Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 14

Straumhvörf - 15.01.1943, Blaðsíða 14
12 STRAUMHV ÖRF hefir áskotnazt. Þessi gróði er fólg- inn í þeim erlendu inneignum, sem safnazt hafa. Eins og áður segir, er allt komið undir því, að hægt verði að grípa til þeirra síðar til að kaupa framleiðslutæki erlendis. En til þess eru næsta litlar líkur, ef hið opin- bera ber ekki gæfu til að taka upp gætilega og markvissa fjármálapóli- tík. Sjóðir fyrirtækjanna, hversu miklir sem þeir eru, eru einskis nýt- ir til að greiða með innflutning, ef ekki er fyrir hendi erlendur gjald- eyrir. Af þessu er ljóst, að endurnýjun og aukning framleiðslutækjanna er algerlega óviðkomandi því atriði, hvort einkaaðilum er gefið tækifæri til að safna sjóðum eða ekki. Hið eina, sem felur í sér nokkra trygg- ingu hvað þessu viðkemur, er að fjár- mála- og peningapólitíkin sé mark- visst rekin af hálfu hins opinbera, og að borgararnir stilli neyzlu sinni í hóf. En þetta, hvort stríðsgróðinn eigi að haldast í einkaeign eða renna til hins opinbera, sem fulltrúa þjóðar- heildarinnar hefir geysimikla þýð- ingu í öðru tilliti. Skyldi þar vera fundin skýringin í afstöðu sumra til þessa máls? Stríðsgróðinn hefir þegar haft í för með sér mjög mikla röskun á eignaskiptingunni innanlands. Með því að láta viðgangast, að mikill hluti hans haldist í einkaeign, er fyrir- fram búið að ákveða, ekki aðeins hverjir koma til með að eiga megin- hluta þeirra framleiðslutækja, sem aflað verður eftir stríð, heldur einnig, hverjir eigi að stjórna þeim. Við val á mönnum í það verður áreiðanlega ekki farið eftir hæfileikum og fram- takssemi. Ef stríðsgróðinn rennur til hins opinbera, má hins vegar vænta þess, að hæfir menn veljist til þess að stjórna atvinnufyrirtækjunum, af þeim ástæðum, að framleiðslutækin yrðu þá að verulegu leyti keypt með aðstoð peningastofnana, er við lán- veitingar ættu að öðru jöfnu að fara eftir hæfileikum manna. Mann- kostir eiga að ráða því, hverjir velj- ast til þess að veita atvinnufyrir- tækjunum forstöðu, en ekki ættar- bönd eða önnur persónuleg tengsl. — Stríðsgróðinn gefur þeim, sem hann hreppa, sterka valdaaðstöðu í þjóð- félaginu og leggur þannig grundvöll að ,,peningaaðli“, sem ekki má vænta neins góðs af. Jafnframt er fáeinum mönnum og afkomendum þeirra fyr- irfram um mörg ókomin ár tryggður verulegur hluti af þjóðartekjunum, án þess að neitt þurfi að koma á móti af þeirra hálfu annað en umdeilan- legur réttur til þess arðs, sem fram- leiðslutækin afkasta. Þeirri spurningu, hvort hægt sé að færa fram nokkur þjóðhagsleg rök fyrir því, að stríðsgróðinn falli ein- stökum mönnum í skaut, verður ekki svarað nema á einn veg, neitandi. — Þessi niðurstaða leiðir beint af ein- földum hagfræðilegum sannindum og er því hlutlæg, þ. e. óháð því, hvaða þjóðmálaskoðanir menn kunna að að- hyllast. En auðvitað fer ekki hjá hinu, að hún orki á þá afstöðu, sem

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.