Straumhvörf - 15.01.1943, Síða 29

Straumhvörf - 15.01.1943, Síða 29
STRAUMHVÖRF 27 miklu leyti háð því, hvernig frum- stofnun þjóðfélagsins — heimilinu — farnast. Og þessi opinskáa liðsbón mín til lesenda mun bærast í penna sérhvers manns, er einhvers væntir af skrifum sínum. Við getum aldrei öðlazt nema grunnan skilning á heimilinu og öðr- um félagsstofnunum, ef við könnum ekki eðli okkar og öfl þau, er í því búa. Alkunnugt er, að einstakling- unum er ekki tamt að skoða málefnin frá mörgum hliðum, og þó að við kysum að gera okkur alhliða grein einstökum málefnum, erum við þess oft ekki umkomin. Þá getur gott sam- starf margra bætt fyrir annmarka einstaklingsins. En ekki einstakling- unum einum, heldur jafnvel kynslóð- unum virðast þröngar skorður settar um frjósama skoðun málefnanna. Og samtíð okkar virðist fyrst og fremst beina augum að efnislegu mati á ein- staklingnum, meta hann að svo miklu leyti sem tölum verður við komið. En flest það, sem mestu máli skiptir í lífi einstaklinga og þjóða, verður hvorki mælt né vegið. Samtiðin keppir fyrst og fremst að því að beizla sem rækilegast orku hinnar „dauðu náttúru" án þess að spyrja: Til hvers? Fyrir hvern? — Forn spekingur mælti, að menn skyldu hlýða náttúrunni, en ekki beita hana ofbeldi. Þetta viðhorf gat reynzt frjósamt til hollrar manns- mótunar, en tregt til verklegra fram- kvæmda. Við höfum kosið að beita náttúruna ofbeldi, og um margt hefir okkur tekizt vel í verklegum efnum, en miður um mannsmótunina. Og jafnvel þó að vilji væri nægur að beita náttúruna ofbeldi, eins og hinn forni spekingur kvað að orði, þá hefir það ekki einu sinni tekizt gagnvart hinni „dauðu náttúru". Hún hefir því aðeins léð mönnum öfl sín, að þeir kynntu sér þau, skildu þau og breyttu samkvæmt því. En ekki einungis 5 ríki hinnar svokölluðu „dauðu nátt- úru“ ríkja lögmál. í öllu, bæði kviku og dauða, ríkja lögmál og því aðeins getum við vænzt þess, að þjóðfélag okkar verði lífrænt og lífinu sam- kvæmt, að við gefum lögmálum mannlegs eðlis a. m. k. eins mikinn gaum og því, sem dautt er talið. Því aðeins verða öfl náttúrunnar okkur til farsældar, en ekki tortímingar, að við verðum við ákveðnum skilyrðum, að ekki sé brotið gegn þeim. Því aðeins þroskumst við, að við brjót- um ekki gegn eðli okkar. Máttugur uppruni allra lífvera er þegar tryggð- ur af lífhollum eiginleikum. Þroska- ferill þeirra er lögmálsbundinn, ein- staklingarnir og tegundirnar eru gæddar lífhollri framvísi, sem birtist í upprunalegum hneigðum þeirra. — Þessi kenning er gömul, en þó fjarri „hagnýttum" sannleik og fordómum daglegs lífs. Það má nefna þetta við- horf bæði trú og skoðun, en sérhver mun þó geta sannprófað það með at- hugunum á næsta umhverfi sínu. En þeir, sem eru á öðru máli, eru beðnir að skoða grösin sem vaxa við bæinn þeirra eða húsið þeirra, eða barnið sem vex úr vöggu til manns. Og um leið og við hugleiðum og kynnum okkur af alúð þessi yfirpersónulegu lögmál, verður viðhorfið gagnvart

x

Straumhvörf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.