst í gegn hér heima í leikjum
21-árs landsliðsins í undankeppni EM 2011.
Kjörinn íþróttamaður ársins á Íslandi fyrir
árið 2013.
Helsta áhugamál Gylfa er golf og þykir
hann snjall kylfingur.
Foreldrar Gylfa eru Sigurður Aðal-
steinsson og Margrét Hrefna Guðmunds-
dóttir.
Unnusta Gylfa er Alexandra Helga Ívars-
dóttir.
Bróðir Gylfa er Ólafur Már Sigurðsson,
fyrrverandi landsliðsmaður í golfi.
Leikir með landsliðum:
3 leikir með U17 landsliðinu
3 leikir með U18 landsliðinu
12 leikir með U19 landsliðinu
14 leikir með U21 landsliðinu
27 leikir með A-landsliði karla
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014