Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 13

Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 13
STRAUMHVÖRF 11 en lítið bogið við það skattafyrir- komulag, sem felur í sér, að einstakl- ingar geti á örskömmum tíma safnað stóreignum. Við athugun á þessu máli kemur aðallega tvennt til greina. I fyrsta lagi vaknar sú spurning, hvort hægt sé að færa fram nokkur þjóðhags- leg rök, sem mæla með því, að stríðs- gróði falli í hlut einstakra manna. Spurninguna má líka orða á þá lund, hvort hagsmunir stríðsgróðamanna sem slíkra og þjóðarheildarinnar falli saman eða séu andstæðir hverir öðr- um. í öðru lagi liggur fyrir að athuga hina almennu réttlætishlið málsins, dæmt út frá viðurkenndum siðgæðis- reglum. Er réttmætt og sanngjart, að einstakir menn beri úr býtum tekjur, sem eiga sér stríðsgróðaupp- runa? Þessar tvær hliðar málsins skulu nú athugaðar, hvor fyrir sig. H. Því er haldið fram, að það sé ekki forsvaranlegt, að leggja þunga skatta á stríðsgróðann, vegna þess að fyrir- tækin þurfi, þjóðarheildarinnar vegna, að safna sjóðum til endurnýjunar og aukningar framleiðslutækjanna að stríðinu loknu. Þessi staðhæfing er ekki á rökum reist. Sjóðsöfnun einstaklinga og fé- laga getur með engu móti tryggt, að framleiðslutækin verði endurnýjuð og aukin að stríðinu Ioknu. Því fer líka fjarri, að slíkt sé á neinn hátt skilyrði fyrir því, að hafizt verði handa í því efni. Það, sem allt veltur á, er hitt, hvort nægur erlendur gjald- eyrir verður fyrir hendi, þegar þar að kemur, er nota megi til kaupa á framleiðslutækjum og -vörum er- lendis frá. Bregðist það, fá sjóðseign- irnar úr engu bætt. Erlendir útflytj- endur líta ekki við íslenzkum pen- ingaseðlum sem greiðslu fyrir vör- ur. Ef aftur á móti gjaldeyrir verður fyrir hendi, mun allt leysast af sjálfu sér, svo framarlega sem peningapóli- tíkin er vanda sínum vaxin. Það verð- ur því að fara aðrar leiðir til að tryggja það, að þjóðin eignist þau framleiðslutæki, sem hún þarfnast, til þess að geta búið við lífvænleg kjör. Það, sem nú hefir verið sagt, ligg- ur svo í augum uppi, að í rauninni ætti að vera óþarft að leiða athygli að þvi. Önnur mikið notuð rök- semd kann að virðast haldbetri: — Stríðsgróðanum er betur borgið í eign fyrirtækja og einstakra manna en hjá hinu opinbera. En það fer um þessa röksemd eins og hina fyrri. Með henni er áskilið, að hinu opin- bera sé ekki trúandi fyrir hinu mikla fé, sem um er að ræða, sökum ó- stjórnar. Ekki skal dregið í efa, að hætta sé á, að fjármálapólitík ríkis, bæjar- og sveitarfélaga verði áfram rekin eins ráðleysislega eins og und- anfarin ár. En þá gildir einu, hvort gróðinn lendir hjá hinu opinbera eða er lagður fyrir hjá einstökum mönn- um. Fjármálapólitíkin hefir sérstöðu að því leyti, að hún getur komið öllu atvinnulífi á kaldan klaka, ef hún er ógætilega rekin. Óábyrg fjár- málapólitík leiðir í báðum tilfellum jafnt til þess, að lítið eða ekkert verður úr þeim gróða, sem landinu

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað: 1. hefti (15.01.1943)
https://timarit.is/issue/376446

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

1. hefti (15.01.1943)

Aðgerðir: