Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014 E kki tekur öll heimsbyggðin kosningar mjög alvarlega. Enn býr drjúgur hluti mannkyns við lýðræðislegt réttleysi. Réttleysingjar þessir eru þó iðulega neyddir á kjörstað, jafnvel að viðlagðri refsingu, ef út af er brugðið. Þegar þangað er komið eru tveir klefar í hverri kjördeild. Kjörklefinn, þar sem kosið er með stjórnvöldum og fangaklefinn, sem farið er í vilji menn tjá aðra skoðun. Hvers vegna glataði hann lit? Þegar til þessa er hugsað mætti ætla að kjósendur í lýðræðisríki litu á sinn kjörseðil sem kjörgrip, sem bæði þyrfti að vernda, nýta og fara vel með. Algengast er, að fyrst eftir að aðkvæðisréttur fæst, eftir harðfylgi, flykkist menn í gleði sinni á kjörstað. En svo dregur smám saman úr áhuga, uns svo er kom- ið, að kosningarétturinn er jafnvel hafður í flimtingum. Ýmsar skýringar eru viðraðar á þessari óheillaþróun. Þær eru ólíkar og misvísandi og stundum litaðar af því, hver gefur þær. Sú skýring heyrist stundum á pirringsstund í hjóna- bandi, að makinn, sem talað er til, taki hinn „eins og sjálfsagðan hlut,“ meti ekki hjónabandsfenginn, eins og vert væri. Það er óþarft og varasamt í góðu hjóna- bandi að taka nokkuð eins og sjálfsagðan hlut. En það er hins vegar gott að búa í þjóðfélagi sem telur að kosningarétturinn sé algjörlega sjálfsagður. En það dregur ekki úr mikilvægi þess réttar. Vafalítið þykir þeim, sem nýta kosningarétt sinn illa, eftir sem áður gott að vita af því, að valdsmenn verði að leita nýs umboðs á fárra ára fresti. En óneitanlegt er að „kjósandanum“ þykir, þrátt fyrir þetta, sífellt minna til kjörseðilsins koma. En rétt eins og þegar Jeppi á Fjalli viðurkenndi drykkjuskap sinn, sem var sjálfgefið, fylgja við- urkenndum staðreyndum gjarnan nýjar spurningar. „Jú, víst drekkur Jeppi. En af hverju drekkur Jeppi?“ Því verður ekki á móti mælt að kjörseðill í hendi hef- ur hríðfallið í verði. En hvaða skýringar eru á því? Drattast ekki á kjörstað „Af hverju kemur kvefið og hóstinn? Kemur af leti og því er nú verr,“ var sungið. Kjósendur sem heima sátu segja iðulega að þeir hafi ekki nennt á kjörstað. En það er fyrirsláttur, leti getur ekki verið skýringin. Íslend- ingar þyrptust tugþúsundum saman á rútubílasýn- inguna við Umferðarmiðstöðina á sínum tíma, þótt ekki væri þar neitt að sjá annað en rútubíla, sem þeir höfðu, allir sem einn, margoft séð og sungið í. Það eru ekki letingjar sem halda þannig á helgidögum. Menn stóðu í biðröð til að fá að fara inn að framan og út að aftan, í eina rútu af annarri. Í þetta þarf harðduglegt fólk. Á Íslandi eru kjörstaðir á næstu grösum, hvar sem því verður við komið, og ekki verður séð að í dreifðari byggðum, þar sem lengra er að fara, sé kjörsókn lak- ari, en þar sem aðkoma er þægilegust. Letiskýring- unni er því endanlega hafnað. Hvað er það þá? Minnk- andi kosningaþátttaka er alþjóðleg og Íslendingar hafa verið tiltölulega viljugir fram til þessa til að skokka á kjörstað. En sá vilji minnkar hratt. Borgarbúar voru sagðir hafa tekið risaskref í átt til nútímalegra stjórnmála, er þeir völdu sér borgarstjóra sem lofaði að taka starf sitt ekki alvarlega og því síður að sinna því. Hann stóð við loforðin. En eftir að þessu Eru stjórnmál rútína? * Í tvö ár hefur íslenska ríkis-stjórnin ekki fundið tíma fráeinhverju sem enginn veit hvað er en ætlar nú að keyra í gegn á fáum vik- um matarskatt á lægst launaða fólkið í landinu, hvað sem tautar og raular. Reykjavíkurbréf 14.11.14

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.