Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 22

Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 22
20 STRAUMHVÖRF S. Sörenson: Ræða ríkissijóra Þegar styrjaldarbál það hófst, sem nú geisar, var talið, að það kynni að hafa alvarleg áhrif á afkomu landsmanna til sjávar og sveita. Þetta var réttmæt ályktun. Hinir ábyrgu þingflokkar tóku á sig rögg, létu deilumálin niður falla um stundar- sakir og mynduðu þjóðstjórn, í þeim tilgangi að finna sameiginlega lausn á þeim vandamálum, sem óhjákvæmi- lega hlytu að sigla í kjölfar heims- styrjaldar. Ýmsir bjartsýnir menn létu sig dreyma um, að nú væri runn- in upp sá langþráði dagur, er þjóðin hefði loksins lært að þekkja sinn vitjunartíma, og leiðtogar þjóðarinnar myndu jafna ágreiningsefnin og láta sjónarmið heildarinnar ráða ákvörð- unum sínum og gerðum. Blöðin töluðu jafnvel um það með fjálgleik, að hvað sem í vændum væri, þá yrði það lát- ið ganga jafnt yfir alla, fátæka sem ríka. Þessi göfuga bræðralagshugsun gladdi án efa hugi margra manna, er höfðu átt við atvinnuleysi og þröng kjör að búa á undanförnum árum. — Það var sannarlega gleðiefni, þegar hættur og erfiðleikar steðjuöu að þjóðinni sem heild, að þá væri einnig hugsað um hina fátæku og smáu. Óþarfi er að rekja hér sögu þessa ýtarlega. Hana þekkja allir. En ó- væntir atburðir gerbreyttu viðhorfi þessu svo að segja á svipstundu. — Landið var hernumið af einu mesta veldi heims, og okkur var boðið að amast eigi við hermönnum þess, held- ur auðsýna þeim velvild og umgang- ast þá sem gesti. En þessi her, sem gisti land okkar, kom ekki aðeins með vopn og flugvélar landinu til varnar, ef á það yrði ráðizt. Hann kom með annað og meira. Hann kom með gullkálfinn, sem menn á öllum öldum hafa dýrkað fram yfir öll önnur verðmæti: Og menn sögðu í birtunni af gullinu: „Sjá, þessir menn eru vinir vorir, því að þeir hafa unnið bug á atvinnuleysinu og bægt hungur- vofunni burt frá dyrum heimkynna vorra". Nú hófst kapphlaupið um gullið. Saga annarra þjóða sýnir, að bar- áttan um þennan verðmæta málm, eða ígildi hans, hefur aldrei farið fram án ágreinings, átaka og jafnvel blóðsút- hellinga. Og sama sagan endurtók sig hér að sumu leyti. Við íslending- ar teljum okkur friðelska þjóð. Við höfum hvorki vilja né getu til að eiga í illdeilum við aðrar þjóðir. En þótt við séum friðelskir útávið, þá virðist svo sem okkur sé það ólán skapað, að eiga sífellt í innbyrðis illdeilum og stríði. — Þegar ástand það skapaðist, sem hernámið hafði í för með sér, þá hefði maður getað vænzt þess, að hin flokkspólitísku sjónarmið yrðulát-

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.